Filtra per genere
- 288 - Eitt og annað: Á hraða snigilsins
Hægagangur og umferðartafir kosta Dani árlega fjármuni sem svara til 620 milljarða íslenskra króna. Umferðin á vegum landsins hefur nær þrefaldast á tiltölulega fáum árum og útlit fyrir að hún aukist enn frekar á næstu árum. Vegakerfið ræður ekki við aukninguna.
Sun, 19 May 2024 - 287 - Þjóðhættir #50: Að tala um veðrið og hlæja að tengdamæðrum
Sigurlaug og Dagrún fá hann Eirík Valdimarsson, þjóðfræðing í þáttinn en Eiríkur starfar á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum - Þjóðfræðistofu.
Tue, 14 May 2024 - 286 - Á vettvangi #4: Skaðleg áhrif kláms
„Við sjáum í rauninni allan þennan ljótleika sem tilheyrir þessum brotaflokki gerast í nánum samböndum,“ segir Jenný Krístín Valberg, teymisstjóri Bjarkarhlíðar. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Mon, 13 May 2024 - 285 - Pressa #22: Þrír forsetaframbjóðendur mætastFri, 03 May 2024
- 284 - Eitt og annað: Sendur í heilaskönnun 2400 árum eftir fæðingu
Að næturlagi í lok apríl sl. var litlum fólksbíl ekið frá Silkeborg á Jótlandi til Árósa, um 40 kílómetra leið. Tveir farþegar voru í bílnum, annar á miðjum aldri en hinn mun eldri, kom í heiminn löngu fyrir Krists burð. Það var þó einungis höfuð þess gamla sem var með í ökuferðinni.
Sun, 12 May 2024 - 283 - Pressa #23: Ástþór, Ásdís Rán, Viktor og Eiríkur Ingi í Pressu
Í hádeginu í dag, föstudag, er komið að Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, Ástþóri Magnússyni, Eiríki Inga Jóhannssyni og Viktori Traustasyni að mætast í kappræðum í Pressu, umræðuþætti Heimildarinnar.
Fri, 10 May 2024 - 282 - Þjóðhættir #49: „Heilagar meyjar og kattafrumvarpið alræmda“
Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Helgu Einarsdóttur, þjóðfræðing, en Helga starfar nú hjá Alþingi sem verkefnastjóri á fræðslusviði.
Tue, 07 May 2024 - 281 - Á vettvangi #3: Kynferðislegt efni notað til fjárkúgunar
„Nýlega vorum við með mál þar sem ungur maður kynnist einni á netinu og gerir þetta og hann endaði með því á einni helgi að borga viðkomandi aðila alla sumarhýruna eftir sumarvinnuna og síðan bætti hann við smáláni þannig að hann borgaði alls eina og hálfa milljón krónur en þrátt fyrir það var birt,“ segir Kristján lngi lögreglufulltrúi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.
Mon, 06 May 2024 - 280 - Pressa #21: Fjögur efstu mætastFri, 26 Apr 2024
- 279 - Þjóðhættir #48: Sundlaugamenning á Íslandi: Hversdagsmenning og lifandi hefðTue, 30 Apr 2024
- 278 - Á vettvangi #2: Hljóðin eru verst
„Ég fæ bara gæsahúð sjálf þegar ég hugsa um þetta enn þann dag í dag og það eru mörg ár síðan ég sá þetta myndskeið,“ segir Bylgja lögreglufulltrúi sem hefur það hlutverk að myndgreina barnaníðsefni. Það felur meðal annars í sér að hún þarf að horfa á myndskeið þar sem verið er að beita börn ofbeldi. Jóhannes Kr. Kristjánsson er á vettvangi og fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar.
Mon, 29 Apr 2024 - 277 - Eitt og annað: Eldsvoði aldarinnar
Talið er að endurbygging Børsen, einnar þekktustu byggingar Kaupmannahafnar, geti tekið 10 ár og kostnaðurinn verði að minnsta kosti einn milljarður danskra króna. Eigandinn, Danska viðskiptaráðið, hefur lýst yfir að húsið verði endurbyggt, en spurningin er hvort nýbyggingin eigi að vera nákvæm endurgerð hins upprunalega og hvort það sé framkvæmanlegt.
Sun, 28 Apr 2024 - 276 - Þjóðhættir #47: Slysafrásagnir, skilningarvitin og lykt
Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Vilborgu Bjarkadóttur þjóðfræðing. Vilborg hafði lokið myndlistarnámi þegar hún kom inn í þjóðræðina og hefur sá bakgrunnur mótað hana sem rannsakanda, en strax í listnáminu fékk hún áhuga á sögnum og þá sérstaklega veikindasögum.
