Filtrer par genre
- 118 - Katrín Lóa - Segir Helga í Góu hafa kynferðislega áreitt sig í eitt og hálft ár
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
„Hann hafði oft verið óviðeigandi og maður var búin að heyra sögur þannig maður passaði sig alveg á honum” Segir Katrín Lóa sem tilkynnti kyferðislega áreitni til lögreglu árið 2019. Áreitið átti sér stað á vinnustað af eiganda fyrirtækissins og gekk yfir í eitt og hálft ár. Katrín segir áreitið hafa byrjað eftir að maðurinn hafi lánað henni fimm milljónir sem hún notaði til þess að kaupa sér íbúð.
Thu, 15 Dec 2022 - 10min - 117 - Ingibjörg Sædís - ólst upp við sárafátækt
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ingibjörg Sædís ólst upp við mikla fátækt þegar hún var yngri. Hún bjó hjá foreldri sem gat ekki unnið vegna andlegrar og líkamlegrar veikinda og var á sama tíma mótfallin því að biðja um aðstoð. Hún segir horfa aðdáunaraugum á fólk sem biður um aðstoð á internetinu fyrir börnin sín og vildi óska að faðir hennar hefði gert það sama.
Thu, 01 Dec 2022 - 10min - 116 - Kefsan - Kærði eiganda Mandi fyrir alvarlega líkamsárás og hótanir
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Kefsan kærði Hlal, eiganda Mandi árið 2020 fyrir alvarlega líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Mandi. Í skýrslutökum lýsir hún því hvernig hann hafi kýlt hana í höfuðið, ýtti henni niður stiga og sparkað í hana af miklu afli, þar sem hún lá á gólfinu. Þá ber hún að Hlal hafi í þrjá mánuði áreitt sig og hótað sér á meðan hún leigði herbergi, sem var í eigu hans.
Fri, 25 Nov 2022 - 10min - 115 - Soffía Karen - "Kærði mann fyrir nauðgun sem hélt henni hjá sér í 4-5 tíma"
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Soffía Karen var átján ára þegar hún fór heim með strák, sem hélt henni hjá sér í fjóra tíma á meðan hann braut á henni kynferðislega. Hún leitaði strax á bráðarmóttöku og lagði fram kæru stuttu eftir brotið. Gerandinn bað Soffíu afsökunar á því að hafa verið “ógeðslegur” við hana, en þrátt fyrir áverka var málið fellt niður tveimur árum síðar.
Thu, 17 Nov 2022 - 05min - 113 - "Nemandi við MH fékk hótanir eftir að hafa sagt frá kynferðisbroti"
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ung kona sem er nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð segir baráttuna og mótmælin í MH hafa hjálpað sér í gegnum kynferðisbrot sem hún varð fyrir árið 2021. Hún segir nafn geranda síns hafa verið skrifað á vegg skólans og í kjölfarið fór hún að fá hótanir frá vinum hans og fjölskyldu.
Wed, 02 Nov 2022 - 05min - 112 - Ólafía Gerður - Setti hníf upp við háls hennar og ógnaði öryggi hennar í fjögur ár
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ólafía Gerður bjó með ofbeldisfullum barnsföður sínum í tæp fjögur ár, frá því hún var 16 ára. Barnsfaðir hennar steig nýlega fram í viðtali þar sem hann lýsti sambandinu þeirra sem “stormasömu”. Ólafía segir frá líkamlegu, andlegu, kynferðislegu og stafrænu kynferðisofbeldi sem hún mátti þola á heimilinu. “Hann reyndi að kirkja mig og endar á því að nauðga mér. Þetta er eitt af mínum stærstu minningum sem ennþá daginn í dag, tæpum sex árum seinna, er ég að fá martraðir.” Segir Ólafía í þættinum. Ástæðan fyrir því að Ólafía ákvað að segja sögu sína er tvíþætt. “Ég ætla að skila skömminni og styrkja sjálfa mig.” Svo er það hitt: “það var ótrúlega erfitt að sjá hann koma fram í viðtali, ég titraði bara og mér var óglatt.” Henni er fyrirmunað að skilja af hverju fjölmiðlar birta viðtöl við menn sem hafa verið kærðir fyrir ofbeldi.
Wed, 26 Oct 2022 - 10min - 111 - Magdalena - ''til þess að fá nálgunarbann, þá verður þú að fá hann til að ráðast á þig''
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Magdalena Valdemarsdóttir var föst í ofbeldissambandi í 10 mánuði og segir ofbeldið hafi haldið áfram þrátt fyrir sambandsslit. Alvarlegt ofbeldi á sér stundum stað eftir sambandsslit og það er ekkert sem segir að þegar ofbeldissambandi sé slitið þá sé ofbeldið búið. TW: Árið 2017 kærði Magdalena barnsföður sinn fyrir tilraun til manndráps. Barnsfaðir hennar fékk 18 mánað fangelsi fyrir húsbrot, eignaspjöll og líkamsárás með því að hafa ruðst inn til hennar, slegið hana tvívegis með flötum lófa í andlit en jafnframt tekið hana í tvisvar sinnum kverkataki með báðum höndum þannig að hún átti erfitt með að anda en hún var gengin 17 vikur á leið með tvíbura þeirra.
Fri, 21 Oct 2022 - 05min - 110 - Thelma, Ýr og Katla
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson sem kallar sig Auður, hefur viðurkennt að hafa farið “yfir mörk” í samskiptum við konur. Í Apríl birtist Ísland í dag viðtal við Auðunn þar sem hann sagðist axla ábyrgð á hegðun sem hann taldi særandi og óþægileg. Katla Ómarsdóttir, Ýr Gudjohnsen og Thelma Tryggvadóttir stíga fram og segja Auðunn nota orð sem smætta það ofbeldi sem þær upplifðu.
Fri, 14 Oct 2022 - 05min - 109 - Lovísa Ösp - “Ef hann væri ekki ofbeldismaður að þá væri hann fullkominn”
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Lovísa Ösp var í sambandi með manni sem beitti hana andlegu, líkamlegu og fjárhagslegu ofbeldi. Hún lýsir því hvernig sjálfsmorðshótanirnar voru hans leið til að koma í veg fyrir að hún færi frá honum. Hann lét hana vita að hann væri vís til þess að myrða hana og hótaði einnig að drepa hana. “Mér fannst ég bara ekki geta lifað án hans og ég hélt að þetta væri eðlilegt”. Lovísa segir manninn hafa passað sig að áverkar hennar væru einungis á höndum og fótum svo hún gæti falið þá með langermabolum. Lovísa varpar ljósi á hversu stórt hlutverk nándin spilar í ofbeldissamböndum og afhverju það er erfitt að slíta sig frá ofbeldismanninum. “Hann var bara minn klettur og þótt þetta hafi verið svona ljótt að þá sagði ég honum allt.” Segir Lovísa.
Tue, 11 Oct 2022 - 37min - 108 - Lísbet Dögg - "Ég mun ekki eiga neitt líf eftir þetta"
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Lísbet varð ólétt 19 ára og eignaðist barnið fjórum dögum fyrir útskrift en hún útskrifaðist úr FSu. Hún varð fyrir kynferðisofbeldi sumarið fyrir framahaldsskóla og var með gerandanum í skóla hálfa skólagönguna “Ég þurfti að setja félagslífið mitt á pásu af því að hann var þarna” segir Lísbet í þættinum og segir FSu ekki hafa tekið á málinu og hún hafi þurft að mæta geranda sínum á göngunum. Lísbet var greind með þunglyndi, kvíða og áfallastreituröskun og í kjölfarið varð hún ólétt 19 ára. “Ég grét alla daga útaf vanlíðan og ég náði ekki að tengjast stelpunni minn […] Mér fannst hún eiginlega bara fyrir” Segir hún í þættinum og bætir við að henni hafi liðið eins og hún væri ömurleg móðir. “Þegar ég var búin að fæða að þá fékk ég ekki þessa tilfinningu að ég væri glöð að sjá barnið mitt, hún var lögð á bringuna á mér og ég hugsaði bara: hvað nú?”
