Filtrar por género
- 99 - LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem Áslaug tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.
Thu, 18 Apr 2024 - 59min - 98 - LEGVARPIÐ // Ljósmæður líta um öxl - Guðrún Bö og Magga Bjarna ljósmæður
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda báðar sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa á skemmtilegan hátt þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar. Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingu barnabarnanna.
Mon, 25 Mar 2024 - 1h 19min - 97 - Tilfellaráðgáta á Læknadögum 2023
Sem upphitun fyrir Læknadaga 2024 sem fara fram dagana 15. - 19. janúar, deilum við með ykkur upptöku af tilfellaráðgátu sem fram fór á Læknadögum í fyrra. Berglind Bergmann, sérnámslæknir í lyflækningum, kynnir tilfellið í bútum og pallborð sérfræðinga greinir tilfellið. Pallborðið skipa þau; Hildur Jónsdóttir, sérfræðingur í almennum lyflækningum, Bára Dís Benediktsdóttir, þá sérnámslæknir í almennum lyflækningum (nú sérfræðingur!), Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og Stella Rún Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í almennum lyflækningum. Umsjón þáttar: Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir.
Wed, 10 Jan 2024 - 51min - 96 - LEGVARPIÐ // Þegar ljósmóðir eignast barn
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? Komið með í þetta magnaða ferðalag, allt frá tilfinningarússíbananum sem fylgir óráðgerðri þungun yfir í kraftmikla heimafæðingu með nágrannana á vorhreingerningardegi fyrir utan gluggann.
Mon, 30 Oct 2023 - 1h 31min - 95 - LEGVARPIÐ // Sitjandi fæðingar
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. Spjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði og tilfinningar þegar sitjandi fæðingar eru annars vegar, sem einkennist af bæði trú og auðmýkt.
Tue, 6 Jun 2023 - 50min - 94 - LEGVARPIÐ // Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðarburði til farartækja. Einnig talar hún um viðhorfi kvennanna til barneigna og menninguna í kringum fæðingar, þar sem hin mikla trú á kvenlíkamanum og móður náttúru ræður ríkjum.
Tue, 6 Jun 2023 - 1h 13min - 93 - GEÐVARP // Steinunn Ingvadóttir og Hrönn Stefánsdóttir
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína sem eru þær Steinunn Ingvarsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Steinunn Ingvarsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2009. Árin eftir útskrift starfaði Steinunn m.a. á bráðamóttöku, hjartagátt og á krabbameinslækningadeild Landspítala. Steinunn fékk í starfi sínu sem aðstoðardeildarstjóri á Krabbameinslækningadeild mikinn áhuga á gæða- og umbótastarfi og það leidda hana í meistaranám í verkefnastjórnum (MPM) við Háskólann í Reykjavík. Steinunn starfaði sem verkefnastjóri á Landspítala næstu árin eftir útskrift úr meistaranáminu og kom að fjölbreyttum verkefnum. Hún hóf svo störf í geðþjónustu Landspítala s.l. haust (2022) sem hjúkrunarfræðingur í Geðhvarfateymi. Steinunn er einnig menntaður Jóga Nidra kennari. Hrönn er hjúkrunarfræðingur, útskrifaðist frá hjúkrunardeild HÍ árið 2003 en með námi vann hún á bæklunarskurðdeild . Vann á Hrafnistu og bráðamóttöku barna þegar nýji barnaspítalinn opnaði árið 2003. Flutti til Bandaríkjanna og fór að vinna á slysa- og bráðadeild í Kaliforníu eftir að hafa tekið bandaríska hjúkrunarprófið. Í Metropolitan University í Minnesota fór Hrönn í diplomanám í sára- og stómahjúkrun. Flutti heim aftur 2011 og vann á bráðamóttöku, neyðarmottökuhjúkrunarfræðingur frá 2013 og verkefnastjóri neyðarmóttökunnar árið 2016. Frá 2022 hefur Hrönn unnið á göngudeild geðsviðs. Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004, hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.
Wed, 22 Mar 2023 - 1h 01min - 92 - Þunglyndi með Engilbert Sigurðssyni og Magnúsi Karli Magnússyni
Engilbert Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum, fer yfir þunglyndi í víðum skilningi. Hvað er þunglyndi, hvaða boðefni í heilanum koma við sögu og hverjir eru megin þættir í meðferð. Við ræðum helstu flokka þunglyndislyfja sem eru notuð í dag og einnig nýjungar á borð við segulörvun og psilocybin. Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og geðlækningum á 5. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Wed, 23 Nov 2022 - 1h 13min - 91 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Öndunarbilun með Eric Contant, sérfræðingi í bráðalækningum
Eric Contant, sérfræðingur í bráðalækningum, ræðir við okkur um bráða öndunarbilun (e. Respiratory failure). Hvernig er bráðveikur sjúklingur metinn? Hvaða súrefnisgjafaleiðir standa til boða og hvenær skal grípa til ytri öndunarvélar (e. Bipap, cpap)? Þá ræðir Eric við okkur um grunnstillingar ytri öndunarvéla og hvernig hægt sé að breyta þeim svari sjúklingur vélinni illa. "Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.
Thu, 17 Nov 2022 - 46min - 90 - GEÐVARPIÐ // Eydís og Manda ræða um geðhjúkrun
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. Hún er gestadósent við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri þar sem hún var sviðsforseti og dósent 2016-2021. Eydís var stjórnandi í hjúkrun á Landspítala í næstum tuttugu ár þ.e. á árunum 1997-2016. Þegar Ísland var með formennsku í Norðurskautsráðinu 2019-2021 var Eydís formaður sérfræðingahóps um heilbrigðismál á Norðurslóðum. Nýjustu birtingar Eydísar eru tveir ritrýndir bókarkafla í kennslubók um geðhjúkrun fyrir nemendur í meistaranámi í geðhjúkrun sem var að koma út á haustmisserinu 2022. Margrét Manda Jónsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og starfaði eftir útskrift á legudeild BUGL og svo í geðþjónustunni. Þar starfaði hún fyrstu árin sem aðstoðardeildarstjóri á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild og fékk mikinn áhuga á stjórnun. Manda kláraði MBA nám í HR 2016 og hefur starfað síðan þá sem deildarstjóri. Í dag er Manda í miðju breytingarstjórnunarferli þar sem hún stýrir nýrri deild sem kallast meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma – deild sem sérhæfir sig í greiningu, meðferð og endurhæfingu sjúklinga með geðrofseinkenni. Deildin var stofnuð í janúar 2022 og er því öll umbóta og þróunarvinna í fullum gangi. Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004, hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.
Wed, 16 Nov 2022 - 49min - 89 - Innöndunarlyf með Gunnari Guðmundssyni, lungnalækni
Gunnar Guðmundsson sérfræðingur í lungnalækningum ræðir innúðalyf við astma og langvinnri lungnateppu. Grípið andann á lofti því mörgu er svarað - Hvaða eru berkjuvíkkandi lyf? Hvernig gagnast innúðasterar? Hvernig á að innleiða meðferð og hver er tröppugangurinn þegar kemur að því að auka meðferð? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Wed, 9 Nov 2022 - 53min - 88 - Klínísk rökleiðsla - 68 ára ferðamaður með skyndilegt rugl og máttleysi
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er 4. og síðasti þátturinn í sérstakri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins. Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Wed, 2 Nov 2022 - 1h 00min - 87 - Klínísk rökleiðsla - 62 ára með kviðverk
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 3 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn. Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins. Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Thu, 27 Oct 2022 - 59min - 86 - Klínísk rökleiðsla - 55 ára með gikkfingur, krónískan niðurgang og brjóstverk
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er þáttur númer 2 í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022. Munum gefa miða á þingið! Meiri upplýsingar með því að hlusta á þáttinn.
Wed, 19 Oct 2022 - 50min - 85 - LEGVARPIÐ // Edythe Mangindin ljósmóðir
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Hún fékk áhuga á að læra ljósmóðurfræðina í kjölfar þess þegar hún gekk sjálf í gegnum fæðingu fyrsta barns hennar. Hún byrjaði í hjúkrunarfræðinámi á íslensku strax á öðru ári sínu á landinu og lærði um leið íslenskuna. Eftir að hafa lokið hjúkrunarfræðinámi bætti hún við tveim árum til að verða ljósmóðir. Undanfarin fjögur ár hefur hún unnið á deildum sem sinna konum fyrir og eftir fæðingu. Hún er meðal annars alþjóðlegur IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og er núna í doktornámi þar sem viðfangsefnið er upplifun erlendra mæðra af mæðravernd og fæðingum á Íslandi.
Thu, 13 Oct 2022 - 1h 00min - 84 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla - 49 ára með svima, slappleika og mæði
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Þátturinn er sá fyrsti í nýrri undirsyrpu fyrir Lyflæknaþing sem verður haldið í nóvember 2022 Tilfellið er kynnt í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Tilfellið er leyst í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu með okkur. Áherslan er að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins. Þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar.
Wed, 12 Oct 2022 - 1h 10min - 83 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Æðavirk lyf (e. pressorr) með Martin Inga og Magnúsi Karli
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum fer yfir æðavirk lyf. Hvað eru æðavirk lyf, hvernig virka þau og hvernig beitum við þeim? Þessi þáttur er unnin í samstarfi við Læknadeild Háskóla Íslands og nýtist við kennnslu læknanema í lyfjafræði á 3. ári og svæfinga- og gjörgæslulækningum á 6. ári. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum heldur utan um verkefnið og er jafnframt gestaspyrill í þættinum.