Tue, 23 Apr 2024 - 275 - Á vettvangi #1: Leigubílstjórinn handtekinn
„Halló. Þú þarft að koma með okkur,“ segir lögreglan við mann sem verður færður á lögreglustöð vegna gruns um kynferðisbrot. Áður hafði leigubílsstjóri verið handtekinn vegna sama máls. Báðir mennirnir eru komnir í farbann. Á vettvangi er ný hlaðvarpssería þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson fylgist með störfum kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hér er fyrsti þáttur.
Mon, 22 Apr 2024 - 274 - Eitt og annað: OK til bjargar Coop
Danska verslanasamsteypan Coop hefur um langa hríð glímt við rekstrarerfiðleika. Margs konar hagræðingar hafa ekki dugað til að koma rekstrinum í viðunandi horf. Nú hefur orkufyrirtækið OK ákveðið að koma Coop til bjargar og leggur til verulegt fjármagn.
Sun, 21 Apr 2024 - 273 - Pressa #20: Barist í bökkum velferðarsamfélags
Í 20. þætti af Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.
Fri, 19 Apr 2024 - 272 - Eitt og annað: Mesta listaverkarán sögunnar
Á veggjum þekkts listasafns í Boston má sjá 13 tóma myndaramma. Myndunum úr römmunum var stolið fyrir 34 árum og hafa ekki fundist. Næturvörður á safninu hefur alla tíð legið undir grun um aðild að málinu, sem er talið mesta listaverkarán sögunnar. Hann lést fyrir nokkrum vikum.
Sun, 14 Apr 2024 - 271 - Eitt og annað: Húðkremsnotkun ungra stúlkna veldur áhyggjum
Sænskt fyrirtæki sem rekur 400 apótek í heimalandinu hefur lagt bann við að ungmenni yngri en 15 ára geti keypt tilteknar húðvörur sem ætlaðar eru eldra fólki. Húðsjúkdómalæknar vara við síaukinni notkun ungra stúlkna á slíkum vörum.
Sun, 07 Apr 2024 - 270 - Eitt og annað: Danski fólksfækkunarvandinn
Ef ekki verður gripið til sérstakra aðgerða verður íbúafjöldi Danmerkur um næstu aldamót aðeins helmingur þess sem hann er í dag. Fækkar úr sex milljónum í 2,5 milljónir og fækkunin verður enn meiri sé litið lengra fram í tímann. Danski utanríkisráðherrann hvetur landa sína til barneigna.
Sun, 24 Mar 2024 - 269 - Eitt og annað: Kínverjar sagðir niðurgreiða útfluttar vörur til að selja ódýrt
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins jókst útflutningur Kínverja langtum meira en spáð hafði verið. Evrópusambandið og Bandaríkin gruna Kínverja um að beita óeðlilegum aðferðum til að halda uppi framleiðslunni og selja varning á undirverði til annarra landa.
Sun, 24 Mar 2024 - 268 - Eitt og annað: Úr 600 fermetra lúxusvillu í sjö fermetra fangaklefa
Áhyggjulaust líf með sand af seðlum fékk skjótan endi þegar laganna verðir bönkuðu upp á hjá Sanjay Shah í lúxusvillu hans í Dubai í lok maí árið 2022 og smelltu á hann handjárnum. Nú er hann fyrir rétti í Danmörku, ákærður fyrir stærsta fjármálasvindl í sögu landsins.
Sun, 17 Mar 2024 - 267 - Eitt og annað: Þjóðarréttur fyrir Hæstarétt
Indversk matargerð er þekkt víða um heim og heiti margra rétta frá fjölmennasta ríki heims lætur kunnuglega í eyrum. Ef hægt er að tala um indverskan þjóðarrétt verður rauðgulur og bragðmildur réttur oft fyrir valinu. Nú er deilt um hver eigi heiðurinn af þessum rétti.
Sun, 10 Mar 2024 - 266 - Eitt og annað: Danski utanríkisráðherrann í innkaupaferð
Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur var nýlega á Indlandi og heimsótti stærsta sjúkrahús landsins. Hann kvaðst vonast til að indverskir hjúkrunarfræðingar vilji flytja til Danmerkur þar sem mikill skortur er á hjúkrunarfólki. Slíkar hugmyndir hafa vakið gagnrýni.