Fri, 23 Sep 2022 - 05min - 107 - Martyna Ylfa - Fyrverandi kærasti beitti hana andlegu ofbeldi og lifði tvöföldu lífi
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Martyna Ylfa er frá Póllandi en hefur búið á Íslandi í tíu ár. Martyna var sambandi með íslenskum manni sem beitti hana ofbeldi í langan tíma. Ein þekktasta aðferðin til að ná stjórn í ofbeldissambandi er að brjóta niður makann, þannig að hann treystir ekki sjálfum sér lengur og telji sig ekki verðugan hamingju og heilbrigðari framkomi. “Mér leið eins og ég hafi hitt sálufélagann minn. Þetta byrjaði mjög hratt og honum fannst allt sem ég gerði flott, fötin mín, allt sem ég sagði og gerði var svo æðislegt” segir hún í þættinum og bætir við að eftir smá tíma að þá breyttist það og hann fór að brjóta hana niður. “Flótlega hrundi sjálfstraustið mitt og mér leið eins og ég mætti ekki segja neitt, ég mátti ekki spurja margra spurninga. Ég vissi alveg þegar hann var reiður og hann sýndi mér svona hvað hann gæti gert, að hann gæti meitt mig ef hann myndi vilja það”.
Tue, 20 Sep 2022 - 46min - 106 - Freyja - 15 ára þegar eldri strákur seldi og dreifði nektarmyndum
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Freyja var 15 ára þegar eldri strákur seldi nektarmyndir af henni sem fóru í dreifingu á svokalla chan-síðu, sem er vettvangur þeirra sem beita stafrænu kynferðisofbeldi á Íslandi. “Á einhver myndir af Freyju?” Spyr stofnandi þráðsins á síðunni þar sem nektarmyndum af stúlkum allt niður í fermingaraldur er deilt. Í þættinum lýsir Freyja varnarleysinu sem fylgdi því að uppgötva að nektarmyndir af sér væru komnar í dreifingu á netinu án hennar samþykkis. “Ég vakna við 1000 nýja fylgjendur á Instagram og fólk var að reyna að hringja í mig og spurja mig hvað ég tæki á tímann”. Freyja hugsaði um að kæra brotið til lögreglu en sama ár hafði hún kært nauðgun. “Við erum tvær sem kærðum árið 2019 og við fengum báðar játningu frá honum” segir Freyja í þættinum og bætir við að þær hafa ekki ennþá heyrt frá lögreglunni varðandi málið.
Tue, 13 Sep 2022 - 05min - 105 - Sigþrúður Guðmundsdóttir segir ofbeldismenn oft taka sér skilgreiningarvald yfir þolendum
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
“Afhverju fara þær ekki bara?”
Það er þessi rómantíska hugmyndin um að konur eigi að elska fram í rauðan dauðann og geti ekki lifað án einhvers. Margar konur koma úr ofbeldissamböndum með skömm yfir því að þetta sé þeim að kenna af því að ofbeldismaðurinn tekur að sér skilgreiningarvaldið segir Sigþrúður Guðmundsdóttir sem var framkvæmdarstýra kvennaathvarfsins í 16 ár.
Í þættinum fer Sigþrúður yfir afleiðingar heimilsofbeldis, afhverju konur fara ekki strax úr ofbeldissamböndum og hvað konur í þessari stöðu geta orðið veikar af alvarlegum sjúkdómum án þess að gera sér grein fyrir því. Þær eru margar ótengdar eigin tilfinningum og líðan að þær taka jafnvel ekki eftir einkennum sem annað fólk tæki eftir. “Ef maður setur sig í þessi spor að lifa í hættu ástandi heima hjá sér, stöðugt eftirlit, takmarkað frelsi, líkamlegt ofbeldi, yfirvofandi kynferðisofbeldi þegar það hentar þeim sem maður býr með, þá getur það bara lagst á konur, líkamlega og andlega”.
Wed, 07 Sep 2022 - 1h 12min - 104 - Kristján Ernir - segir að ofbeldismenning fái að grassera innan stjórnar SÁÁ
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Kristján Ernir Hölluson segir að ofbeldismenning fái að grassera innan stjórnar SÁÁ, en fjöldi manna sem hafa verið ásakaðir um ofbeldi gegn konum voru kosnir í stjórn samtakanna á aðalfundi þann 13. júní. Kristján Ernir segir að það varpi stórum skugga á stjórnina að þarna séu nokkrir menn sem sitja ennþá eftir í stjórn sem hafa verið sakaðir um ofbeldi gagnvart konum og játað að hafa beitt ofbeldi. “Málið er að þetta eru samtök sem sinna mjög mikilvægari þjónustu við fólk sem margt hvert er jaðarsett og/eða berskjaldað og valdalítið þegar það leitar sér hjálpar og þetta á sérstaklega við um jaðarsettar konur og ungmenni. Það er mjög ófaglegt og ber vott um skort á skilningi á mikilvægi siðferðis í þjónustu við fólk sem margt stendur höllum fæti þegar það leitar þjónustu að vera með menn sem hafa beitt konur ofbeldi í stjórn slíkra samtaka”.
Fri, 02 Sep 2022 - 05min - 103 - Gunnar Hersveinn - Best fyrir valdhafann að flestir hegði sér svipað
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Gunnar Hersveinn lauk prófi í heimspeki og sálfræði, blaðamennskunámi og hefur stundað meistaranám í kynjafræði. Gunnar er rithöfundur og hefur mikinn áhuga á friðarmenningu, átakamenningu og viðhorfum gagnvart manneskjunni. Í þættinum ræðum við meðal annars um skala illskunar “Ég er sannfærður um að þetta tengist einhverju valdakerfi. Það er best fyrir valdhafann að flestir hegði sér svipað, það er auðveldara að stjórna þeim og þá kemur þessi þrýstingur að vera eins og aðrir. Þannig það liggur í samfélagsgerðinni, kerfinu, valdakerfinu að þessi spilling á sér stað. Þeir sem standa hjá og sjá illskuna að verki og gera ekkert í því eru þá orðnir einhvers skonar fórnarlömb illskunar"
Wed, 31 Aug 2022 - 1h 02min - 102 - Sif Atladóttir - "Ég vildi bara sanna fyrir sjálfri mér að ég gæti þetta”
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
“Maður horfir stundum tilbaka og hugsar: hvað er maður með í höndnum eftir 13 ár í atvinnumennsku? fjárhagslega er það ekki neitt en það sem þetta hefur gefið mér fyrir lífið er bara stórkostlegt og ég myndi ekki skipta ferlinum mínum út fyrir neitt.” Segir Sif Atladóttir, sem er 36 ára atvinnukona í knattspyrnu. Í þættinum talar Sif um andlega partinn af fótboltanum og mikilvægi þess að leikmenn hafi greiðan aðgang að íþróttasálfræðingum. “Það sem hefur verið mikilvægast fyrir mig er að ég hef alltaf haft einhvern til þess að tala við. Ég myndi persónulega ekki ýta börnunum mínum út í afreksíþróttir af því að þetta er eitt af því erfiðasta sem þú getur gert”.