Thu, 29 Sep 2022 - 50min - 82 - GEÐVARPIÐ // Nína Eck - jafningi á geðsviði
Nína Eck er Jafningi á Geðsviði. Hún hóf störf á Laugarásnum í desember 2021 en hefur unnið á Kleppi og Hringbraut í sumar. Nína hefur reynslu af geðrænum áskorunum og mörgu sem þeim fylgdi en var útskrifuð úr DAM-teyminu árið 2020. Nú er hún í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og vinnur hart að því að þróa jafningjastarfið og kynna það fyrir öllum sem vilja hlusta.
Fri, 23 Sep 2022 - 59min - 81 - GEÐVARPIÐ // Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur
Arndís Vilhjálmsdóttir er geðhjúkrunarfræðingur og lauk B.Sc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 2009 og meistaragráðu frá Háskólanum á Akureyri 2020. Arndís starfaði lengi á geðþjónustu Landspítala, fyrst á fíknigeðdeild og síðan í samfélagsteymi. Núna starfar Arndís í geðheilsuteymi fangelsa og situr í stjórn Fagdeilda geðhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún hefur fyrst og fremst unnið við geðhjúkrun frá útskrift og þá aðallega með einstaklingum sem glíma við vímuefnavanda og/eða annan geðvanda. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við hana um málefni á sviði geðhjúkrunar.
Thu, 23 Jun 2022 - 50min - 80 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Steinunn Þórðardóttir: Heilabilun
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Að þessu sinni er gestur þáttarins Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum og formaður Læknafélags Íslands. Steinunn ræðir heilabilun með áherslu á Alzheimer sjúkdóm. Hvermig metum við vitræna getu og hvernig greinum við heilabilun? Hver er meingerð Alzheimer sjúkdóms? Hvaða meðferðarmöguleikar eru í boði og hvað ber framtíðin í skauti sér?
Fri, 27 May 2022 - 1h 06min - 79 - LEGVARPIÐ - Hulda Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir
Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirdóttir ræða við Huldu Þórey Garðarsdóttur um ljósmæðrastörf hennar í Hong Kong en þar búa yfir 7 milljónir á svæði sem er á stærð við höfuðborgarsvæðið. Þátturinn er hluti af röð þátta Ljósmæðralíf fyrir Ljósmæðrafélag Íslands. Hulda ólst upp á Kópaskeri en leiðin lá í hjúkrun og síðar í ljósmóðurnámið árið 1999. Hulda segir frá þegar hún flutti til Hong Kong fljótlega eftir að hún útskrifaðist sem ljósmóðir árið 2001.
Thu, 28 Apr 2022 - 1h 25min - 78 - GEÐVARPIÐ - Margrét Eiríksdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun
Í þessum áttunda þætti Geðvarpsin er rætt við Margréti Eiríksdóttur sérfræðing í geðhjúkrun. Margrét hefur yfir fjörutíu ára starfsreynslu við geðhjúkrun.
Wed, 27 Apr 2022 - 1h 19min - 77 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla: Dularfulla bráðamóttökutilfellið
Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum leiða okkur í gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning).
Thu, 7 Apr 2022 - 1h 02min - 76 - GEÐVARPIÐ // Rætt um geðhjúkrun við þrjá unga hjúkrunarfræðinga
"Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Að þessu sinni er Guðfinna Betty Hilmarsdóttir þáttarstjórnandi með Helgu Sif. Viðmælendur þeirra eru þær Rósa Björg Ómarsdóttir í transteymi BUGL, Magnea Herborg Magnúsardóttir á Laugarási meðferðargeðdeild og Ólöf Jóna Ævarsdóttir á móttökugeðdeild fíknimeðferðar. Umræðuefnið er geðhjúkrun í sinni víðustu mynd með starfsferil og reynslu þessara þriggja hjúkrunarfræðinga í brennidepli. Geðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Wed, 16 Feb 2022 - 1h 03min - 75 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Klínísk rökleiðsla: Hinn mikli medisínski slappleiki
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti leiða þær Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Hildur Jónsdóttir sérfræðingur í almennum lyflækningum hlustendur gegnum tilfelli með klínískri rökleiðslu (e. clinical reasoning). Berglind kynnir tilfelli í nokkrum bútum og eftir hvern bút eru umræður. Sólveig, Teitur og Hildur eru blinduð á tilfellið og hjálpast að við að leysa það í rauntíma. Hlustandi getur þannig tekið þátt og spreytt sig á tilfellinu. Áhersla er lögð á að hugsa vítt, koma með mismunagreiningar og læra af ferlinu. Hvað leiðir okkur í rétta átt og hvað villir sýn? Rétt greining er afhjúpuð í lok þáttarins. Þátturinn er sá fyrsti í syrpu af klínískri rökleiðslu. Þess má geta að þátturinn byggir á raunverulegu tilfelli. Upplýsingum hefur verið breytt til að gera þær ópersónugreinanlegar og gæta trúnaðar. Fengið var leyfi sjúklings fyrir því að nota tilfellið við gerð þáttarins.
Tue, 15 Feb 2022 - 1h 05min - 74 - LEGVARPIÐ // KRISTÍN RUT HARALDSDÓTTIR SÉRFRÆÐILJÓSMÓÐIR SEGIR FRÁ FÓSTURGREININGUM
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fósturgreiningardeild Landspítala. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningarþjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergjum og rýna á skjáinn? Komiði með!
Fri, 7 Jan 2022 - 1h 11min - 73 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Ragnar Freyr Ingvarsson og Ólafur Orri Sturluson: Þvagsýrugigt
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum ræða þeir Ragnar Freyr Ingvarsson gigtarlæknir og Ólafur Orri Sturluson sérnámslæknir í almennum lyflækningum um þvagsýrugigt. Af hverju fáum við þvagsýrugigt? Hvernig er hún greind? Hvaða meðferðarmöguleikar eru í boði? Ennfremur er rætt um þvagsýrugigt í sögulegu samhengi, gildi smásjáskoðunar og hvernig hægt er að beita ómun við mismunagreiningu bólgins liðar. Að lokum uppljóstra viðmælendur þáttarins hver jólagjöfin í ár er (var)!
Wed, 29 Dec 2021 - 1h 06min - 72 - GEÐVARPIÐ // Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun
"Geðvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Viðmælandi Helgu Sifjar að þessu sinni er Rósa María Guðmundsdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun og hjúkrunar- og teymisstjóri geðheilsusviðs Reykjalundar. Samhliða vinnu sinni hjá Reykjalundi lauk Rósa María BS-prófi við Háskóla Íslands árið 2001 og meistaraprófi í geðhjúkrun árið 2007. Gegnum tíðina hefur hún lært og tileinkað sér ýmis sálræn meðferðarform og má þar nefna hugræna atferlismeðferð (HAM) og klíníka dáleiðslu.
Tue, 28 Dec 2021 - 1h 03min - 71 - LEGVARPIÐ // SIGURVEIG ÓSK PÁLSDÓTTIR SEGIR FRÁ VATNSFÆÐINGUM
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk. Ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur hlustendur með inn í draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðralistin fær að leika lausum hala. Viltu vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin sín ofan í baðkörum? Þá ertu á réttum stað!
Thu, 23 Dec 2021 - 1h 16min - 70 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Bryndís Sigurðardóttir: Hjartaþelsbólga (endocarditis)
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um hjartaþelsbólgu eða endocarditis og viðmælandinn er Bryndís Sigurðardóttir, sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum. Þarf alltaf að vélindaóma? Hversu oft á að blóðrækta? Þessum spurningum ásamt fleirum er svarað í þætti dagsins. Enn fremur deilir Bryndís fjölmörgum klínískum perlum sem hlustendur mega ekki fyrir nokkra muni missa af!
Tue, 21 Dec 2021 - 1h 20min - 69 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Sigurdís Haraldsdóttir: Nýjungar í krabbameinslyfjameðferð
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um nýjungar í krabbameinslyfjameðferð og viðmælandinn er Sigurdís Haraldsdóttir, dósent og sérfræðingur í krabbameinslækningum. Hver er munurinn á marksæknum lyfjum og frumudrepandi lyfjum? Hvernig er ónæmiskerfinu beitt í nútíma krabbameinslyfjameðferð? Framtíð krabbameinslækninga er rædd og svo segir Sigurdís læknanemum af hverju þeir eiga að velja krabbameinslækningar!
Fri, 26 Nov 2021 - 44min - 68 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Davíð O. Arnar og Páll Torfi Önundarson: Blóðþynning
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um blóðþynningu og viðmælendur eru Davíð O. Arnar sérfræðingur í hjartalyflækningum og Páll Torfi Önundarson sérfræðingur í blóðlækningum. Ræddir eru kostir og gallar blóðþynningar með nýju lyfjunum (DOAC) í samanburði við warfarín. Þessi þáttur er annar í röðinni af þremur sem unnir eru í samstarfi við læknadeild Háskóla Íslands. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum, heldur utan um verkefnið.
Mon, 22 Nov 2021 - 53min - 67 - GEÐVARPIÐ // Dr. Helga Sif ræðir við geðhjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Sveinsdóttur
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fimmta þætti fær Helga Sif til sín geðhjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Sveinsdóttur, sem hefur fjögurra áratuga reynslu af faginu með sérstaka áherslu á samfélagstengda geðhjúkrun af ýmsu tagi. Helga Sif ræðir við Guðbjörgu um bakgrunn hennar og víðtæku reynslu af störfum, hér heima og víða erlendis. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.
Thu, 28 Oct 2021 - 56min - 66 - LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Anna Rut Sverrisdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fimmta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala er komið að mjög áhugaverðu spjalli við hina léttu, ljúfu og kátu ljósmóður Önnu Rut Sverrisdóttur. Hún deilir reynslu sinni af ljósmæðrastörfum í Bethlehem og segir ótrúlegar sögur af aðbúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá ferð sinni til vinnu frá Jerúsalem í gegnum varðstöðvar Ísraelshers, að frumlegum aðferðum við að laga rótsterkt arabískt kaffið sem var ómissandi á kaffistofu ljósmæðranna. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er einn af nokkrum, sem Legvarpið vinnur í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.