Sun, 03 Mar 2024 - 265 - Eitt og annað: Eins og hænsn í myrkri
Í dönsku tímariti um varnar- og öryggismál birtist fyrir skömmu grein ásamt viðtali við Henrik Lyhne, liðsforingja í danska hernum. Þar líkir hann hernum við hænsn, sem eru varnarlaus í myrkri. Herinn skorti allan búnað til næturhernaðar, fyrir utan allt annað, þrátt fyrir fögur loforð stjórnmálamanna.
Sun, 25 Feb 2024 - 264 - Pressa #19: Samkeppnistríóið
Í 19. þætti af Pressu verður til umræðu umdeild lagasetning sem heimilar afurðastöðvum í kjötiðnaði að hafa með sér mikla samvinnu og umfangsmikið samstarf. Gestir verða þeir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Fri, 12 Apr 2024 - 263 - Á vettvangi: Sýnishorn - Á vettvangi
Þáttaröðin Á vettvangi fer í loftið á Heimildinni þann 22. apríl og verða þættirnir fjórir og birtir vikulega.
Tue, 26 Mar 2024 - 262 - Leiðarar #46: Leiðari: Af hverju eru Íslendingar hræddir við að verða betri?
Leiðari Þórðar Snæs Júlíussonar úr 44. tölublaði Heimildarinnar, sem kom út 15. mars 2024. „Það þarf ekki að hræðast stanslaust framtíðina. Hún er björt. Ísland er eitt besta, öruggasta og ríkasta land í heimi. Það þarf bara að taka aðeins til og láta gangverkið virka fyrir fjöldann, ekki fyrst og síðast fyrir hina fáu valdamiklu,“ skrifar hann.
Tue, 26 Mar 2024 - 261 - Leiðarar #44: Leiðari: Sprengja 412 manns innviði?
Leiðari Þórðar Snæs Júlíussonar úr 44. tölublaði Heimildarinnar, sem kom út 1. mars 2024. „Við þurfum aðallega að hætta að tala, og fara að gera. Með því er hægt að sækja fjármögnun til að rétta við innviði landsins. Veita íbúum jöfn tækifæri í lífinu. Líka þessum 412 sem fá vernd hér árlega,“ segir hann um innviði og flóttafólk.
Fri, 01 Mar 2024 - 260 - Flækjusagan #57: Vissuði að frændur Marokkómanna eru Samar í Skandinavíu?
Marokkómenn hafa komið ærlega á óvart á heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Hér segir Illugi Jökulsson sögu landsins.
Wed, 14 Dec 2022 - 259 - Viðtal: Rithöfundurinn Sjón ræðir um safn verka sinna í viðtali: „Hér má eiginlega hafa Sjón allan“
Rithöfundurinn Sjón varð nýlega sextugur og gaf Forlagið út ritsafn hans af því tilefni. Verk Sjóns spanna tæpa hálfa öld. Hann settist niður með blaðamanni Stundarinnar og ræddi um bækurnar sínar og ferðalag sitt sem skrifandi manns.
Tue, 08 Nov 2022 - 258 - Flækjusagan #56: Furðufyrirbæri á valdastóli keisara
Illugi Jökulsson veltir því fyrir sér hvernig sá undarlegi maður Elagabalus entist í fjögur löng ár á valdastóli Rómaveldis þótt margir miklu hæfileikaríkari keisarar entust mun skemur.
Tue, 25 Oct 2022 - 257 - Flækjusagan #55: Í innyflum jarðarinnar geisar aflmesta höfuðskepnanFri, 21 Oct 2022
- 256 - Flækjusagan #54: 27 þúsund Frakkar voru drepnir í gær
Illugi Jökulsson minnist þess að fyrir rúmum hundrað árum síðan voru manndráp fyrri heimsstyrjaldar komin í fullan gang.
Tue, 18 Oct 2022 - 255 - Flækjusagan #53: Örlagaríkasta sjóorrustan?
Illugi Jökulsson hafði á táningsaldri mikinn áhuga á sjóorrustum og las af áfergju um þær stærstu þeirra. Löngu seinna komst hann að því að lítt þekkt orrusta skipti kannski meira máli en þær flestar.
Fri, 07 Oct 2022 - 254 - Flækjusagan #52: Gufuvél Rómaveldis
Illugi Jökulsson býr hér til sögu um það sem hefði getað gerst ef vísindamenn á tímum Rómaveldis hefðu fylgt eftir uppfinningu sem búið var að gera– en enginn vissi til hvers átti að nota.