Fri, 26 Aug 2022 - 10min - 101 - Anna Khyzhnyak
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Anna stígur fram og lýsir reynslu sinni af því ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu barnsföður hennar. Anna er frá Úkraínu og segist vilja vekja athygli á því kerfislæga ofbeldi, sem erlendar konur verða fyrir. Takmörkun á aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum og vernd gegn ofbeldinu, þegar brotið er á þeim, getur haft alvarlegar og langvarandi áhrif. “Hver átti að vernda mig?” Segir Anna í þættinum og gagnrýnir það að þrátt fyrir nálgunarbann að þá hafi barnsfaðir hennar ennþá verið með umgengni við barnið og hafi því mátt mæta heim til hennar.
Tue, 23 Aug 2022 - 58min - 100 - Misnotaður af bróður sínum
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Vorið 2016 óskaði barnaverndarnefnd að lögreglan tæki til rannsóknar langvarandi ætluð kynferðisbrot drengs sem hafði greint sálfræðingi frá kynferðislegum athöfnum með yngri bróðir sínum, við köllum hann Pétur. “þetta var eins og að taka jörðina af bakinu á mér” segir Pétur og bætir við að það hafi verið mikill léttir þegar bróðir hans hafi ákveðið að segja frá kynferðisofbeldinu. Pétur segir frá því að hann hafi verið lagður í mikið einelti á þessum tíma og hafi ekki þekkt neitt annað en að líða illa. “Maður fattar bara ekki hvað þetta er algjörlega óeðlilegt og ég í rauninni fattaði það ekki fyrr en 2017” segir hann í þættinum og greinir frá því að hann hafi sótt mikið í vímuefni eftir að þetta komst upp. Einna erfiðasta, segir Pétur, er að hugsa til þess að fjölskyldan gæti sundrast vegna málsins en málið var aldrei rætt heima fyrir. “Fyrir mér var hann bara veikur og mér finnst hann ekki eiga neitt illt skilið” segir Pétur og bætir við að hann vilji halda fjölskyldunni saman. Pétur vill vekja athygli á afleiðingum kynferðisofbeldis en í dag glímir hann við þunglyndi og áfallastreituröskun. Hann segir Pieta samtökin hafa bjargað lífi sínu og hann sé fyrst og fremst að læra að lifa með þessu og skilja sjálfann sig.
Tue, 16 Aug 2022 - 10min - 99 - Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Barnsfaðir Freyju hlaut tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Maí 2020, fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni í rituðum samskiptum á Skype. Í Desember 2021 var hann síðan sakaður um að hafa átt samskipti við 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðla. Hann hafi sótt hana í heimhúsi og frelsisvipt stúlkuna í þrjá klukkutstundir þar sem hann meðal annars nauðgaði henni. Freyja var sjálf þolandi sem barn og segir mál barnsföður síns vera erfitt fyrir sig og börnin. Freyja lýsir því í þættinum þegar tálbeitan hringir í hana um nóttina og sendir henni mynböndin og samtölin milli barnsföður hennar og það sem átti að vera 13 ára stelpa. “Mér leið skelfilega því mér fannst hann hafa svikið mig með því að vera inná einkamál og svo var hann þarna að tala við einhvern sem hann hélt að væri 13 ára gömul stúlka” segir Freyja í þættinum. “Ég tók þessu bara þannig að […] Þetta er rétt eftir að ég slasast og ég er ekki búin að vera nóg” segir hún. Freyja og barnsfaðir hennar slitu sambandinu eftir fyrsta brotið en héldu þau áfram að búa saman. “Auðvitað þykir mér vænt um þennan mann, hann gaf mér barnið mitt og ég hef ekkert val. Ég Þarf að vera í samskiptum við þennan mann, sama hvað hann gerði” segir Freyja. Hún gagnrýnir kerfið og segir barnavernd ekki hafa haft samband við hana eftir að barnsfaðir hennar fékk dóm fyrir að brjóta á barni. Er eðlilegt að maður sem sakaður er um brot gegn barni umgangist börnin sín? Hvernig á að miðla upplýsingum til barna hans?
Wed, 10 Aug 2022 - 04min - 98 - Vala og Jóhanna - Rasismi á Íslandi
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Valgerður Kehinde og Jóhanna halda uppi hlaðvarpinu Antirasistarnir ásamt Instagram síðunni. Rasismi er oft hulinn fólki sem finnur ekki fyrir honum á eigin skinni og hvít forréttindi er að mestu leyti ósýnilegt þeim sem hafa það. “Ég skil ekki þessa menningu á íslandi að fólk megi bara segja og gera hvað sem er og það hefur engar afleiðingar fyrir neitt” Segir Jóhanna um ummæli Sigurðs Inga og bætir við að það sé með ólíkindum að forsetisráðherra sem er hvít kona í forréttindastöðu, hafi sagt hann vera búinn að segja fyrirgefðu. “Þetta var bara ekki hennar að fyrirgefa” Segir Vala. Jóhann segir lögregluna hafa haft samband við þær eftir að sérsveitin handtók svartan strák í strætó og beðið þær um að halda fræðslu. “Það sem ég hugsaði var að þetta er miklu stærra en við. Þetta þarf félagsfræðinga, afbrotafræðinga og fólk sem er háskólamenntað í lögreglufræði. Þetta þarf svart fólk sem er menntað á þessum sviðum” Segir Jóhanna í þættinum og segir að það þurfi að brjóta upp í kerfinu. Við viljum vera góð við hvort annað, þú getur ekki verið góð við manneskju án þess að sjá fordómana sem hún gengur í gegnum” segir Jóhanna í þættinum. Þær segja mikið um white fragility eða hvíta viðkvæmni. “Mér finnst ég sjá þetta oft hjá fyrirtækjum” segir Vala í þættinum og tekur dæmi þar sem ekki einn litaður einstaklingur var sýnilegur í fermingar auglýsingu frá Gallerí 17. “það var bara strax farið í vörn um að það hefði verið covid og að þau hafi bara hringt í frændsystkini sín” segir Vala og bætir við að það sé partur af vandamálinu að fullt af innflytjendum og fólk af lit komast ekki inn í þetta af því þau eru ekki frændfólk.
Sat, 06 Aug 2022 - 1h 10min - 97 - Gunnar Ingi - Lagður í einelti af kennara
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Hinn 19 ára Gunnar Ingi Ingvarsson, fyrrum nemandi í Víðistaðaskóla opnaði sig um einelti sem hann varð fyrir í grunnskóla. Gunnar segir frá því þegar hann var niðurlægður af stærðfræðikennara í unglingadeild sem gerði grín að þyngd hans fyrir framan aðra nemendur. “Hann skrifar Gunnar 85kg á töfluna og skrifar síðan “fat boy” undir nafnið mitt” segir Gunnar. “Mér leið eins og ég væri einn í heiminum og ég pældi oft í því að taka bara hníf […]” segir Gunnar. “Vinur minn hafði opnað sig um sjálfsvíg og ég vildi sýna honum að hann væri ekki einn” segir Gunnar í þættinum og bætir við að strákar eigi erfiðara með að tala um tilfinningar sínar sem getur orðið til þess að ungir karlmenn láti verða af því að fremja sjálfsvíg. “Ég taggaði stærðfræðikennarann á instagram og spurði hvort hann sæi eftir þessu og hann blokkaði mig bara” segir Gunnar og bætir við að honum finnist skólinn ekki hafa axlað ábyrgð á því einelti sem bæði nemendur og kennari beittu hann í Víðistaðaskóla. Hann segir að það sé mikilvægt að ungir strákar hafi öruggan stað til að opna sig. “Ég vil að þessi kennari verði rekinn” segir Gunnar í þættinum og bætir við að hann vilji sjá hvaða breytingar og aðgerðir skólinn hefur gert varðandi eineltismál.