Tue, 5 Oct 2021 - 1h 08min - 65 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Arna Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon: Lyfjameðferð við sykursýki 2
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Í þessum þætti er fjallað um lyfjameðferð við sykursýki 2. Mörgum lyfjum er hægt að beita og sífellt bætast fleiri lyf við. Arna Guðmundsdóttir, sérfræðingur í innkirtlalækningum, segir frá hvernig lyfin verka og hvernig hægt er að velja rétta lyfið fyrir hvern og einn sjúkling. Þessi þáttur er sá fyrsti af þremur sem unnir eru í samstarfi við læknadeild. Munu þeir nýtast í kennslu í lyfjafræði á 3. ári við Háskóla Íslands. Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum, heldur utan um verkefnið og er jafnframt viðmælandi í þáttunum þremur.
Mon, 4 Oct 2021 - 47min - 64 - DAGÁLL LÆKNANEMANS // Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum: Klínískar lyfjaprófanir
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Magnús Karl Magnússon prófessor í lyfjafræði og sérfræðingur í blóðlækningum fjallar í þessum þætti um klínískar lyfjaprófanir. Í þættinum er ferill COVID bóluefna rakin frá tilraunastofunni að upphandleggjum landsmanna. Hvenær telst efni nógu öruggt til þess að hefja klínískar lyfjatilraunir í mönnum? Eru niðurstöður klínískra lyfjatilrauna yfirfæranlegar á viðkvæma hópa sem ekki tóku þátt í rannsókninni? Eru hægt að bera saman árangur bóluefna á milli rannsókna? Að lokum reiðir Magnús Karl fram glænýja tilgátu um tilurð blóðtappa af völdum adenóferjubóluefna, svo sem Janssen og Astra Zeneca. Allt þetta og meira til í þætti dagsins.
Wed, 23 Jun 2021 - 1h 07min - 63 - Brautryðjendur í hjúkrun // Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir ræðir við Mörtu Jóns Hjördísardóttur
Dr. Valgerður Lísa Sigurðardóttir sérfræðiljósmóðir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn var tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar 10.-12. maí 2021. Hún varði doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði árið 2020 og bar ritgerðin heitið "Neikvæð upplifun fæðingar og ljósmóðurmeðferð". "Brautryðjendur í hjúkrun" er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/braut-06
Thu, 10 Jun 2021 - 52min - 62 - GEÐVARPIÐ // Dr. Helga Sif ræðir við Vilborgu G., geðhjúkrunarfræðing og handleiðara
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum fjórða þætti fær Helga Sif til sín Vilborgu G., en hún er geðhjúkrunarfræðingur, fjölskyldufræðingur og handleiðari. Helga Sif og Vilborg ræða bakgrunn hennar og víðtæka reynslu og velta vöngum yfir því hvað gerir okkur að góðum meðferðaraðila, innihaldi og áhrifum meðferðarsambandsins sem og nauðsyn ígrundunar á eigin sjálfi til að geta veitt öðrum meðferð að réttum gæðum.
Mon, 21 Jun 2021 - 52min - 61 - Dagáll læknanemans: Agnar Bjarnason smitsjúkdómalæknir um lungnabólgu
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Í þessum þætti fá stjórnendurnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson til sín Agnar Bjarnason, smitsjúkdómalækni á Landspítala, og fara gaumgæfilega yfir lungnabólgu. Hvernig er lungnabólga unnin upp? Hvað er gott hrákasýni? Hver eru næstu skref ef sjúklingur svarar ekki meðferð? Allt þetta og meira til í þessum tilfellamiðaða þætti. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Þættirnir eru aðgengilegir á helstu samfélagsmiðlum Landspítala og einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Fri, 18 Jun 2021 - 1h 01min - 60 - UMBÓTAVARPIÐ // Guðbjörg Pálsdóttir og þrýstingssár + Amelia Samuel og Lyf án skaða (Medication Without Harm)
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí til að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Þessi fjórði þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. Guðbjörg Pálsdóttir sérfræðingur í hjúkrun segir frá þrýstingssáraverkefninu HAMUR og Amelia Samuel greinir frá vitundarvakningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar WHO sem hefur yfirskriftina "Lyf án skaða" eða "Medication Without Harm".
Sat, 29 May 2021 - 53min - 59 - UMBÓTAVARPIÐ // María Barbara sjúkraþjálfari, Bryndís hjúkrunarfræðingur og Sólrún Björk lungnalæknir
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí til að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Þriðji þáttur Umbótavarpsins fjallar um tvö umbótaverkefni. María Barbara Árnadóttir sjúkraþjálfari segir frá umbótaverkefni í hjartaendurhæfingu og þær Bryndís Halldórsdóttir sérfræðingur í hjúkrun og Sólrún Björk Rúnarsdóttir lungnalæknir ræða heimaöndunarvélateymi.
Fri, 28 May 2021 - 32min - 58 - UMBÓTAVARPIÐ // Guðrún Dóra Guðmannsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir og Konstantín Shcherbak
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið". Þessi annar þáttur Umbótavarpsins fjallar um þrjú umbótaverkefni. Guðrún Dóra Guðmannsdóttir greinir frá námskeiði fyrir ófaglært starfsfólk á öldrunardeildum, Ingibjörg Hjaltadóttir segir frá umfangsmiklu verkefni í fræðslu og menntun til að gera heilbrigðisþjónustuna á landsvísu öldrunarvænni og Konstantín Shcherbak segir frá GLASS BONES-gæðaverkefninu.
Wed, 26 May 2021 - 43min - 57 - UMBÓTAVARPIÐ // Auður Ketilsdóttir, Berglind Ósk Birgisdóttir og Brynja Ingadóttir
Umbótavika er haldin á Landspítala 25.–28. maí undir yfirskriftinni "Byggjum brýr". Markmiðið er að hvetja starfsfólk áfram í umbótastarfi og veita því innblástur um leið og sagt er með fjölbreytilegum hætti frá árangursríkum verkefnum. Af þessu tilefni ýttum við úr vör sérstakri þáttasyrpu undir yfirskriftinni "Umbótavarpið". Þessi fyrsti þáttur Umbótavarpsins fjallar um þrjú umbótaverkefni. Auður Ketilsdóttir greinir frá átaki í fræðslu til sjúklinga og starfsfólks, Berglind Ósk Birgisdóttir fjallar um endurhæfingu á meðferðardeildum og Brynja Ingadóttir segir frá Miðstöð sjúklingafræðslu. SIMPLECAST https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/umbotavarp-01
Tue, 25 May 2021 - 46min - 56 - GEÐVARPIÐ // Gísli Kort Kristófersson spjallar við Helgu Sif um ástarsamband hans við hjúkrun
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Í þessum þriðja þætti fær Helga Sif til sín geðhjúkrunarfræðinginn dr. Gísla Kort Kristófersson, sem starfar á Sjúkrahúsinu á Akureyri ásamt því að vera dósent við Háskólann á Akureyri og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Helga Sif og Gísli Kort ræða bakgrunn hans, velta vöngum yfir stöðu geðhjúkrunar í samfélaginu og fara yfir helstu verkefni hans í dag.
Fri, 21 May 2021 - 54min - 55 - LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Hólmfríður Garðarsdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fjórða þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Hólmfríði Garðarsdóttur ljósmóður. Hún hefur ferðast vítt og breitt um veröldina undanfarinn aldarfjórðung og starfað við fagið, meðal annars í Afganistan, Írak, Íran, Mósambík, Norður-Kóreu, Papúa Nýju-Gíneu, Súdan og Tansaníu. Hólmfríður ræðir í viðtalinu bakgrunn sinn og helstu viðfangsefni gegnum tíðina. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.
Sat, 15 May 2021 - 1h 45min - 54 - BRAUTRYÐJENDUR Í HJÚKRUN // Jakobína Rut Daníelsdóttir í heimsókn hjá Mörtu Jóns Hjördísardóttur
Sjúkraliðinn Jakobína Rut Daníelsdóttir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttasyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni, en þátturinn er tekinn upp í tilefni af Viku hjúkrunar. Jakobína Rut á að baki stórmerkan áratugaferil sem sjúkraliði og í hjúkrun, hefur unnið ötullega að langskólagöngu sinni og gegnir lykilhlutverki í réttindabaráttu og félagsmálum sjúkraliða. Í tilefni af afmælisdegi upphafskonu nútíma hjúkrunar, Florence Nightingale, hinn 12. maí er haldið upp á alþjóðadag hjúkrunar ár hvert. Vika hjúkrunar á Landspítala 2021 er lituð af samkomutakmörkunum og álagi heimsfaraldurs Covid-19 og er dagskrá hennar því að mestu bundin við stafræna umfjöllun um hjúkrun og viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á spítalanum.
Tue, 11 May 2021 - 36min - 53 - LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Björg Sigurðardóttir í heimsókn hjá Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þriðja þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Björgu Sigurðardóttur ljósmóður, sem hefur ferðast víða og starfað. Einnig fer Björg yfir bakgrunn sinn og helstu verkefni. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.
Mon, 3 May 2021 - 1h 22min - 52 - LEGVARPIÐ // Steinunn K. Zophoníasdóttir ræðir breytingaskeiðið við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum öðrum þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um breytingaskeiðið með samtali við Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður, sem skrifaði meistaraprófsritgerð um þetta merkilega tímabil í lífi kvenna.