Tue, 04 Oct 2022 - 253 - Á bakvið fréttirnar #3: Dagbók skólastúlku um Jón Baldvin
Blaðamenn Stundarinnar ræða efni og vinnslu nýjasta tölublaðs Stundarinnar. Margrét Marteinsdóttir ræðir uppljóstrun úr hálfrar aldar gömlum dagbókum unglingsstúlku sem lýsir kynferðislegum samskiptum sínum við gagnfræðaskólakennarann Jón Baldvin Hannibalsson. Valgerður Þorsteinsdóttir, segir frá fundi dagbókanna, sem móðir hennar heitin, Þóra Hreinsdóttir, skrifaði um samband sitt við Jón og dularfullum draumi sem leiddi til þess að lykilgagn í málinu kom í leitirnar. Blaðamaðurinn Ingi Freyr Vilhjálmsson rekur sögu ásakana og málsvarnar Jóns Baldvins, þann áratug sem liðin er frá því fyrst var fjallað um ásakanir gegn honum. Aðalsteinn Kjartansson lýsir raunum blaðamanns við að fjalla um mikilvægt málefni á mannamáli og Freyr Rögnvaldsson fer yfir rannsóknarskýrslu um Laugalandsheimilið og viðbrögð þeirra sem þar dvöldu.
Fri, 30 Sep 2022 - 252 - Flækjusagan #51: Viljum við vera Herúlar?
Illugi Jökulsson heldur áfram að rekja sögu Herúla og þeirrar kenningar að þessi dularfulla þjóð hafi endað hér uppi á Íslandi.
Tue, 27 Sep 2022 - 251 - Flækjusagan #50: Eru Íslendingar Herúlar?
Illugi Jökulsson var spurður í Bónus einu sinni, og síðan á Facebook, hvenær hann ætlaði að skrifa um Herúlakenninguna. Ekki seinna en núna!
Fri, 23 Sep 2022 - 250 - Flækjusagan #49: Píndur á dögum Pontíusar Pílatusar
Illugi Jökulsson furðar sig á því að venjulegur embættismaður í Rómaveldi hinu forna skuli lentur í trúarjátningu okkar. Og reynir að sjá fyrir sér íslenskan embættismann í sömu stöðu.
Tue, 20 Sep 2022 - 249 - Flækjusagan #48: Þegar rádýr og villisvín bjuggu í Reykjavík
Illugi Jökulsson velti því fyrir sér af hverju höfuðborg Íslands skyldi endilega rísa á sama stað og fyrsti landnámsmaðurinn byggði sinn bæ. En komst svo að því að spurningin var á misskilningi byggð.
Fri, 16 Sep 2022 - 248 - Flækjusagan #47: Metsöluhöfundurinn sem réðst á orrustuskip
Illugi Jökulsson segir frá afdrifaríkri loftárás á þýska orrustuskipið Tirpitz sem metsöluhöfundurinn Alistair MacLean tók þátt í. MacLean var á sínum tíma einn vinsælasti spennusagnahöfundur í heimi og alltént hér á Íslandi.
Tue, 13 Sep 2022 - 247 - Viðtal: Kristrún boðar samstöðustjórnmál
Hvorki Evrópusambandið né ný stjórnarskrá eru forgangsmál í nýrri kjarnastefnu sem Kristrún Frostadóttir vinnur að sem formannsframbjóðandi í Samfylkingunni. Hún leitar til landsbyggðarinnar og vill að fólk með háar tekjur sjái hag sinn í að kjósa Samfylkinguna. Hún segir að sér hafi brugðið þegar umfjöllun um hana hófst fyrir síðustu kosningar.
Sat, 10 Sep 2022 - 246 - Flækjusagan #46: Að kunna að velja sér eftirmenn
Illugi Jökulsson rekur hér eitt af sárafáum dæmum sem sagan kann að greina frá um að öflugir leiðtogar óttist ekki að velja öfluga eftirmenn, ólíkt til dæmis Alex Ferguson!
Fri, 09 Sep 2022 - 245 - Flækjusagan #45: Þegar Tékkóslóvakía var myrt
Illugi Jökulsson reynir ekki einu sinni að draga fjöður yfir hvað honum finnst Úkraínumálið núna svipað haustinu 1938 þegar Adolf Hitler þóttist þurfa að „vernda“ þýska íbúa Súdetalanda.
Tue, 06 Sep 2022 - 244 - Flækjusagan #44: Þegar Tyrkland var að hverfa
Illugi Jökulsson rifjar upp vel þekktan atburð frá árinu 1920, en þá var framtíð Tyrklands mjög óráðin eftir fyrri heimsstyrjöldina. Það munaði furðulega litlu að þetta stóra land yrði limað alveg sundur.