Thu, 28 Jul 2022 - 10min - 96 - Klara Elías
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Hugfangin af Íslandi eftir 11 ár í Bandaríkjunum: Klara Elíasdóttir tónlistarkona varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom heim frá Los Angeles fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa búið ytra í ellefu ár. ,,Mér leið allt í einu eins og ég væri að draga djúpt andann í fyrsta skipti í mörg, mörg ár." Hún segir að Trump hafi breytt Bandaríkjunum til hins verra. Klara talar í þættinum um frægðina, útlitskröfur sem gerðar voru til hennar og ollu henni mikilli vanlíðan og um nýja þjóðhátíðarlagið sem hún samdi en aðeins tvö af 89 þjóðhátíðarlögum eru samin af konum.
Thu, 07 Jul 2022 - 10min - 95 - Lilja Gísla
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Lilja Gísladóttir er virk á Instagram og deilir þar mikið af efni tengt sjálfsást og jákvæðri líkamsímynd. “Það kemur alltaf einhver einkaþjálfari eða opinber persóna og hendir því fram að það sé óhollt að vera feitur” segir Lilja í þættinum og bætir við að það sé mikilvægt að minna fólk á að allir feitir eru ekki óheilbrigðir. Í þættinum ræðum við um fitufordóma og hvernig þeir birtast í samfélaginu.
Tue, 28 Jun 2022 - 1h 14min - 94 - Kristín Sóley (mamma Lilju)Fri, 24 Jun 2022 - 10min
- 93 - Antonía Arna
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Antonía Arna kom út úr skápnum sem trans árið 2013 fyrir fjölskyldu og vinum. Árið 2016 ákvað hún síðan að koma út opinberlega og segir ferlið ekki hafa verið auðvelt. “ Til að fá heilbrigðisþjónustu þurfum við að komast í gegnum ákveðin “hliðarvörð”. Ég fór fyrst til geðlæknis og hann sendi mig áfram til sálfræðings hjá Kleppi og þar átti ég síðan að tala við annan lækni. Þar þurfti ég að svara mjög skrítnum spurningum eins og: “trúir þú að afl úr geimnum hafi komið þessum hugsunum inn í hausinn á þér” segir Antonía en hún bætir við að margt hafi breyst síðan þá. Antonía ræðir sína upplifun af því að koma út úr skápnum og hvernig áhrif það hafði á hana.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Tue, 21 Jun 2022 - 55min - 92 - Gerandi ofbeldis
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
“Ég var að beita líkamlegu og andlegu ofbeldi gagnvart konunni minni og börnum. Ég beitti konuna mína líka kynferðislegu ofbeldi” segir hann, en hann kýs að koma fram undir nafnleynd.
Í þættinum förum við yfir reynslu hans af því að beita ofbeldi og afhverju hann ákvað að leita sér hjálpar. “Ég hefði ekki farið ótilneyddur, óumbeðinn á sínum tíma […] þá hefði ég ekki verið að fara að niðurlægja sjálfan mig með því að segja að ég væri eitthvað vandamál. […] ég þurfti smá úrslitakost” segir hann í viðtalinu. Það eru 12 ár síðan hann ákvað að leita sér hjálpar hjá “karlar til ábyrgðar” eða það sem heitir Heimilsfriður í dag. “Það hefði ekki verið nóg fyrir mig að fara bara í meðferð” segir hann í viðtalinu og bætir því við að menn geti alveg hætt að drekka áfengi og samt haldið áfram að beita ofbeldi.
Tue, 14 Jun 2022 - 10min - 91 - Þórdís Elva
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Hinn fullkomni þolandi er ekki til. Niðurstaðan í dómsmáli leikarans Johnny Depp á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Amber Heard, er áhyggjuefni fyrir þolendur ofbeldis. Sú niðurstaða gæti valdið því að fólk sem stígur fram og lýsir því að hafa verið í ofbeldissambandi, án þess að nafngreina geranda og án þess að tilgreina sérstök atvik þess efnis eða tímasetningar eigi á hættu að vera kærð fyrir þau ummæli. „Þá værum við farin að sjá ansi mikla og kröftuga þöggun, það væru áhrifin sem þetta væri að hafa og það er óskandi að slíkt gerist ekki,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir í viðtalið við Eddu Falak í nýjasta þætti Eigin kvenna.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Wed, 08 Jun 2022 - 1h 03min - 90 - Helga Lilja
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Helga segir óreglu hafa verið á heimili sínu þegar hún var ung en foreldrar hennar skilja þegar hún var 5 ára. Faðir Helgu byrjar með annari konu “Það var mikil neysla inná heimilinu en þetta var ekki þetta týpíska neyslu lífernið, þú veist.. þau voru rosalega góð” segir Helga og bætir við að fólk hafi oft ákveðna mynd af fólki sem eru alkahólistar. Móðir Helgu kemur út úr skápnum þegar Helgar er átta ára “Mér var alveg sama en krakkarnir í skólanum voru alltaf að spurja mig hvort mamma mín væri lessa og hvort pabbi minn væri þá hommi líka” segir hún og bætir við að á þessum tíma hafi þetta þótt mjög skrítið. “Ég tók bara upp þessa grímu, ég ætla að vera töffari af því að ég ætla ekki að leyfa neinum að sjá hvað ég er brotin” segir Helga og bætir við að hún hafi í kjölfarið farið í fóstur. Helga ræðir tímabilið sem hún leiddist út í neyslu en hún prófaði áfengi fyrst þegar hún var tólf ára og síðan gras “Það er alltaf talað um þessa krakka sem verða fyrir hópþrýstingi og byrja þannig í neyslu en ég var þessi hópþrýstingur” segir hún í þættinum. “Það fylgir þessu svo mikið kæruleysi og þegar þú nærð að bæla tilfinningar með einhverju efni að þá fór ég bara að hugsa hvað næsta efni gæti gert fyrir mig” segir Helga og bætir við að henni hafi verið alveg sama á þessu tíma. Helga talar um í þættinum að boltinn hafi fyrst byrjað að rúlla þegar hún prófað e-pillu í fyrsta skiptið. Helga segir tímana hafa breyst mikið og á þeim tíma hafi hún mesta lagi notast við Myspace síður. “Þú gast ekkert farið inná fullt af síðum og fundið fullt af númerum” segir Helga og bætir við að miklu erfiðara hafi verið að ná sér í efni. “Ég man þegar ég prófaði róandi fyrst, pabbi gefur mér róandi og þá heldur bara boltinn áfram að rúlla” segir Helga og bætir við að pabbi hennar hafi fallið frá stuttu seinna og þá hafi tekið við mjög harkaleg neysla. Helga verður ólétt af elsta barninu sínu sautján ára og verður þá edrú á meðan meðgöngunni stendur. Helga fellur stuttu eftir að hún á barnið en skráir sig fljótt í meðferð. “Það tekur smá tíma að komast inn og ég tók ákvörðun um fara bara alla leið í neyslu og byrjaði þá að nota efni í æð til þess að klára mig” segir Helga í þættinum og bætir við að mamma hennar hafi tekið barnið á meðan.