Fri, 30 Apr 2021 - 1h 19min - 51 - HOW DO YOU LIKE ICELAND // Nurses Holly Gumz (co-host), Carmela Melisse Santa Maria and Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran
"How Do You Like Iceland?" is an independent mini-series within the Landspítali Podcast. For this episode we're having nurse Holly Gumz as co-host and her guests are fellow nurses Carmela Melisse Santa Maria and Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran who are both from the Philippines. The three of them discuss their background, reasons for moving to Iceland, the workplace and people at Landspítali, how they're adapting into the Icelandic society as well as answering the inevitable most perennial Icelandic question of all times: How do you like Iceland? Director of the Landspítali Podcast is Stefán Hrafn Hagalín but sound recording and editing is done by Ásvaldur Kristjánsson. Both work at the communications department of Landspítali. Hlaðvarp Landspítala birtir hér annan þáttinn í þáttasyrpunni "How Do You Like Iceland?" Það er gestastjórnandinn og hjúkrunarfræðingurinn Holly Gumz sem leiðir syrpuna og henni til halds og trausts eru Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson hjá samskiptadeild Landspítala. Í þessum öðrum þætti af How Do You Like Iceland eru gestir Holly kollegar hennar Carmela Melisse Santa Maria og Aleibutch Kerwin Ocampo Ladaran. Öll þrjú starfa þau sem hjúkrunarfræðingar hjá Landspítala. Forvitnast er um bakgrunn þremenninganna, hvers vegna þau völdu hjúkrunarfræði sem nám og starfsvettvang, ástæður þess að þau fluttu til Íslands, hvernig þeim líkar vinnustaðurinn, viðtökurnar hér og íslenskt samfélag almennt. https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/howdoyoulike-02
Thu, 29 Apr 2021 - 1h 15min - 50 - GEÐVARPIÐ // Bráðafasinn: Guðfinna Betty Hilmarsdóttir, Ína Rós Jóhannesdóttir og Jóhanna G. Þórisdóttir
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræddu í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Í þessum öðrum þætti er bráðafasi geðhjúkrunar hins vegar í aðalhlutverki. Í þættinum koma til liðs við Helgu Sif geðhjúkrunarfræðingarnir Ína Rós Jóhannesdóttir deildarstjóri móttökugeðdeildar, Jóhanna G. Þórisdóttir deildarstjóri bráðageðdeildar og og Guðfinna Betty Hilmarsdóttir aðstoðardeildarstjóri bráðageðdeildar. Það er Guðfinna Betty sem leiðir samtalið í þessum þætti.
Tue, 20 Apr 2021 - 40min - 49 - LEGVARPIÐ // Rut Vestmann ræðir um barneignir einhverfra við Sunnu Maríu Helgadóttur og Stefaníu Ósk Margeirsdóttur
"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fyrsta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala ræða Sunna María og Stefanía Ósk við Rut Vestmann um barneignir einhverfra.
Fri, 16 Apr 2021 - 1h 06min - 48 - GEÐVARPIÐ // Samskipti: Helga Sif Friðjónsdóttir, Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal og Halldóra Friðgerður Víðisdóttir
"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræða í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Í þessum fyrsta þætti fær Helga Sif til liðs við sig Sigurveigu Sigurjónsdóttur Mýrdal deildarstjóra á BUGL og Halldóru Friðgerði Víðisdóttur deildarstjóra á Laugarási sem leiðir samtalið í þessum þætti.
Thu, 15 Apr 2021 - 34min - 47 - HOW DO YOU LIKE ICELAND // Hjúkrunarfræðingarnir Holly Gumz (co-host), Sara Cervantes og Daniel Salter
Að þessu sinni fetar hlaðvarp Landspítala ótroðna slóð og ræsir nýja þáttasyrpu á ensku undir heitinu "How Do You Like Iceland?" Það er gestastjórnandinn og hjúkrunarfræðingurinn Holly Gumz sem leiðir syrpuna og henni til halds og trausts eru Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson hjá samskiptadeild Landspítala. Í þennan fyrsta þátt af How Do You Like Iceland? fékk Holly samlanda sína dr. Daniel Salter (sem er þó upphaflega frá Bretlandi) og Söru Cervantes. Öll þrjú starfa þau sem hjúkrunarfræðingar hjá Landspítala: Holly á heila-, tauga- og bæklunarskurðdeild B6 í Fossvogi, Daniel á sýkingavarnadeild við Hringbraut og Sara á öldrunarlækningadeildum Landakots. Forvitnast er um bakgrunn þremenninganna, hvers vegna þau völdu hjúkrunarfræði sem nám og starfsvettvang, ástæður þess að þau fluttu til Íslands, hvernig þeim líkar vinnustaðurinn, viðtökurnar hér og íslenskt samfélag almennt. ENGLISH: For this episode of the Landspítali (University Hospital of Iceland) podcast we're having nurse Holly Gumz as co-host and she's going to interview her fellow Americans Daniel Salter (originally from the UK though) and Sara Cervantes. All three of them work at Landspítali as nurses. Holly on the neurosurgical and orthopedic ward B6, Daniel in the infection control department and Sara is a community health and geriatrics nurse at the Landakot geriatric rehabilitation unit. The three of them discuss their background, reasons for moving to Iceland, the workplace and people at Landspítali, how they're adapting into the Icelandic society as well as answering the inevitable most perennial Icelandic question of all times: How do you like Iceland? Host of the Landspítali Podcast is Stefán Hrafn Hagalín, sound recording and editing is done by Ásvaldur Kristjánsson. Both work at the Communications Department of Landspítali.
Tue, 23 Mar 2021 - 1h 23min - 46 - Dagáll læknanemans: Berglind Bergmann og Gerður Gröndal - Tilfellamiðuð gigt
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti koma í heimsókn þær Berglind Bergmann sérnámslæknir í lyflækningum og Gerður Gröndal sérfræðingur í gigtarlækningum og leysa tilfelli. Í tilfellinu er komið víða við, meðal annars í sögutöku í gigtarsjúkdómum, kerfakönnun sjálfsónæmissjúkdóma og mynstri liðbólga. Einnig er góð umfjöllun um gigtarprufur, hvað á að panta og hvað segja þær okkur? Hlustaðu til enda til fá greininguna!
Fri, 12 Mar 2021 - 56min - 45 - Brautryðjendur í hjúkrun: Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir
Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir er gestur Mörtu Jóns Hjördísardóttur í þáttsyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni. Helga Sif er geðhjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hjá Landspítala. Hún var meðal þeirra fjórtán Íslendinga, sem forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag. Helga Sif hlaut riddarakross fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma. Hún hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.
Thu, 18 Feb 2021 - 1h 15min - 44 - Dagáll læknanemans: Gunnar Guðmundsson - Langvinn lungnateppa
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti ræðir Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í lungnalækningum, um langvinna lungnateppu. Hvernig á að meðhöndla versnanir? Hvenær á að taka blóðgös? Gunnar fer einnig yfir langtímameðferð langvinnrar lungnateppu og hvaða þættir draga úr framgangi sjúkdómsins. Í lokin eru fylgivkillar langvinnrar lungnateppu og horfur ræddar.
Tue, 16 Feb 2021 - 1h 05min - 43 - Dagáll læknanemans: Hjálmar Ragnar Agnarsson - Langvinn hjartabilun
Í þessum þætti leiðir Hjálmar Ragnar Agnarsson, héraðslæknir og aðjúnkt við Háskóla Íslands, okkur gegnum langvinna hjartabilun. Hver er munurinnn á HFrEF og HFpEF? Hvernig á að haga vökvagjöf í hjartabiluðum einstaklingum? Hvernig skal meðferðinni háttað og eru einhver lyf mikilvægari en önnur í þeirri meðferð? Að lokum er farið yfir nýjungar í hjartabilunarmeðferð, þar á meðal SGLT2 hemla og fleira.
Tue, 26 Jan 2021 - 50min - 42 - Dagáll læknanemanns: Sæmundur Rögnvaldsson - Sýklalyf og fallhlífastökk
Í þessum þætti af Dagál Læknanemans eru rannsóknir í fyrirrúmi. Sæmundur Rögnvaldsson, doktorsnemi og velunnari hlaðvarpsins, ræðir annars vegar um noktun sýklalyfja við meðhöndlun þvagfærasýkinga og hins vegar fyrstu framsýnu slembi slembivalsrannsókn sinnar tegundar á virkni fallhlífa í fallhlífastökkum. Farið er yfir hvernig nálgast skal lesningu greina, hvað ber að varast og hvenær spurningar um gæði rannsóknarinnar ættu að vakna! Allt þetta og margt fleira í þætti vikunnar!