Fri, 02 Sep 2022 - 243 - Flækjusagan #43: Þegar pabbastrákurinn var gerður kóngur
Illugi Jökulsson segir gamla sögu um líklega fyrstu alþýðubyltingu sem gerð hefur verið í veröldinni.
Tue, 30 Aug 2022 - 242 - Flækjusagan #42: Labbakútar þeir sem hræddir verða
Illugi Jökulsson lítur svo á að hann hafi sloppið naumlega við að verða því hugarfari Íslendingasagnanna að bráð, sem heltók Snæbjörn í Hergilsey og allt hans fólk.
Fri, 26 Aug 2022 - 241 - Flækjusagan #41: Fórnuðu Karþagómenn virkilega börnum?
Illugi Jökulsson "hélt alltaf" með Karþagómönnum í styrjöldum þeirra við Rómverja, þótt stuðningurinn hafi komið meira en 2.000 árum of seint. Og hann hefur alltaf fussað yfir áróðri Rómverja um grimmilegar mannfórnir fjenda þeirra.
Tue, 23 Aug 2022 - 240 - Flækjusagan #40: Stríð í þúsund daga
Illugi Jökulsson fór að skoða hverjir væru fyrirmyndirnar að uppáhaldspersónu hans í uppáhaldsskáldsögu hans, Hundrað ára einsemd eftir García Márquez.
Fri, 19 Aug 2022 - 239 - Flækjusagan #39: Hefur Taívan alltaf verið hluti Kína?Fri, 12 Aug 2022
- 238 - Flækjusagan #38: Rússland III: Hefði Trotskí endað í Berlín?
Illugi Jökulsson hefur í undanförnum flækjusögum verið að kanna hvað hæft sér í þeirri þjóðsögu, sem Rússar og stuðningsmenn þeirra halda gjarnan fram, að Rússar hafi sífellt og einlægt mátt þola grimmar innrásir úr vestri og Vesturlönd hafi alltaf viljað þeim illt.
Fri, 03 Jun 2022 - 237 - Flækjusagan #37: Rússland II: Eiga Rússar voða bágt?
Í síðasta þætti hóf Illugi Jökulsson að kanna styrjaldarsögu Rússlands til að vita hvað sé hæft í þeirri trú margra Rússa að land þeirra hafi sífellt sætt grimmum árásum frá erlendum ríkjum, ekki síst Vesturlöndum. Því sé eðlilegt að þeir fái að hafa Úkraínu sem „stuðpúða“ gegn hinni miskunnarlausu ásælni vestrænna stórvelda. Í síðasta þætti höfðu ekki fundist slík dæmi, því oftar en ekki voru það Rússar sem sóttu fram en vörðust ei. En í frásögninni var komið fram á 19. öld.
Fri, 27 May 2022 - 236 - Flækjusagan #36: Rússland I: Þurfa Rússar að óttast vestrið? Eða er það kannski öfugt?
Stuðningsmenn Rússa halda því gjarnan fram að eðlilegt sé að Rússar vilji hafa „stuðpúða“ í vestri — það er að segja Úkraínu — því svo margoft hafi rússneska ríkið og rússneska þjóðin verið nánast á heljarþröm eftir grimmar innrásir úr vestri.
Fri, 20 May 2022 - 235 - Á bakvið fréttirnar #2: Gleymda fólkið á leigumarkaði
Helgi Seljan ræðir forsíðuúttekt Stundarinnar um íslenska leigumarkaðinn við blaðakonurnar Margréti Marteinsdóttur og Ölmu Mjöll Ólafsdóttur sem sökkt hafa sér ofan í það að reyna það sem stjórnvöldum hefur mistekist, að greina og kortleggja falda hluta húsnæðismarkaðarins, en segja í leiðinni sögur af fólkinu sem neyðist til að búa sér þar heimili, oft við erfiðar en líka hættulegar aðstæður. Helgi ræðir líka kosningaumfjöllun Stundarinnar. Freyr Rögnvaldsson blaðamaður segir frá Kosningaprófi Stundarinnar, sem yfir 10 þúsund manns hafa þegar tekið og ræðir við Aðalstein Kjartansson blaðamann um kappræður oddvita framboðanna sem bjóða fram í Reykjavík fyrir þessar kosningar, sem sýnt verður í beinni á heimasíðu Stundarinnar miðvikudaginn 11. maí klukkan 14.
Wed, 11 May 2022 - 234 - Flækjusagan #35: Þegar sjóliðarnir neituðu að deyja
Illugi Jökulsson játar fúslega að hafa sérkennilegt gaman af herskipum og hefur jafnvel sést lesa um sjóorrustur sér til skemmtunar. En hér fagnar hann því að ekki varð af einum slíkum slag.