Tue, 31 May 2022 - 10min - 89 - Mæður kvarta til Landlæknis
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Tíu mæður hafa sent kvörtun til embættis Landlæknis vegna „ófaglegra vinnubragða og hlutdrægni sálfræðinga sem taka að sér hlutverk dómkvaddra matsmanna og sérfróðra meðdómsmanna í forsjármálum. Ein þeirra sem sendir inn kvörtun hafði sótti um skilnað þegar barnsfaðir hennar beitti barnið hennar líkamlegu ofbeldi sem endaði með dómi fyrir héraðsdómi og landsrétti. Á meðan málið er í gangi fór hann í forsjármál og dómari dæmir lögheimili hjá honum og hún fær barnið aðra hverja helgi. Matsmenn segja hana leika fórnarlamb til að hafa af honum fé. Þrjár kvennanna hafa þegar sagt sögu sína áður í Eigin Konur, þær Bryndís Ásmunds, Helga Agatha og Helga Sif.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Thu, 26 May 2022 - 57min - 88 - Tanya
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Tanya er heilari og hefur verið hávær í umræðunni um ofbeldi í andlega heiminu. Tanya fór í þáttinn Kompás sem var tekinn upp í fyrra og hefur umræðan stækkað síðan þá. “Það er verið að gera allskonar, kannski heil helgi þar sem er verið að fara í allskonar skuggavinnur og ýta á fólk að opna sig” segir hún. Tanya gagnrýnir vinnubrögð þeirra sem eru að halda slík námskeið. “Þar er verið að blanda sveppum við kakóið og verið að fara með þetta á óábyrgan hátt” segir hún í þættinum og bætir við að margir viti ekki hvað þeir eru að fara út í. Tanya hélt eitt sinn kakó athöfn á þessu svæði. “Mér brá soldið við að sjá átta og níu ára börn á svæðinu, það var vitað mál að ég var að fara í vinnu sem var ekki fyrir börn” segir Tanya í þættinum og bætir við að börn séu ekki velkomin á hennar viðburði. Tanya segir suma viðburði á vegum Sólseturs meira intense en búast megi við. “Ég fór þangað til þess að búa til handgerða trommu en allt í einu var sett á rave techno tónlist, allir áttu að fara að dansa og áður en ég veit af að þá er einhver maður nakinn þarna” segi hún og bætir við “ég er ekki tepra en ég vil samt fá að vita út í hvað ég er að fara”. Tanya segir mikið af þolendum hafi leitað til sín. “Það kemur maður hingað, sem telur sig vera kynlífs heilari, og þá byrja að koma fleiri kynlífsathafnir inn í þetta og þetta byrjar að vera andinn í kringum þetta setur” segir hún. Tanya segir sjálf hafa verið í sjálfsvinnu þegar hún leitaði til þeirra. “Fyrsta sem mætir manni er bara opið faðmlag, mikil ást og öll réttu orðin notuð” segir Tanya og bætir við að mikið markarleysi sé um að ræða. Tanya segir þolendur upplifi mikla skömm. “Manni er talin trú um að þetta sé það sem maður þurfi, að láta snerta sig” segir Tanya. “Maður er kannski búin að borga sig inná viðburð sem fór algjörlega úr böndunum og þá líður manni eins og maður hafi boðið uppá þetta” “Stefnan þarna er “tantra iceland” og húsið er “tantra hús” og þetta eru orðin sem þau eru að nota. Þetta er stórt svæði sem er plastað og verður svona eins og sundlaug og þetta á að vera svona tantra heilun” segir hún og bætir við að þetta sé kynnt sem eitthvað jarðbundið og heilandi en svo sé þetta mjög markalaust og ófagmannlegt. “Þetta er miklu stærra en lítill hópur sem er að lifa frjálsu lífi sem vill vera í friði” segir Tanya. “Það er mikil ábyrgð sem felst í svona vinnu og þegar þú ert farin að rukka fé, angra nágranna þína, blanda börnum og fólki saman þegar það á ekki við. Ef maður er ekki að taka tillit til einstaklingsins og þau gildi sem við viljum hafa í samfélaginu að þá finnst mér þessi saga um hóp sem vill bara lifa frjálsu lífi bara hluti af gaslýsingunni” Vil erum bara komin á þennan stað að þetta er grafalvarlegt.
Tue, 24 May 2022 - 10min - 87 - ,,Þeir eru að kaupa sér vald"
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Brynhildur Björnsdóttir og Eva Dís Þórðardóttir segja í þættinum frá bókinni Venjulegar konur sem fjallar um vændi á Íslandi. Í bókinni sem Brynhildur skrifar er rætt við sex konur sem hafa verið í vændi á Íslandi og einn karl sem hefur keypt vændi. Eva Dís fékk hugmyndina að því að setja reynslusögur kvenna sem hafa verið í vændi í bók. Eva Dís og Brynhildur segjast vilja sýna að vændi jafnvel þótt það sé óþvingað, geti haft miklar og slæmar afleiðingar.
Eva Dís segir lang flestar konur sem hafa verið í vændi séu ekki reiðubúnar að stíga opinberlega fram og á meðan svo sé hafi hún tekið að sér að tala fyrir þeirra hönd en Eva Dís var sjálf í vændi í Kaupmannahöfn um skeið. ,,Ég þurfti að vera búin að taka fjóra kúnna yfir daginn áður en ég fór að fá pening til þess að eiga fyrir auglýsingunum, til þess að borga fyrir leiguna á herberginu sem ég notaði á vændishúsinu, ég þurfi að borga símadömu og ákveðin verndargjöld inní skipulagða glæparstarfsemi. Það er fyrir utan, fatnað, smokka, sleipiefni og allt draslið sem maður þarf til að stunda þetta, segir Eva Dís. Hún segir að í Þýskalandi kosti vændi svipað og hamborgari á skyndibitastað og það sé líka mjög ódýrt að kaupa aðgang að líkama kvenna í vændi í Danmörku. ,,Fyrir mér er kynlífsvinna ekki orð,” segir Eva Dís og Brynhildur segir að þeir sem kaupi aðgang að líkama kvenna séu alls ekki að kaupa kynlíf. ,,Þeir eru að kaupa sér vald. Þeir eru að kaupa sér réttinn á því að ganga yfir mörk” segir Brynhildur.
“Við verðum að berjast gegn því að normalisera vændi, af því að það er bara ekkert normal við vændi” segir Brynhildur og bætir við að 90 prósent þeirra sem hafa verið í vændi upplifi það sem ofbeldi. Eva Dís og Brynhildur fara einnig yfir það í þættinum hvaðan hugmyndir okkar um vændi eru komnar og þá staðalímynd sem við höfum af konum í vændi. ,,Fólk heldur að þetta séu konur sem finnst kynlíf bara geggjað og þetta séu bara einhverjar kynlífsvélar” segir Brynhildur.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Thu, 19 May 2022 - 1h 07min - 86 - Lilja Bjarklind
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Lilja stígur fram af miklu hugrekki og segir sögu sína. Barnaníðingurinn Guðmundur Árni Sigurðsson var dæmdur fyrir að hafa á árunum 2001-2003 misnotað hana þegar hún var átta ára þangað til hún var tíu ára. “Ég er bara ein að labba þegar hann stoppar og býður mér far” segir hún. Lilja segir frá því hvernig Guðmundur lokkaði hana með sér í grænni Suzuki Baleno bifreið á þeim forsendum að hún fengi að keyra bílinn. “Hann tekur mig bara svona yfir og á meðan ég er að keyra að þá er hann að fara inn á mig og þukla á mér” segir hún í þættinum og bætir við að hún hafi frosið og þótt þetta mjög skrítið.