Tue, 19 Jan 2021 - 44min - 41 - Dagáll læknanemans: Helga Ágústa Sigurjónsdóttir - Kortisól
"Dagáll læknanemans" er hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innkirtlalækningum, fræðir okkur í þessum þætti um kortisól. Er kortisól mikilvægasta hormón líkamans og hvað gerir það eiginlega? Við ræðum stýriferla kortisóls og nýrnahetturnar sem koma þar við sögu. Hvað einkennir annars vegar kortisól skort og hins vegar ofgnótt kortisóls? Einnig ræðum við meðferð og hvenær skuli gefa svokallaða "stress stera". Að lokum: Hvernig tengirðu saman kortisól, lakkrís og Guinness? Allt þetta og margt fleira í þætti dagsins! Stjórnendur Dagáls læknanemans eru læknanemarnir Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Mon, 7 Dec 2020 - 1h 10min - 40 - Brautryðjendur í hjúkrun: Ásgeir Valur Snorrason
Ásgeir Valur Snorrason er gestur Mörtu Jónsdóttur í þáttsyrpunni "Brautryðjendur í hjúkrun" að þessu sinni. Ásgeir Valur er fæddur í Reykjavík árið 1961 og ólst upp í Kópavogi. Hann útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1988, lauk námi í svæfingahjúkrun 1990 og meistaranámi í hjúkrun frá Háskólanum á Akureyri 2002. Ásgeir Valur hefur áratugum saman unnið að kennslu og verið frumkvöðull á faginu á ýmsum sviðum, leiðbeint í herminámi frá 2008 og kennt bæði endurlífgun og svæfingahjúkrun. Ásgeir Valur hefur starfað við svæfingahjúkrun í þrjá áratugi hjá Landspítala og forverum hans. SIMPLECAST https://landspitalihladvarp.simplecast.fm/braut-03
Tue, 10 Nov 2020 - 1h 04min - 39 - Dagáll læknanemans: Guðrún Dóra Bjarnadóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir - Óráð
Guðrún Dóra Bjarnadóttir sérfræðingur í geðlækningum og Anna Kristín Gunnarsdóttir sérnámslæknir í geðlækningum ræða óráð. Af hverju lendir fólk í óráði og hvernig á að bregðast við? Farið er gegnum helstu birtingarmyndir óráðs og einkenni. Hverju leitum við eftir við sögu og skoðun og hvað er fólgið í góðri geðskoðun? Einnig kynnum við til leiks ýmsa matslista sem geta aðstoðað við mat og greiningu. Þá ræðum við ítarlega orsakir óráðs og viðeigandi rannsóknir. Loks er farið yfir gildi fyrirbyggjandi meðferðar og mikilvægi þess að bregðast hratt og rétt við þegar einstaklingur fer í óráð. Til frekari glöggvunar má nálgast góðar upplýsingar á vef Landspítala. https://www.landspitali.is/orad
Thu, 19 Nov 2020 - 1h 02min - 38 - Dagáll læknanemanns: Sigurður Guðmundsson - Sýkingar í miðtaugakerfi
Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum og fyrrverandi landlæknir, leiðir hlustendur gegnum sýkingar í miðtaugakerfi (MTK) í bland við ýmsar klínískar perlur. Hvernig birtast til dæmis sýkingar í MTK, hvernig er greint á milli þeirra og hvernig eru þær meðhöndlaðar? Þá uppljóstrar Sigurður um sitt uppáhalds sýklalyf! Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Tue, 10 Nov 2020 - 1h 19min - 37 - Dagáll læknanemans: Karl Andersen - Háþrýstingur
Hvað er háþrýstingur og hvaða fylgikvilla hefur hann í för með sér? Hver eru meðferðarmörkin? Hvaða lyfjum er best að beita og hvenær á að gruna afleiddan háþrýsting (e. seconcondary)? Karl Andersen hjartalæknir, læknirinn sem hatar sjúkdóma, svarar þessum spurningum og mörgum fleiri í þætti dagsins. Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Wed, 4 Nov 2020 - 1h 00min - 36 - Dagáll læknanemans: Þórir Einarsson Long - Hýpónatremía
Þórir Einarsson Long sérnámslæknir í almennum lyflæknir ræðir hýpónatremíu í eitt skipti fyrir öll. Hvað er hýpónatremía og hvað eigum við að lesa í það að ef sjúklingur mælist með of lágt natríum? Þórir ræðir hvaða stýrikerfi í líkamanum koma hér við sögu og fer í kerfisbundið í gegnum uppvinnslu og meðferð. Hvað ber að varast og hvernig forðum við sjúklingnum frá natríumbjargbrúninni? Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Tue, 27 Oct 2020 - 1h 25min - 35 - Dagáll læknanemans: Tómas Þór Ágústsson - Sykursýki 2
Tómas Þór Ágústsson sérfræðingur í almennum lyflækningum og innkirtlalækningum ræðir Sykursýki 2. Hver er munurinn á sykursýki týpu 1 og 2 og hvaða fylgikvilla hefur sykursýkin í för með sér? Hver eru markmið meðferðar? Hvernig er best að haga meðferð til þess að ná sem mestum árangri? Þá fræðir Tómas okkur um sérnám á Landspítala og hvernig hægt er að bera kennsl á Diskusfiska í hópi gullfiska. Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Wed, 21 Oct 2020 - 1h 15min - 34 - Dagáll læknanemans: Helga Margrét Skúladóttir - Gáttatif
Í þætti vikunnar ræðir Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir gáttatif frá ýmsum hliðum. Samtalið hefst á almennri umræðu um einkenni gáttatifs og hverju er leitað eftir við skoðun sjúklinga. Þá eru áhættuþættir gáttatifs ræddir og hvernig þeir stuðla að meinmyndun gáttatifs. Farið yfir hvernig gáttatif er flokkað. Því næst er greining og meðferð sjúkdómsins rætt. Hvað er átt við með “rate vs. rhythm control” og hverju á að beita? Hvernig best er að hægja á sjúklingum í hröðu gáttatifi og hverjum á að rafvenda. Þá er farið yfir langtímahorfur og fylgivkilla gáttatifs og hvernig þeir eru meðhöndlaðir. Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Tue, 13 Oct 2020 - 58min - 33 - Dagáll læknanemans: Berglind Bergmann Sverrisdóttir - Uppvinnsla á hita
Berglind Bergmann Sverrisdóttir sérnámslæknir kemur í Dagál læknanemans og ræðir hita án uppruna. Hverjar eru helstu ástæður hita og hvernig eru uppvinnslu hagað? Hvernig er hiti án uppruna skilgreindur? Hvaða rannsóknum er beitt við leita að fókus hitans? Berglind uppljóstrar einnig um uppáhaldsréttinn sinn í "Landspítala Mathöll". Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Tue, 6 Oct 2020 - 1h 01min - 32 - Dagáll læknanemans: Hrönn Harðardóttir og Signý Vala Sveinsdóttir - Blóðsegarek til lungna og bláæðasegasjúkdómur
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Hrönn Harðardóttir, sérfræðingur í lungnalækningum, og Signý Vala Sveinsdóttir, sérfræðingur í blóðlækningum, ræða blóðsegarek til lungna og bláæðasegasjúkdóm í þætti vikunnar. Kynnt eru til leiks ýmis tól sem geta aðstoðað við greiningu og meðferð. Hvenær á að taka d-dímer, hvernig högum við blóðþynningu og hvenær á að beita segaleysingu? Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Mon, 28 Sep 2020 - 1h 15min - 31 - Dagáll læknanemans: Albert Sigurðsson - Blóðlækningar og blóðleysi
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Að þessu sinni er talað við Albert Sigurðsson sérnámslækni um blóðlækningar, meðal annars blóðleysi, ástæður þess og mismunagreiningar. Einnig er spurt: Hvernig nýtist MCV? Hvað eru netfrumur? Hvort er vandamálið í mergnum eða í blóðinu sjálfu og hvenær á að taka blóðstrok? Albert ræðir jafnframt tónlistarferil sinn á tímum Covid-109. Allt þetta og margt fleira í þætti vikunnar.
Wed, 23 Sep 2020 - 1h 21min - 30 - Dagáll læknanemans: Sunna Snædal - Bráður nýrnaskaði
"Dagáll læknanemans" er splunkunýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema!) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klíník. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti ræðir Sunna Snædal, sérfræðingur í nýrnalækningum og almennum lyflækningum, um bráðan nýrnaskaða. Hvað er bráður nýrnaskaði, hvaða lyf þarf að stöðva og hverjar eru ábendingar fyrir skilun? Hvernig verður maður vinur afsteypanna? Sunna afhjúpar einnig uppáhalds nýrnavandamálið sitt.
Mon, 14 Sep 2020 - 54min - 29 - Dagáll læknanemans: Hjálmar Ragnar Agnarsson og bráð hjartabilun
Dagáll læknanemans er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klíník. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Í þessum þætti leiðir Hjálmar Ragnar Agnarsson, sérnámslæknir á Landspítala, hlustendur gegnum bráða hjartabilun frá A til Ö og svarar því hvort hann sé frá Vestamannaeyjum.
Thu, 10 Sep 2020 - 53min - 28 - Erla Dögg Ragnarsdóttir og Steinunn Erla Thorlacius: Stjórnendur fjarheilbrigðisþjónustu og röntgendeildar segja frá fjölbreyttum verkefnum í Covid-19
Starfsemi Landspítala tók stökkbreytingum í Covid-19-faraldrinum. Erla Dögg Ragnarsdóttir er deildarstjóri á göngudeild 10-E á Landspítala og Steinunn Erla Thorlacius er deildarstjóri röntgendeildar. 10-E sér um göngudeildarþjónustu við skjólstæðinga sem tilheyra sérgreinum kviðarhols- og brjóstaskurðlækninga, brjóstholsskurðlækninga, nýrna- og meltingarlækninga og ígræðslu- og verkjateyma. Þegar hægðist um verkefni 10-E vegna faraldursins flutti Erla Dögg sig yfir til Covid-19-göngudeildar Landspítala og stýrði þar hjúkrunarhluta síma- og fjarheilbrigðisþjónustu við sjúklinga. Í verkahring röntgendeildar Steinunnar Erlu eru myndgreiningarrannsóknir og rannsóknarinngrip svo sem röntgenrannsóknir, tölvusneiðmyndir, segulómun, ísótópar, jáeindaskanni og ómskoðanir. Röntgendeild gegndi lykilhlutverki í að sinna Covid-sjúklingum í faraldrinum og þurfti að aðlagast hratt breyttum aðstæðum, öðruvísi vaktaálagi og nýjum kröfum um færanleika á tækjabúnaðar. Erla Dögg og Steinunn Erla segja hér frá viðamiklum verkefnum sínum í faraldrinum, ásamt því að gefa okkur innsýn í bakgrunn sinn, en báðar urðu stjórnendur bráðungar og hafa ólíkar áherslur. Önnur er hjúkrunarfræðingur að upplagi meðan hin er geislafræðingur með sér brennandi áhuga á markaðsmálum. Gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala, sem dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast Covid-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Mon, 25 May 2020 - 58min - 27 - Ragnar Freyr Ingvarsson yfirlæknir og Sólveig Hólmfríður Sverrisdóttir deildarstjóri: Covid-19-göngudeild Landspítala - Uppsetning og verkefni
Sérstök Covid-19-göngudeild Landspítala og þjónustan þar, ásamt öflugri fjarheilbrigðisþjónustu, gegndi lykilhlutverki í vel heppnuðum undirbúningi og viðbragði hér á landi gagnvart Covid-19-faraldrinum. Deildin er raunar talin einstæð á heimsvísu og þótti halda utan um krefjandi sjúklingahóp með afar farsælum hætti, en hún hefur nú lokið störfum. Yfirlæknir göngudeildarinnar var Ragnar Freyr Ingvarsson og deildarstjóri Sólveig Hólmfríður Sverrisdóttir. Hér er rætt við Ragnar Frey og Sólveigu, sem segja frá verkefnum sínum á göngudeildinni, ásamt því að gefa okkur innsýn í bakgrunn sinn. Gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir.