Fri, 22 Apr 2022 - 233 - Á bakvið fréttirnar #1: Stórveldi sársaukans
Helgi Seljan ræðir við blaðamenn Stundarinnar um efni nýjasta tölublaðsins. Í forsíðuumfjölluninni er meðal annars sagt frá því að íslenska lyfjafyrirtækið Actavis seldi 32 milljarða taflna, eða þriðjung allra morfínlyfja í Bandaríkjunum 2006 til 2012, á meðan notkun slíkra lyfja varð að faraldri í landinu. Fyrirtækinu var stýrt af Róberti Wessman hluta tímans og var í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar allan tímann.
Tue, 19 Apr 2022 - 232 - Flækjusagan #34: Hvað hefði gerst ef Hitler hefði verið drepinn 1938?
Það hefði sennilega orðið niðurstaðan ef Neville Chamberlain hefði ekki látið Hitler blekkja sig upp úr skónum í München. Og heimurinn hefði orðið óþekkjanlegur.
Fri, 15 Apr 2022 - 231 - Flækjusagan #33: Hringar í sandi og Géza Vermes
Illugi Jökulsson rifjar hér upp dramatíska ævi ungversks fræðimanns af Gyðingaættum, sem dýpkaði mjög skilning okkar á Jesú frá Nasaret.
Fri, 08 Apr 2022 - 230 - Flækjusagan #33: Er borgarastríð í uppsiglingu í Bandaríkjunum? Mjög sennilega, segir í nýrri bók
Barbara F. Walter er sérfræðingur í aðdraganda borgarastríðanna í fyrrum Júgóslavíu. Hún kveðst sjá flest merki þess sem þá gerðist nú að verki í Bandaríkjunum.
Fri, 01 Apr 2022 - 229 - Flækjusagan #31: Saga Úkraínu III: Höfnuðu íslam vegna áfengisbanns
Illugi Jökulsson heldur áfram að rekja hina litríku sögu Úkraínu. Þegar hér er komið sögu hefur Úkraína (oftast) verið málsmetandi ríki í þúsundir ára, en Rússland er enn ekki orðið til.
Mon, 28 Mar 2022 - 228 - Flækjusagan #30: Saga Úkraínu II: Þegar Úkraína var mesta stórveldi EvrópuThu, 17 Mar 2022
- 227 - Flækjusagan #29: Saga Úkraínu I: Hún er bæði lengri og merkari en saga Rússlands!Fri, 11 Mar 2022
- 226 - Flækjusagan #28: Og þannig náðu ísraelsmenn borginni Jeríkó
Illugi Jökulsson hreifst í æsku af sögunni góðu um Ísraelsmenn sem brutu niður múra Jeríkó með lúðrablæsti en las ekki framhaldið fyrr en löngu síðar.
Tue, 22 Feb 2022 - 225 - Flækjusagan #27: Ein heimsstyrjöld og tvær ástarsögur
Í þessum þætti er Illugi Jökulsson enn á snærum persónusögunnar eins og oft, bæði fyrr og síðar. Hér skoðar hann tvo ástfangna austurríkismenn.
Tue, 15 Feb 2022 - 224 - Flækjusagan #26: Allar hinar týndu bækurFri, 11 Feb 2022
- 223 - Flækjusagan #25: Hefðu Vandalar getað lent á tunglinu?Wed, 09 Feb 2022
- 222 - Flækjusagan #24: Stórveldið sem hvarf og óvæntasti kóngur í heimi
Hér rekur Illugi Jökulsson hausinn inn í rykfallinn sal í þeim kastala sem mannkynssagan er og reynir að kynnast hinni dularfullu þjóð Avara.
Fri, 04 Feb 2022 - 221 - Flækjusagan #23: Heraklíus II: Stórveldin sem eyddu hvort öðruTue, 01 Feb 2022
- 220 - Flækjusagan #22: Heraklíus I: Þegar ógnarjafnvægi stórveldanna raskaðistFri, 28 Jan 2022
- 219 - Flækjusagan: Hið mótsagnakennda mikilmenniFri, 21 Jan 2022
- 218 - Flækjusagan #26: Skýjasagan um samstöðuna, jafnréttið og annað gott sem aldrei var til
Illugi Jökulsson verður stundum soldið ergilegur þegar ráðamenn þjóðarinnar afbaka Íslandssöguna í hátíðarræðum og komast svo upp með að yppta bara öxlum og endurtaka sama fleiprið í næstu tölu.