Hún segir Guðmund hafa keyrt um bæinn og leitað að sér. “Hann var alltaf mættur þar sem ég var að leika” segir hún í þættinum. Lilja segir brotin hafa aðallega átt sér stað heima hjá honum en stundum hafi hann keyrt með hana út í móa og brotið á henni þar. “Þetta var bara eitthvað sem við gerðum og ég vissi alltaf hvað var að fara gerast” segir hún í þættinum. Lilja veit það í dag að þetta var ekki eitthvað sem hún gerði, heldur hann. Þeta var eitthvað sem hann gerði.
Guðmundur var 54 ára gamall og barnlaus og bjó heima hjá foreldrum sínum á þeim tíma. “Ég vildi oft fá að heilsa uppá mömmu hans til að kaupa aðeins tíma” segir Lilja og bætir við að eftir spjallið hafi Guðmundur opnað hlera þar sem hún átti að fara niður. Lilja segir það mög súrt að móðir Guðmunds hafi ekki gert athugasemd við að Guðmundur hafi verið að fá Lilju til sín í heimsókn.
Fri, 13 May 2022 - 10min - 85 - Ugla Stefanía
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir segir að umræða um trans sé enn mjög erfið í Bretlandi en hún vinnur sem greinahöfundur fyrir fréttamiðilinn MetroUK. ,,Í Bretlandi þarft þú bara að undirbúa þig undir að það verði sett mjög transfóbísk manneskja á móti þér og þið þurfið að rífast í beinni útsendingu,” segir Ugla en hún kom sjálf úr skápnum sem trans árið 2010 og flutti til Bretlands sex árum síðar. Ugla segir að bresk fjölmiðlamenning sé afar ofbeldisfull. Hún ræðir um ábyrgð fjölmiðla í þættinum Eigin Konur og veltir upp spurningunni hvenær umræða er tengd málfrelsi og hvenær hún er hreint og klárt ofbeldi. ,,Þegar þú ert farin að grafa undan réttindabaráttu minnihlutahópa, þá ert þú ekki lengur í neinu málfrelsi,” segir hún í þættinum. Hún segir að hatursfull umræða sé farin að láta á sér kræla á Íslandi og að fólk gleypi auðveldlega við áróðri. Hún nefnir sérstaklega umræðuna um íþróttir og kynjuð rými sem hefur verið áberandi og þá sérstaklega varðandi transkonur í íþróttum. ,,Það er eins og það sé engin gagnrýnin hugsun eins og í tengslum við íþróttamál, að transkonur séu með einhverja yfirburði og það sé bara verið að skemma kvennaíþróttir,” segir Ugla í þættinum.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 09 May 2022 - 1h 26min - 84 - Móðir mín glímir við narsisíska persónuleikaröskun
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ung stelpa stígur fram og lýsir ofbeldi af hálfu foreldra. Hún segir mikið ofbeldi hafi verið á heimilinu sem fór síðan versnandi eftir að mamma hennar og pabbi skyldu. “Ég hef ekki upplifað venjulegt líf án ofbeldis í svo langan tíma, maður verður bara alveg dofin og ég hætti alveg að treysta fólki” segir hún í þættinum. Hún lýsir í þættinum líkamlegu og andlegu ofbeldi sem hún varð fyrir og áhrifin sem það hafði á námið hennar. “Þriðja árið mitt í MR var ofbeldið verst sem endaði með því að ég hætti í skólanum og bróðir minn fór í neyslu” segir hún og bætir við að á þesum tíma hafi henni ekki langað að lifa lengur. “Hún fann alltaf ástæðu til að öskra á mig og refsa mér. Hún faldi dótið mitt til þess að geta sakað mig um að hafa týnt því og reiðast mér þannig” segir hún og lýsir því hvernig hún fór síðan að efast um eigin dómgreind og hugsanir. Móðir hennar hótaði að henda henni út ef hún hlýddi ekki og einangri hana frá vinum sínum. Hún segir lögregluna hafa haft afskipti af heimilinu og margar tilkynningar hafi verið sendar til barnavernd og furðar sig á því afhverju engin gerði neitt.
Thu, 05 May 2022 - 10min - 83 - Guðrún Dís
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Guðrún Dís sem er nítján ára segir í þættinum frá sinni upplifun af því að alast upp hjá móður sem á við áfengisvandamál að stríða. Hún segist hafa ákveðið að segja frá sinni hlið mála eftir að mamma hennar opinberaði sögu sína á Youtube. Guðrún hefur nú lokað á öll samskipti við mömmu sína. ,,Ég átti góða æsku og mamma mín var æðisleg. Það var alltaf nýbakað brauð þegar ég kom heim og mamma hugsaði mjög vel um mig," segir Guðrún Dís í þættinum. Hún segir að líf sitt hafi breyst mjög til hins verra þegar hún var 12 ára því þá hafi mamma hennar byrjað að drekka. Í kjölfarið hafi fjölskyldan misst heimilið og að hún og systkini hennar hafi flakkað milli hjólhýsa og hótela. ,,Ég byrjaði alla morgna á að spyrja hvert ég ætti að koma eftir skóla, því maður vissi aldrei hvar maður myndi vera næstu nótt,” segir Guðrún Dís. Hún talar einnig um að hafa upplifað mikla skömm yfir því að hafa hvergi átt heima og það hafi verið erfitt að útskýra fyrir kennurum og öðrum hvers vegna hún kom oft of seint í skólann en Guðrún segist hafa þurft að sjá um litla bróður sinn líka, þar á meðal undirbúa hann fyrir leikskólann og fylgja honum þangað. Guðrún segist ekki hafa orðið reið fyrr en hún lokaði á mömmu sína. Hún segir samskipti þeirra mæðgna lengi hafa verið mjög óheilbrigð og að hún hafi upplifað sig sem meiri vinkonu en dóttur mömmu sinnar. Guðrún reykti gras í fyrsta sinn með mömmu sinni. Það var á aðfangadag. Hún segir að sér hafi fundist það ,,nett” á þeim tíma en um leið hafi hún glímt við mikla vanlíðan. Guðrún segir mömmu sína glíma við mikil veikindi en hún eigi ekki og geti ekki borið ábyrgð á foreldrum sínum. Í dag segist hún glíma við mikla áfallastreituröskun og lýsir yfir miklum vonbrigðum með að starfsfólk barnaverndar skyldi ekki hafa gripið inn í miklu fyrr en það gerði.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 02 May 2022 - 35min - 82 - Patrekur
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Patrekur bjó með móður sinni og stjúpföður þegar hann reyndi alvarlega sjálfsvígstilraun. Helga Sif er móðir Patreks, en hún steig fram í viðtali við Eigin Konur þann 25 Apríl og lýsti ofbeldi föðursins. Patrekur stígur nú fram í stuttu viðtali við Eigin Konur og segir sárt að ekki hafi verið hlustað á sig eða systkini hans í málinu.