Mon, 25 May 2020 - 1h 32min - 26 - Yoga Nidra með Lísu Briem
Yoga nidra er leidd djúpslökun sem losar um streitu, bætir svefn, vinnur gegn neikvæðum hugsanamynstrum og bætir jafnvægi. Nidra þýðir svefn og yoga einingu og þannig merkir "yoga nidra" í rauninni vakandi svefn þar sem vitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í kyrrð. Þessi aðferð getur hjálpað til við að losa um þá spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans. Samskiptadeild laumaði sér á dögunum í jógatíma hjá Guðnýju Elísabetu Briem Óladóttur, sem flestir á Landspítala þekkja betur sem Lísu Briem. Hún starfar á skrifstofu forstjóra í Skaftahlíð og hefur þar ýmis verkefni á sinni könnu, en brýtur upp vinnudaginn vikulega og heldur jógatíma fyrir vinnufélagana í hádeginu. Jógatíminn var haldinn í hermisetri menntadeildar í Skafathlíð og eins og glögglega má sjá var mannskapurinn í tímanum afskaplega slakur og vær. Líka æfingadúkkan í rúminu! Þess má geta að sálfræðingar geðþjónustu og mannauðsráðgjafar hjá Landspítala vinna nú að verkefninu "Saman gegnum Kófið" fyrir starfsfólk spítalans. Það felst meðal annars í því að safna saman á einn stað fræðsluefni, uppbyggilegum bjargráðum og leiðum til að vinna með það álag fyrir líkama og sál og krefjandi aðstæður sem framundan er í eftirmála Covid-19. Jógahlaðvarpið með Lísu Briem talar skemmtilega við þetta verkefni. Sjá nánar: https://www.landspitali.is/samangegnumkofid Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
Mon, 25 May 2020 - 33min - 25 - Brautryðjendur í hjúkrun: Sigríður Gunnarsdóttir
Vika hjúkrunar er haldin árlega á Landspítala kringum 12. maí, fæðingardag Florence Nightingale (1820) og alþjóðlegan dag hjúkrunarfræðinga. Að þessu sinni var hún haldin 11.-15. maí. Í tilefni af Viku hjúkrunar ræstum við hlaðvarpssyrpuna "Brautryðjendur í hjúkrun" og annar viðmælandinn þar er Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala. Gestastjórnandi er hjúkrunarfræðingurinn Marta Jónsdóttir, sem er formaður hjúkrunarráðs Landspítala. Sigríður segir í hlaðvarpinu frá sjálfri sér, starfsferlinum og verkefnum sínum í dag.
Wed, 13 May 2020 - 39min - 24 - Brautryðjendur í hjúkrun: Anna Gyða Gunnlaugsdóttir
Vika hjúkrunar er haldin árlega á Landspítala kringum 12. maí, fæðingardag Florence Nightingale (1820) og alþjóðlegan dag hjúkrunarfræðinga. Að þessu sinni er vikan haldin 11.-15. maí. Í tilefni af Viku hjúkrunar ræsum við hérna hlaðvarpssyrpuna "Brautryðjendur í hjúkrun" og fyrsti viðmælandinn er Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmyndari sem á ótrúlega fjölbreyttan feril að baki í mörgum löndum (Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Grænlandi og Eþíópíu), en hún hefur meðal annars sérhæft sig í verkjameðferð. Gestastjórnendur eru hjúkrunarfræðingarnir Marta Jónsdóttir formaður hjúkrunarráðs Landspítala og Dagrún Ása Ólafsdóttir aðstoðardeildarstjóri bæklunarskurðdeildar B5.
Wed, 13 May 2020 - 58min - 23 - Ólafur Guðlaugsson yfirlæknir sýkingavarnadeildar: Undirbúningur og starfsemi Landspítala í COVID-19-faraldrinum
Ólafur Guðlaugsson hefur verið yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala frá árinu 2003 og samhliða gegnt stöðu við smitsjúkdómadeild spítalans. Deildirnar spiluðu ótvíræða lykilrullu í undirbúningi, viðbrögðum og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ólafur sérmenntaði sig vestanhafs í því fagi og krækti sér þá að auki í meistaragráðu í lýðheilsufræðum. Hann er gestur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir.
Tue, 5 May 2020 - 1h 10min - 22 - Ásdís Elfarsdóttir Jelle, deildarstjóri og hjúkrunarfræðingur: Starfsemi sýkingavarnadeildar Landspítala á tímum COVID-19
Hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Elfarsdóttir Jelle er deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala, sem hefur gegnt algjöru lykilhlutverki í undirbúningi og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ádís er gestur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Hún hefur unnið innan heilbrigðiskerfisins frá árinu 1980 og sinnt þar fjölbreyttum störfum. Sýkingavarnadeild tilheyrir sviði framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Landspítali dælir þessar vikurnar út djúpum og löngum hlaðvörpum sem tengjast COVID-19. Verkefnið snýst um að tala við lykilfólk spítalans í faraldrinum á mismunandi sviðum og skrásetja frásagnir þess fyrir spjöld sögunnar í ítarlegu máli til gagns og lærdóms þegar fram í sækir.
Mon, 4 May 2020 - 1h 08min - 21 - Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur: Starfsemi sýkla- og veirufræðideildar Landspítala á tímum COVID-19
Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur eru gestir Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Freyja og Máney starfa báðar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Mikið hefur mætt á veirufræðihluta deildarinnar í COVID-19 faraldrinum og vinnudagarnir lengst með margföldu álagi við greiningar á sýnum vegna COVID-19. Starfsfólki var fjölgað í faraldrinum og mönnun við greiningarvinnu styrkt, ásamt því sem tækjabúnaður var bættur. Freyja og Máney segja okkur hér frá vinnunni á deildinni í faraldrinum, ásamt því að greina frá bakgrunni sínum og starfsferli.
Wed, 29 Apr 2020 - 57min - 20 - Berglind Guðrún Chu, sérfræðingur í smitsjúkdómahjúkrun: Hjúkrun og verkefni hjúkrunarfræðinga á smitsjúkdómadeild á tímum COVID-19
Berglind Guðrún Chu er sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma. Hún veitir hér hlustendum Hlaðvarps Landspítala innsýn í starfsemi A7 smitsjúkdómadeildar á tímum COVID-19. Það er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir sem ræðir við Berglindi, ásamt Stefáni Hrafni Hagalín, deildarstjóra samskiptadeildar. Farið er yfir helstu ráðstafnir og verkefni smitsjúkdómadeildar og vöngum velt yfir hjúkrun á þessum viðsjárverðu tímum. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Thu, 23 Apr 2020 - 1h 04min - 19 - Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar: COVID-19 faraldurinn og víðtæk áhrif hans á starfsemi Landspítala
Már Kristjánsson er yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala og hefur gegnt lykilhlutverki í undirbúningi, vibrögðum og starfsemi Landspítala kringum COVID19-faraldurinn. Hér ræðir Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir við Má, ásamt Stefáni Hrafni Hagalín, deildarstjóra samskiptadeildar. Tæpt er á bakgrunni beggja læknanna, en áherslan er þó á Má sem á einstaklega fjölbreyttan og farsælan feril að baki, bæði sem læknir og stjórnandi í faginu. Már hugsar með sérstöku þakklæti til mikilvægra mótunarára á Fáskrúðsfirði þar sem hann starfaði um tveggja ára skeið sem nýútskrifaður læknir. Farið er yfir helstu ráðstafnir og verkefni á Landspítala vegna faraldursins og vöngum velt yfir einkennum veirunnar, lyfjaþróun og samfélagslegum áhrifum. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Tue, 21 Apr 2020 - 1h 50min - 18 - Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal
Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Á Landspítala starfa yfir 600 sjúkraliðar, en á landinu öllu eru um 4.000 manns með sjúkraliðamenntun og þar af eru 2.100 manns starfandi sem slíkir. Sjúkraliðar eru næststærsta heilbrigðisstétt landsins og starfa á öllum heilbrigðisstofnunum; sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, forvarnar- og endurhæfingarstofnunum, lækna- og rannsóknarstofum og í heimahjúkrun. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Sandra hefur forvitnilegan bakgrunn, en hún sat á Alþingi um skeið, er heitur aðdáandi knattspyrnuliðsins Arsenal, Hafnfirðingur að uppruna og sótti sér mannsefni norður yfir heiðar.
