Podcasts by Category

Eigin Konur

Eigin Konur

Edda Falak

Eigin konur

118 - Katrín Lóa - Segir Helga í Góu hafa kynferðislega áreitt sig í eitt og hálft ár
0:00 / 0:00
1x
  • 118 - Katrín Lóa - Segir Helga í Góu hafa kynferðislega áreitt sig í eitt og hálft ár

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    „Hann hafði oft verið óviðeigandi og maður var búin að heyra sögur þannig maður passaði sig alveg á honum” Segir Katrín Lóa sem tilkynnti kyferðislega áreitni til lögreglu árið 2019. Áreitið átti sér stað á vinnustað af eiganda fyrirtækissins og gekk yfir í eitt og hálft ár. Katrín segir áreitið hafa byrjað eftir að maðurinn hafi lánað henni fimm milljónir sem hún notaði til þess að kaupa sér íbúð.

    Thu, 15 Dec 2022 - 10min
  • 117 - Ingibjörg Sædís - ólst upp við sárafátækt

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur 

    Ingibjörg Sædís ólst upp við mikla fátækt þegar hún var yngri. Hún bjó hjá foreldri sem gat ekki unnið vegna andlegrar og líkamlegrar veikinda og var á sama tíma mótfallin því að biðja um aðstoð. Hún segir horfa aðdáunaraugum á fólk sem biður um aðstoð á internetinu fyrir börnin sín og vildi óska að faðir hennar hefði gert það sama.

    Thu, 01 Dec 2022 - 10min
  • 116 - Kefsan - Kærði eiganda Mandi fyrir alvarlega líkamsárás og hótanir

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur


    Kefsan kærði Hlal, eiganda Mandi árið 2020 fyrir alvarlega líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Mandi. Í skýrslutökum lýsir hún því hvernig hann hafi kýlt hana í höfuðið, ýtti henni niður stiga og sparkað í hana af miklu afli, þar sem hún lá á gólfinu. Þá ber hún að Hlal hafi í þrjá mánuði áreitt sig og hótað sér á meðan hún leigði herbergi, sem var í eigu hans.

    Fri, 25 Nov 2022 - 10min
  • 115 - Soffía Karen - "Kærði mann fyrir nauðgun sem hélt henni hjá sér í 4-5 tíma"

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur     Soffía Karen var átján ára þegar hún fór heim með strák, sem hélt henni hjá sér í fjóra tíma á meðan hann braut á henni kynferðislega. Hún leitaði strax á bráðarmóttöku og lagði fram kæru stuttu eftir brotið. Gerandinn bað Soffíu afsökunar á því að hafa verið “ógeðslegur” við hana, en þrátt fyrir áverka var málið fellt niður tveimur árum síðar.

    Thu, 17 Nov 2022 - 05min
  • 113 - "Nemandi við MH fékk hótanir eftir að hafa sagt frá kynferðisbroti"

    Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur

    Ung kona sem er nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð segir baráttuna og mótmælin í MH hafa hjálpað sér í gegnum kynferðisbrot sem hún varð fyrir árið 2021. Hún segir nafn geranda síns hafa verið skrifað á vegg skólans og í kjölfarið fór hún að fá hótanir frá vinum hans og fjölskyldu.




    Wed, 02 Nov 2022 - 05min
Show More Episodes