Tue, 26 Apr 2022 - 01min - 81 - Helga Sif og Gabríela Bryndís
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Helga sif er í forsjármáli við barnsföður og stígur fram eftir að barnsfaðir hennar birti gerðardóminn á Facebook og nafngreindi bæði hana og börnin. Gabríela Bryndís er sálfræðingur og einn af stofnendum “Líf án ofbeldis” og hefur verið að hjálpa Helgu í málinu. Helga á elsta barnið utan hjónabands en þau eiga tvö börn saman. Elsta barnið upplifði mikið ofbeldi af hálfu föður að barnið reyndi alvarlega sjálfsvígstilraun, varð meðvitundalaust en var bjargað. Barnið lagðist inn á BUGL þar sem kemur í ljós að aðstæður heima fyrir eru hræðilegar. BUGL fylgir móður í Bjarkarhlíð þar sem hún lýsir kynferðislegu og andlegu ofbeldi þar sem hótanir og þvinganir voru notaðar til að fá hana og börnin til að hlýða. Barnavernd hvetur Helgu til að skilja við barnsföður, ellegar yrði barnið sett í fóstur. Börn Helgu hafa lýst því í viðtali við barnavernd og sálfræðing að þau séu hrædd við föður og hann hafi beitt þau ofbeldi. Dóttir Helgu tilkynnti kynferðisofbeldi af hálfu föður og segir föður hafa snert sig innanklæða í mörg skipti og um bæði efri og neðri einkastaði hafi verið að ræða. Helga skilur við barnsföður sinn og sálfræðingar koma að málinu fyrir dómi og telja föður hæfan og móður bilaða. Yngsta barnið er langveikt og má við engu álagi. Nú er búið að samþykkja að lögreglan sæki 10 ára gamalt langveikt barn með valdi, og færi í hendurnarn á barnsföður.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 25 Apr 2022 - 54min - 80 - Armani - Sagði sig úr Votta Jehófa
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Armani sagði sig úr söfnuði Votta Jehóva og hefur ekki fengið að hitta fjölskylduna sína í 11 ár. Armani segir frá andlegu ofbeldi innan Votta Jehóva, harðræði, baktali og afhverju hann ákvað að hætta. Öldungarnir eru þeir sem sjá um að halda öllu í skefjum og ef þú gerir eitthvað af þér að þá ertu kallaður á fund. Eitt af reglunum voru að þú máttir ekki reykja, kyssa stelpu, fara í afmæli eða stunda íþróttir ef öldungarnir töldu það bitna á trúnni. Fjölskyldan hans setti honum skilyrði að ef hann myndi hætta að þá væri hann ekki partur af fjölskuldunni. Hann lýsir miklum einmannaleika eftir að hann sagði sig úr söfnuðinum og átti enga vini. Armani hefur stofnað stuðningshóp fyrir votta sem eru að stíga sín fyrstu skref úr söfnuðinum og það má hafa samband við hann ef þú ert að íhuga að hætta.
Thu, 21 Apr 2022 - 10min - 79 - Gígja, Kolla og Brynja
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Gígja, Brynja og Kolla voru vistaðar á meðferðarheimilnu Laugalandi sem Ingjaldur Arnþórsson stýrði frá árinu 1997 til 2007. Þær lýsa því hvernig þær voru beittar andlegu og líkamlegu ofbeldi sem minnir mann helst á frægu þáttaseríuna “Handsmaid tail”. Fyrverandi skólastjóri talaði meðal annars um að þetta hafi verið valdbeiting, sem þurfti að beita til að stöðva óæskilega hegðun. Hendir maður barni niður stiga fyrir óæskilega hegðun? Það virðist vera sem fáir vilji axla ábyrgð á ofbeldinu sem átti sér stað á Laugalandi og horfast í augu við hversu hryllilegu ofbeldi þau beittu. Í lok Apríl á að skila niðurstöðum rannsóknar á því hvort börn hafi verið beitt ofbeldi á Laugalandi. Lítið er um svör og upplifa þær eins og fólki sé alveg sama: “ég upplifði eins og fólki líði eins og við höfum verið að kvarta yfir engu, skiptir þetta engu máli?” Þær ræða einnig afleiðingar sem þær glíma við í dag og hvernig biðin eftir niðurstöðum hefur verið rosalega erfið „Þetta gerði taugakerfinu mínu eitthvað, minnstu áföll valda mér mikill vanlíðan, líkamlegum verkjum þar með talið. Þetta hefur undið þannig upp á sig að ég hef glímt við mjög mikla áfallastreitu síðustu mánuði"
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 18 Apr 2022 - 1h 14min - 78 - Ofbeldi af hálfu foreldra
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Hún hefur lokað á bæði mömmu sína og pabba eftir að þau beittu hana bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún ólst upp í Póllandi en flutti til Íslands 9 ára gömul og starfar móðir hennar sem grunnskólakennari í dag. Í dag glímir hún við vefjagigt og getur ekki lyft höndum upp fyrir haus, sem læknir hefur skráð sem afleiðing af endurteknu heimilsofbeldi. Í minningunni segir hún foreldra sína hafa lamið sig nánast á hverjum degi frá því hún man eftir sér og notað var annað hvort belti, reipi eða berar hendur. Þegar hún flytur til íslands stoppar líkamlega ofbeldið og við tekur andlegt ofbeldi. Hún ræðir þær afleiðingar sem hún glímir við í dag og hvernig kerfið sér ekki um að grípa þá einstaklinga sem þurfa á hjálp að halda.
Thu, 14 Apr 2022 - 10min - 77 - Brá Guðmunds
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Aðeins 19 ára gömul var Brá seld í mansal til Frakklands. Brá kynnist manni í Þýskalandi sem býður henni starf sem aupair í Frakklandi. Þegar maðurinn sækir hana á flugvöllinn að þá áttar Brá sig fljótlega á því að maðurinn var ekki franskur og var ekki með starf fyrir hana sem aupair. Hún var læst inni í marga daga þar sem gerðir voru ógeðslegir hlutir við hana og segir hún þann tíma vera í mikilli móðu. Brá er síðan seld áfram í annað húsnæði þar sem hún er misnotuð og segir að hún hafi upplifað mikla skömm á þessum tíma, enda hafi hún ekki þorað að segja foreldrum sínum frá þessu strax. Brá opnar hér á ótrúlega sögu og talar einnig um afleiðingar sem hún er að glíma við í dag.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 11 Apr 2022 - 1h 03min - 76 - Ragnheiður
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ragnheiður er aðeins 15 ára gömul en hún fór með mömmu sinni til Noregs með einkaflugvél að sækja bræður sína. Samfélagsmiðlar gera börnum kleift að tjá sig opinberlega og hefur Ragnheiður verið að segja sína sögu á miðlinum TikTok. Hún talar opinskátt um málið sitt eftir að barnavernd og sálfræðingur brugðust henni. Hvenær leyfum við rödd barna að heyrast? í þessu viðtali segir Ragnheiður stuttlega frá því sem hún er nú þegar að tala um á TikTok og hver hennar upplifun á ferðalaginu til Noregs var.