Tue, 18 Jan 2022 - 217 - Flækjusagan #25: Kona á keisarastóli II: Heldurðu ekki að hringinn þinn ég hermannlega bæri?
Þegar Írenu, einu keisaraynju hins fágaða Býsansríkisins, barst bónorð Karlamagnúsar, villimanns úr vestri.
Tue, 11 Jan 2022 - 216 - Flækjusagan #24: Kona á keisarastóli I: Grimmdarseggurinn Írena frá Aþenu
Þótt saga Rómaveldis nái í raun yfir 2.000 ár – allt frá fyrsta uppgangi smáþorpsins við Tíberfljót til falls hins austurrómverska Býsans-ríkis árið 1453 – og um 160 menn bæru keisaranafn, þá var aðeins ein kona þar á meðal sem ríkti í raun og veru. Og hvernig reyndist hún?
Fri, 07 Jan 2022 - 215 - Flækjusagan #23: Bænakvak yfir sængurkonuTue, 04 Jan 2022
- 214 - Flækjusagan #22: Áramótaspádómur frá 1913Fri, 31 Dec 2021
- 213 - Flækjusagan #21: Fyrsta stríð Jesúbarnsins
Hvenær sigraði kristindómurinn? Í jötunni í Betlehem þegar Jesúbarnið fæddist? Eða við Milvíubrúna árið 312 þegar keisaraher Konstantínusar lagði fyrst til orrustu undir merkjum frelsarans frá Nasaret — og sigraði? Og hefði ósigur í þeirri orrustu getað kostað að kristindómurinn hefði aldrei orðið barn í brók?
Sat, 25 Dec 2021 - 212 - Flækjusagan #20: Rostungar í Reykjavík
Val Ingólfs Arnarsonar á bæjarstæði hefur lengi þótt furðulegt. Hvers vegna fór hann um frjósöm héruð til að byggja „útnes þetta“? Á árunum upp úr aldamótum beindist athygli fræðimanna að rostungaveiðum, sem kynnu að hafa skipt þarna miklu máli. Þær kenningar tók Illugi Jökulsson saman í tímaritinu Sagan Öll árið 2007 og rifjar upp hér — að gefnu tilefni!
Sun, 19 Dec 2021 - 211 - Flækjusagan #19: Þrælar, sykur og Rihanna
Eyríkið Barbados í Karíbahafi gerðist um daginn lýðveldi þegar landsmenn afsköffuðu Elísabetu Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja en kusu söngkonuna Rihönnu um leið þjóðhetju. Saga Barbados er mörkuð blóði og kúgun en nú vilja landsmenn líta fram á veginn.
Fri, 17 Dec 2021 - 210 - Flækjusagan #18: Maðurinn sem á sök á öllu illuTue, 14 Dec 2021
- 209 - Flækjusagan #17: Bláskjár enn á ferðFri, 10 Dec 2021
- 208 - Flækjusagan #16: Sjaldgæft ferðalag Íslendings á 17. öldWed, 08 Dec 2021
- 207 - Flækjusagan #15: Að finna Ameríku en vilja heldur GrænlandFri, 03 Dec 2021
- 206 - Flækjusagan #14: Flottasta fjölskylda RómaveldisTue, 30 Nov 2021
- 205 - Flækjusagan #13: Eru talibanar ein af hinum týndu ættkvíslum Ísraels?
Venjulega er það merki um að söguáhugamenn séu hrokknir upp af standinum þegar þeir fara að fabúlera um „hinar týndu ættkvíslir Ísraels“. En eins og Illugi Jökulsson fjallar hér um eru jafnvel alvöru fræðimenn ekki alveg fráhverfir þeirri hugmynd að Gyðingar kunni að hafa flækst alla leið til Afganistans í árdaga.
Fri, 26 Nov 2021 - 204 - Flækjusagan #12: Örsnauður holdsveikrasjúklingur þrælar í hlekkjumTue, 23 Nov 2021
- 203 - Flækjusagan #11: Blóðug saga við Rauðahaf
Bæði í Súdan og Eþíópíu er nú barist innanlands. Borgarastríð kraumar enn undir niðri í Sómalíu og í Suður-Súdan. Einræðisstjórnir halda fólki niðri í Egiftalandi og Eritreu.