Fri, 6 Dec 2019 - 35min - 17 - Anna Sigríður Guðnadóttir og Inga Ágústsdóttir: Heilbrigðisvísindabókasafnið, MR, stjórnmálaþátttakan og Íslandsmetið í langstökki án atrennu
Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru tveir starfsmenn Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands, þær Anna Sigríður Guðnadóttir verkefnastjóri safnsins og Inga Ágústsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur. Við sögu koma safnið, bakgrunnur Önnu Sigríðar og Ingu og mikilvægi virkrar þátttöku í þjóðmálaumræðunni. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem tekur viðtalið. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Markmið Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands er að veita starfsfólki spítalans sem og nemendum og kennurum við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans aðgang að þeim vísindalegu og klínísku upplýsingum og þekkingu sem það þarf í námi og starfi. Þjónusta bókasafnsins er nokkuð víðtæk og stendur ekki bara starfsfólki spítalans og Háskólans til boða, heldur einnig almenningi; sér í lagi sjúklingum og aðstandendum þeirra. Þess má geta að Heilbrigðisvísindabókasafnið er staðsett í Eirbergi í Landspítalaþorpinu við Hringbraut. Það er opið alla virka daga frá klukkan 8 til 16. Síminn er 543 1450. Smelltu hérna til að skoða vefsvæði safnsins: https://bokasafn.landspitali.is/forsida/
Sun, 10 Nov 2019 - 58min - 16 - Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir: Tónlistin, blakið, fjölskyldan og og nýja móttökumiðstöðin fyrir starfsfólk Landspítala
Gestir hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru þær Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir. Tónlistarkonan Bella er úr Bökkunum, en blakarinn Árný er frá Ólafsfirði. Báðar eru verkefnastjórar hjá skrifstofu mannauðsmála og menntaðar í sálfræði með framhaldsnám í mannauðsstjórnun. Umræðuefnin eru bakgrunnur þeirra, helstu verkefni á Landspítala og splunkuný móttökumiðstöð fyrir nýtt starfsfólk spítalans, en um 1.500 manns hefja störf árlega á þessum 6.000 manna vinnustað. Föstudaginn 1. nóvember var sem sagt opnuð móttökumiðstöð fyrir nýtt starfsfólk Landspítala og er hún til að húsa að Skaftahlíð 24 í Reykjavík. Markmiðið með móttökumiðstöðinni er meðal annars að safna á einn stað miðlægri þjónustu við nýtt starfsfólk, þannig að það mæti á sínar einingar betur undirbúið til starfa en áður hefur verið. Í móttökumiðstöðinni verða ýmis praktísk mál afgreidd, svo sem myndataka, auðkenniskort og aðgangsmál, ásamt aðalatriðum sem varða upplýsingatækni og helstu kerfi, auk þess sem starfsmenn hitta starfsmannahjúkrunarfræðinga sem fara yfir bólusetningar og meta þörf fyrir frekari skimun, fá almenna nýliðafræðslu og skoða fjölmörg myndskeið um starfsemina. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Arabellu og Árnýju Ósk. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vefsvæðum og samfélagsmiðlum spítalans, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Thu, 31 Oct 2019 - 37min - 15 - Hanna Kristín Guðjónsdóttir: Hjúkrunarfræðingur og eðalnörd - Alin upp á fjöllum, en er með annan fótinn í Amsterdam í seinni tíð
Hanna Kristín Guðjónsdóttir er fædd í Kópavogi og alin upp í Reykjavík, en þó ekki síður inni á hálendinu þar sem hún eyddi drjúgum hluta frumbernskunnar. Hanna Kristín er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir með meistaragráðu í gagnagreiningu og upplýsingatækni. Hún er verkefnastjóri hjá Landspítala í dag, annars vegar í gæðadeild og hins vegar í heilbrigðis- og upplýsingatæknideild (HUT).
Wed, 9 Oct 2019 - 35min - 14 - Bergþóra Baldursdóttir: Sjúkraþjálfun og lífsbjargandi byltuvarnir
Dr. Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari segir frá uppvextinum í Smáíbúðahverfinu og hvers vegna hún valdi sjúkraþjálfun á sínum tíma, en hótelstýra í Kaupmannahöfn átti þar hlut að máli. Í hlaðvarpinu veitir Bergþóra hlustendum meðal annars góð ráð til að bæta jafnvægi með auðveldum skynörvandi æfingum við allra hæfi.
Mon, 7 Oct 2019 - 41min - 13 - Bára og Berglind : Vinnuvernd, móttökumiðstöð og önnur risaverkefni hjá mannauðssviði Landspítala á haustönn 2019
Stærstu verkefni mannauðssviðs Landspítala á haustönn 2019 lúta að október sem mánuði vinnuverndar, jafnlaunavottun, samskiptasáttmála, viðverustefna, vellíðan í vaktavinnu og stofnun miðlægrar móttökustöðvar í Skaftahlíð fyrir nýtt starfsfólk Landspítala, en sú tala nemur um 1.500 manns ár hvert á þessum vinnustað 6.000 manna. Einnig er núna hugað sérstaklega að þjálfun starfsfólks af erlendu bergi brotnu. Stefnukönnun, stjórnendamat, aðhaldsaðgerðir, stjórnendaþjálfun, átök á vinnumarkaði og skipuritsbreytingar eru sömuleiðis á dagskrá. Að ógleymdri inflúensunni. Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru Bára Hildur Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá mannauðssviði og Berglind Helgadóttir starfsmannasjúkraþjálfari og verkefnastjóri hjá sama sviði. Bára Hildur og Berglind fara hérna yfir þessi risavöxnu verkefni. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við þær stöllur. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Tue, 1 Oct 2019 - 39min - 12 - Ósk Sigurðardóttir: Verkefnastjóri og iðjuþjálfi sem leggur stund á nám við Oxford og þróar aðgengisapp í frístundum
Ósk Sigurðardóttir er verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala, sem hefur verið drifkrafturinn í umbótavegferð Landspítala undanfarin ár og byggir að miklu leyti á straumlínustjórnun (lean). Ósk hefur átt langan og farsælan feril á Landspítala, fyrst sem iðþjuþjálfi en síðustu árin sem verkefnastjóri. Hún státar nú þegar af nokkrum háskólagráðum og vinnur í augnablikinu að einni til viðbótar við Oxford-háskóla. Samhliða rekur Ósk lítið hugbúnaðarfyrirtæki í hjáverkum og þróar þar app eða smáforrit sem heitir TravAble og skráir aðgengi um víða veröld; appið er nú þegar með notendur í 33 löndum. Ef Ósk gæti eflt einn þátt í starfsemi Landspítala, þá myndi hún hlúa sérstaklega að þróun innan spítalans hjá sérstöku nýsköpunarsetri. Ósk fer hér í stuttu máli yfir tilþrifamikinn feril í menntun og starfi -- og segir okkur í leiðinni smávegis frá sjálfri sér.
Tue, 1 Oct 2019 - 48min - 11 - Keli ljósmyndari: Ekki bara fjallgöngur, peningasmygl og stríðsátök, heldur líka Mogginn, klínískar myndatökur og hugsjónastarf
Þorkell Þorkelsson er ljósmyndari Landspítala. Alltaf kallaður Keli. Í hlaðvarpi Landspítala segir okkar maður frá því hvernig hann myndaði bumbur 4 ára að aldri, gekk sem táningur á Mont Blanc í strigaskóm og fékk seinna starfsfólk Moggans til að smygla fyrir sig dollurum í ársskýrslu Seðlabankans til Afríku. Keli hefur átt viðburðaríkan starfsferil með óteljandi hápunkta. Hann hefur myndað jarðarfarir glæpamanna á Írlandi og skrásett hjálparstarf og stríðsátök víða um veröld. Hin síðari ár hefur hann meðal annars flogið með myndasmiði til Indlands, Kambódíu og Madagaskar. Kappinn tilheyrir skipulagslega vísindadeild, sem er á sviði framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Helstu verkefni hans á Landspítala lúta að klínískum myndatökum, en samhliða vinnur hann talsvert með samskiptadeild við að mynda viðburði, starfsemi og mannauð spítalans með ýmsum hætti. Hann skautar hérna yfir ferilinn og segir okkur í leiðinni smávegis frá manninum bak við linsuna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Kela. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Wed, 18 Sep 2019 - 1h 08min - 10 - Tómas Þór: Framhaldsmenntun, sykursýki, neikvæðni og skrautfiskar
Tómas Þór Ágústsson er sérfræðingur í lyf- og innkirtlalækningum og formaður framhaldsmenntunarráðs lækninga á Landspítala. Tómas Þór ræðir hér sérgrein sína og verkefnin hjá ráðinu, ásamt því að velta vöngum yfir neikvæðri umræðu um framúrskarandi heilbrigðiskerfi og Landspítala, sem hann segir frábæran vinnustað. Að endingu segir hann frá ástríðu sinni: skrautfiskaræktun. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Tómas Þór. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Fri, 30 Aug 2019 - 1h 13min - 9 - Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Andri Konráðsson, Gylfi Ólafsson og Kristjana Milla Snorradóttir
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sér um alhliða heilbrigðisþjónustu í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eða nánar tiltekið Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Um er að ræða sjúkrahús, heilsugæslur og öldrunarþjónustu, sem saman mynda stærsta einstaka vinnustað Vestfjarða með 250 starfsmenn. "Sjúkrahús allra landsmanna" var yfirskrift ársfundar Landspítala vorið 2019, en þar var meðal annars fjallað um aukið samstarf og vilja til meiri samþættingar í íslenska heilbrigðiskerfinu. Í þeim anda brugðu útsendarar fréttastofu Landspítala sér vestur á firði á dögunum í þeim erindagjörðum að taka upp hlaðvarp og framleiða nokkrar fréttir um starfsemi hinnar framsæknu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Þau Andri Konráðsson framkvæmdastjóri lækninga, Gylfi Ólafsson forstjóri og Kristjana Milla Snorradóttir mannauðs- og rekstrarstjóri sem segja hér frá vinnustaðnum og verkefnum hans, ásamt því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Andra, Gylfa og Millu. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.