Fri, 19 Nov 2021 - 202 - Flækjusagan #10: „Ilmur brennandi presta“Tue, 16 Nov 2021
- 201 - Flækjusagan #9: Ef Hitler hefði verið myrtur 1919Fri, 12 Nov 2021
- 200 - Flækjusagan #8: Mjög lítið blóðTue, 09 Nov 2021
- 199 - Flækjusagan #7: Tárfellt yfir þeysireið biskupssonarFri, 05 Nov 2021
- 198 - Flækjusagan #6: Geta fjöldamorðingjar verið hetjur?Tue, 02 Nov 2021
- 197 - Flækjusagan #5: Hvaðan er Nóbelshöfundurinn?
Er Abdulrazak Gurnah frá Tansaníu? Eða alls ekki þaðan, heldur frá Sansíbar? Eða Bretlandi? Eða Svahílí-ströndinni? Eða kannski frá Óman? Lífið er flókið eftir umrót nýlendutímans. Og hvaðan er Freddie Mercury?
Fri, 29 Oct 2021 - 196 - Leiðarar #4: Þegar fólk er svipt voninniWed, 13 Oct 2021
- 195 - Flækjusagan #21: Þegar fjöllin gengu og fólkið dó í hrönnum - Árið 1920
Fyrir 100 árum, þann 16. desember 1920, varð einn mannskæðasti jarðskjálfti sögunnar í Kína. Einmitt þá áttu sér stað ógurlegar róstur í landinu.
Wed, 29 Sep 2021 - 194 - Flækjusagan #20: Njósnari í aðalstöðvunum: „Hvar er Litli herramaðurinn okkar?“ - Árið 1920Wed, 29 Sep 2021
- 193 - Flækjusagan #19: „Ég hefði aldrei átt að enda hérna“ - Árið 1920
Warren Harding má búast við að losna loksins úr sæti versta Bandaríkjaforsetans þegar farið verður að meta forsetatíð Donalds Trump.
Wed, 29 Sep 2021 - 192 - Flækjusagan #18: Þegar apinn drap Grikkjakóng og kostaði að minnsta kosti 250.000 mannslíf - Árið 1920Wed, 29 Sep 2021
- 191 - Flækjusagan #17: Eiturgas í gleymdu stríði - Árið 1920
Fyrir einni öld stofnuðu Spánverjar útlendingahersveit til að kveða niður uppreisn hinna stoltu Rif-búa í Marokkó gegn yfirráðum þeirra. Spánverjar gripu til hinna hræðilegustu glæpa til að knésetja skæruliðaforingjana Abdelkrim.
Wed, 29 Sep 2021 - 190 - Flækjusagan #16: „Go Away, Red Star!“ - Árið 1920
Fyrir réttri öld var Rauði herinn að knésetja afkomendur hinna stoltu Mongóla í Mið-Asíu. Sumir muna þá atburði betur en aðrir, eins og Illugi Jökulsson leiðir í ljós.
Wed, 29 Sep 2021 - 189 - Flækjusagan #15: Kraftaverkið við Vislu - Árið 1920
Rauði herinn virtist þess albúinn að kremja frjálst Pólland í ágúst 1920. Pólverinn Felix Dsersinskí beið eftir að hefja „sverð byltingarinnar“ á loft yfir löndum sínum. En Józef Piłsudski leiðtogi Pólverja var ekki búinn að gefast upp.
Wed, 29 Sep 2021
Podcast simili a <nome>
- Van Dis Ongefilterd Atlas Contact / Adriaan van Dis
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- The Parkinson's Podcast Davis Phinney Foundation
- Echt Gebeurd Echt Gebeurd
- Es la Mañana de Federico esRadio
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Zo, Opgelost NPO Luister / KRO-NCRV
- Ekko NRK
- Más de uno OndaCero
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
Altri podcast di Notizie e Politica
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- Raport Super Express
- Boekestijn en De Wijk | BNR BNR Nieuwsradio
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Laurent Gerra RTL
- Flashpoint Ukraine - Voice of America VOA
- Europa draait door NPO Radio 1 / VPRO
- Gość Radia ZET Bogdan Rymanowski
- Układ Otwarty. Igor Janke zaprasza Igor Janke
- 2024 Radio 24
- Van Bekhovens Britten | BNR BNR Nieuwsradio
- De Wereld | BNR BNR Nieuwsradio
- Weer een dag Marcel van Roosmalen & Gijs Groenteman
- Radio Wnet Radio Wnet
- Nessun luogo è lontano Radio 24
- de Volkskrant Elke Dag de Volkskrant
- ФЕЙГИН LIVE Марк Фейгин
- Le news di Sky Tg 24 Sky TG 24
- Il Volo del Mattino Radio Deejay
- Les Grosses Têtes RTL