Wed, 12 Jun 2019 - 1h 02min - 8 - Samskiptasáttmáli Landspítala - Ásta Bjarnadóttir og Hulda Dóra Styrmisdóttir
Mannauðssvið Landspítala hefur undanfarin misseri unnið hörðum höndum að innleiðingu samskiptasáttmála, sem 700 starfsmenn spítalans þróuðu á 50 vinnufundum. Tilgangur sáttmálans er að efla samvinnu og styrkja virðingu og öryggi í samskiptum og þjónustu innan spítalans. Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs og Hulda Dóra Styrmisdóttir verkefnastjóri hjá sviðinu segja hér frá innleiðingunni og stilla sér inn á sviðið með því að gefa smávegis innsýn í bakgrunn sinn og uppruna. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Ástu og Huldu Dóru. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Vefsvæði samskiptasáttmálans með ítarlegu efni, bæklingum og veggspjöldum er að finna hérna: http://www.landspitali.is/samskiptasattmali
Tue, 7 May 2019 - 53min - 7 - Vellíðan í vaktavinnu - Bára Hildur Jóhannsdóttir og Berglind Helgadóttir
Mannauðssvið Landspítala hefur núna ræst verkefnið "Vellíðan í vaktavinnu". Markmið þess er að bæta vinnuskipulag og niðurröðun vakta, styrkja gæði vaktaáætlana og auka vitund starfsfólks um þætti, sem dregið geta úr vinnutengdu álagi og eflt heilsu og vellíðan. Inn í fræðsluna koma atriði á borð við næring, hreyfing, svefn og lífsstíll almennt. Jafnframt verður kennt að gera betri vaktaáætlanir. Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru Hafnfirðingurinn Bára Hildur Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá mannauðssviði og Kópavogsbúinn Berglind Helgadóttir starfsmannasjúkraþjálfari hjá sama sviði. Fræðsluvefur um "Vellíðan í vaktavinnu" er hérna: https://www.landspitali.is/um-landspitala/fyrir-starfsfolk/vellidan-i-vaktavinnu/ Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Báru og Berglind. Upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.
Fri, 5 Apr 2019 - 38min - 6 - Hjúkrun - Marta Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður hjúkrunarráðs
Ísfirðingurinn Marta Jónsdóttir var fyrsta konan til að keppa löglega í ólympískum hnefaleikum og starfaði áður sem dyravörður á hinum goðsagnakennda bar Sirkus við Klapparstíg í Reykjavík. Eftir hefðbundna útúrdúra æskufólks í vinnu og námi smellti hún sér hins vegar í hjúkrun og er í dag verkefnastjóri hjá menntadeild Landspítala auk þess að vera formaður hjúkrunarráðs og taka stöku vaktir í faginu. Hlutverk hjúkrunarráðs er að vera faglegur ráðgefandi og upplýsandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og stjórnendur jafnt spítalans sem annarra eininga í heilbrigðiskerfinu. Hjúkrunarráð tekur þátt sömuleiðis í fjölbreytni þróunarvinnu innan spítalans. Marta er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og vinnur nú að annarri meistaragráðu í stjórnun, ásamt því að hafa lagt drög að doktorsnámi í náinni framtíð. Það er trauðla hægt að finna skemmtilegri viðmælanda um hjúkrun eins og Stefán Hrafn Hagalín og Ásvaldur Kristjánsson komust að í nýjasta hlaðvarpi Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en auðvitað líka í streymisveitunni Spotify og hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict. Unnið er að tengingu við Apple iTunes.
Fri, 29 Mar 2019 - 55min - 5 - Óráð - Elfa Þöll Grétarsdóttir og Steinunn Arna Þorsteinsdóttir
Miðvikudagurinn 13. mars var alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um óráð (#wdad) og var hann haldinn hátíðlegur á Landspítala með metnaðarfullu [**málþingi**][1] um heilkennið. Þingið var í beinni útsendingu á samskiptamiðlinum Workplace og var þar meðal annars frumsýnt nýtt [**vefsvæði**][2] um óráð: https://www.landspitali.is/orad Viðmælendur hlaðvarps Landspítala af þessu tilefni eru þær **Elfa Þöll Grétarsdóttir** sérfræðingur í hjúkrun aldraðra og **Steinunn Arna Þorsteinsdóttir** sérfræðingur í hjúkrun aðgerðasjúklinga, en þær tilheyra óformlegu óráðsteymi á Landspítala og hafa mikla ástríðu fyrir viðfangsefninu. Óráð (bráðarugl, *delirum*) er heilkenni sem einkennist af truflun á athygli, meðvitund, vitrænni getu og skyntúlkun. Óráð byrjar skyndilega og hefur sveiflukenndan gang. Óráð er algengt, alvarlegt og flókið vandamál sem tengist slæmum horfum þeirra sem það fá. Með því að bregðast hratt og rétt við má koma í veg fyrir það og bæta batahorfur. Nýja vefsvæðið inniheldur meðal annars klínískar leiðbeiningar og fjölbreyttar upplýsingar um meðferðarferli, orsakir og áhættuþætti. Einnig er þar að finna fræðslu um skimun og greiningu og meðferð við óráði. Sömuleiðis gagnlega tengla, tímaritsgreinar, veggspjöld og myndskeið. [1]: https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Skrar-fyrir-vidburdi/Auglysingar/2019/M%C3%A1l%C3%BEing%20%C3%A1%20al%C3%BEj%C3%B3%C3%B0legum%20%C3%B3r%C3%A1%C3%B0sdegi_Email.pdf [2]: https://www.landspitali.is/orad
Fri, 15 Mar 2019 - 42min - 4 - Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri segir frá verkefnastofu Landspítala og helstu viðfangsefnum spítalans þegar kemur að straumlínustjórnun (lean), sem er til dæmis lykilþáttur í undirbúningi Landspítalaþorpsins við Hringbraut og skipulagi nýbygginga þar. Guðrún Björg er ljósmóðir að upplagi og hefur starfað hjá Landspítala í fjóra áratugi.
Mon, 11 Mar 2019 - 49min - 3 - Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisstjóri Landspítala
Hulda Steingrímsdóttir stiklar á stóru í tímalínu umhverfismála á Landspítala og fer yfir stærstu verkefnin framundan. Veltir einnig vöngum yfir stöðunni í þessum mikilvæga málaflokki. Hulda nefnir í framhjáhlaupi að sálfræði, hegðun og atferlismótun séu spennandi þættir við umhverfisstjórnun í dag. Einnig er spjallað stuttlega um svokallaðan "loftslagskvíða" og óumflýjanlegt samviskubit hins ókolefnisjafnaða nútímamanns.
Wed, 27 Feb 2019 - 47min - 2 - Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunarFri, 15 Feb 2019 - 58min
- 1 - Hans Tómas Björnsson
Þeir Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum og Stefán Hrafn Hagalín deildarstjóri samskiptadeildar Landspítala ræða við Hans Tómas Björnsson yfirlækni sameinda- og læknisfræðideildar Landspítala.
Thu, 31 Jan 2019 - 1h 00min
Podcasts similares a Landspítali hlaðvarp
- Van Dis Ongefilterd Atlas Contact / Adriaan van Dis
- Van Bekhovens Britten | BNR BNR Nieuwsradio
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- Echt Gebeurd Echt Gebeurd
- Es la Mañana de Federico esRadio
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- Weer een dag Marcel van Roosmalen & Gijs Groenteman
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Zo, Opgelost NPO Luister / KRO-NCRV
- Europa draait door NPO Radio 1 / VPRO
- Ekko NRK
- Más de uno OndaCero
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
Otros podcasts de Salud
- Somna med Henrik Kirinaja | Acast
- Kristin Kaspersen Nyfiken på Perfect Day Media
- Psychologia, którą warto znać Mirosław Brejwo
- The Parkinson's Podcast Davis Phinney Foundation
- Sonidos para dormir mejor White Noise For Sleep and Relax
- Guided Sleep Meditation & Sleep Hypnosis from Sleep Cove Sleep Hypnosis, Meditations and Bedtime Stories
- Deep Sleep Sounds Deep Sleep Sounds
- Sleep Podcast by Slow | Relaxing Sleep Sounds & Sleep Stories | Nature Sound For Sleep | ASMR ASMR Sleep Triggers
- 2024 House / Techno / Progressive / Deep / Melodic / Tech / Edm / Afro / ibiza DJ Mix / Set / Podcast / Electronic Dance Musi DJ TeKness | Techno / House & Electronic Dance Music Mixes Beats
- Get Sleepy: Sleep meditation and stories Slumber Studios
- Living Outside the Matrix Nigel Howitt
- Kwadrans na angielski Szymon Marciniak
- Психология с Александрой Яковлевой Александра Яковлева
- Sleep Meditation Music - Relaxing Music for Sleep, Meditation & Relaxation Blissful Relaxation Music
- Seance De Sophrologie By Yo Carolina Yolanda
- Mes petites sophrologies Relaxation Sophrologie à Paris (relaxation-sophrologie-paris.fr)
- Щелк Лина Маркина
- Så in i Själen Acast
- Chill william c corbin
- Говорит фитнес-тренер Aleksandr Protosewich