Tue, 05 Apr 2022 - 02min - 75 - Edda Arnardóttir
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Edda Arnardóttir fór og sótti strákana sína með einkaflugvél til Noregs. Eftir ráðfæringar við fagfólk var það eina í stöðunni að sækja börnin. Hún lýsir erfiðum aðstæðum áður en hún ákvað að sækja börnin sín, þar sem börnin hafi ekki mátt fara til tannlæknis og að fimm ára sonur hennar hafi komið til Íslands með sýkingar í munni og miklar tannskemmdir. Hún segir samband sitt við barnsföður sinn hafa verið erfitt og beitti hann hana miklu andlegu ofbeldi. Edda ræðir aðdragandann og ákvörðunina í kringum flugvélina og hvernig henni leið á meðan ferðinni stóð. Edda leggur einnig fram kæru fyrir hönd dóttur sinnar þegar hún opinberar kynferðisofbeldi sem hún segir pabba sinn hafa beitt hana og talar Edda um að það hafi verið punkturinn yfir i-ið.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 04 Apr 2022 - 1h 02min - 74 - Valdakarlar sem nýta sér neyð kvenna
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Þessi þáttur fjallar um valdamikinn mann sem hefur verið að nýta sér neyð kvenna. Hún segir frá sínum samskiptum við manninn og hversu algengt það er að ríkir og giftir menn séu að kaupa vændi af konum með fíknisjúkdóm.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Wed, 30 Mar 2022 - 1h 00min - 73 - Ólöf Tara
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ólöf Tara er stjórnarmeðlimur í Öfgum og starfar sem þjálfari. Ólöf og stelpurnar í Öfgum hafa verið mjög áberandi í baráttunni og förum við aðeins yfir þær hótanir sem Ólöf hefur verið að fá. Við erum að sjá meira rými fyrir þolendur til þess að nafngreina og segja frá ofbeldi án þess að eiga von á meiðyrðakæru. Við förum yfir valdamisræmið þegar 30-50 ára menn eru með 16-20 ára stelpum og afhverju 30+ einstaklingur er að sækjast í 18-20 ára einstakling. Það er að verða auðveldara að tjá sig á internetinu undir fölsuðu nafni og haturorðræða, hótanir og áreiti er alltaf að aukast. Reiðir einstaklingar á netinu eyða tíma sínum í að búa til fölsuð samtöl og vinna hörðum höndum við að taka niður fólk í baráttunni. Ólöf les upp ógeðsleg komment sem menn hafa látið falla um hana í kommentakerfinu og hvernig lögreglan hefur ekki tekið málinu alvarlega. Hún segir fjölmiðla eiga stóran þátt í að leyfa hatursorðræðunni og hótunum að grasserast í kommentakerfinu þar sem menn espa hvorn annan upp. Fjölmiðlar hafa í mörg ár málað konur í baráttunni upp sem reiðar og lagt áherslu á hversu “orðljótar” þær eru. “Afhverju má ég ekki bara vera reið yfir því að konur eru beittar ofbeldi á hverjum degi og þeim er ekki trúað, afhverju má ég ekki vera reið yfir því að réttarkerfið er ótrúlega brotið og gallað? Afhverju má ég ekki bara vera reið yfir því að mínir gerendur hafa komist upp með að beita ofbeldi og það er talað um mig eins og ég sé klikkuð? Ég má bara vera reið yfir því.”
Fri, 25 Mar 2022 - 10min - 72 - Edda Pétursdóttir
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Edda Pétursdóttir segist í rúm níu ár hafa lifað við stöðugan ótta um að fyrrverandi kærasti hennar, Frosti Logason, myndi láta verða af ítrekuðum hótunum um að dreifa kynferðislegum myndböndum af henni, sem hann hafi tekið upp án hennar vitundar meðan þau voru enn saman. Maðurinn sem hún segir að sé þekktur á Íslandi hafi auk þess áreitt hana með stöðugum tölvupóstsendingum og smáskilaboðum. Hún segir lögreglu hafa latt hana frá því að tilkynna málið. Hún segir að ofbeldið hafi í raun aukist eftir að þau hættu saman. „Þá skapaðist einhverskonar umsátursástand. Hann sendi mér tölvupóst oft í viku til að byrja með þar sem hann sakaði mig um svik og fór fram á að ég kæmi heiðarlega fram við sig. Bréfunum fækkaði eftir því sem tíminn leið frá því við hættum saman en í um tæpt ár eftir sambandsslitin sendi hann hátt í 80 tölvubréf og fjölmörg sms. Í flestum eru einhverskonar hótanir og svo segir hann ógeðslega hluti um mig,“ segir Edda. „Það þurfti heila Metoo bylgju til að ég leitaði mér aðstoðar. Hún var sparkið sem ég þurfti. Ég er ekki eins hrædd núna. Það er svo gott að finna að fólk trúir mér. Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður.
Wed, 16 Mar 2022 - 1h 55min - 71 - Andrea Nótt
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Andrea Nótt hefur ekki talað við mömmu sína í rúm 10 ár en hún bjó á heimili móður sinnar í 17 ár. Við ræðum aðeins afleiðingar þess að verða fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi sem barn af hálfu foreldri og hvernig Andrea hefur aldrei átt rétt á sínum tilfinningum. Móðir Andreu hefur komið fram í fjölmiðlum oftar en einu sinni þar sem hún opinberar sjálf ofbeldi sem hún varð fyrir. Móðir Andreu er þolandi ofbeldis og reynir Andrea ekki að draga úr frásögn móður sinnar og gerir sér fulla grein fyrir því að móðir hennar er þolandi hrottalegs ofbeldis. “Það sem stakk mig er þegar ég heyrði mömmu mína segja í sjónvarpinu að hún myndi aldrei beita börnin sín ofbeldi”. Andrea segir mömmu sína hafa beitt sig líkamlegu, andlegu og fjárhagslegu ofbeldi. Hún falsaði undirskrift hennar og keypti hluti á nafni Andreu. Hún öskraði, gerði lítið úr henni og taldi henni trú um að hún væri með einhverfu. Það er ekki óskiljanlegt að fólk sem varð fyrir ofbeldi í æsku beiti ofbeldi sjálft þó það afsaki ekki ofbeldið. Andrea fék reglulega að heyra “þú hefur ekki upplifað jafn slæma hluti og ég” og “þetta er ekkert miðað við það sem ég varð fyrir”.
Thu, 10 Mar 2022 - 11min - 70 - Sema Erla
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Sema Erla er stjórnmála og Evrópufræðingur. Hún er stofnandi Solaris sem er hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk. Við förum yfir hvers vegna það ætti að leggja niður útlendingastofnun og við hvernig aðstæður flóttafólk hefur búið við hér á Íslandi. Hvorki stólar né borð hafa verið í húsnæði sem útvegað hefur verið fyrir flóttafólk og sat fólk á gólfinu að borða. Bannað hefur verið að heimsækja flóttafólk og þarf fólk að vera komið heim fyrir kl 10 á kvöldið annars hefur fólk þurft að sofa úti. Afhverju býr flóttafólk við mikla félagslega einangrun? Afhverju eru börn flóttafólks sett í sér skóla? Afhverju er bannað að heimsækja þetta fólk? Sema reyndi eitt sinn að fara með bækur, spil og páskaegg til flóttafólks sem dvaldi á vegum útlendingastofnunnar. Í kjölfarið var henni hótað kæru fyrir að brjóta lög þar sem það má ekki koma með spil til þeirra. Við ræðum einnig orð dómsmálaráðherra þegar hann stígur fram í fjölmiðlum með mjög rasísk viðhorf og mjög rasískan hugsunarhátt. Kallað hefur verið eftir viðbrögðum frá öðrum ráðherrum en enginn hefur sýnt viðbrögð. Sema segir Orðræðuna í dag vera alveg eins og þegar gyðingar voru að sækja um vernd á Íslandi “við þurfum nú að huga að okkar fólki”. Sema fær reglulega hótanir og förum við aðeins yfir ábyrgð fjölmiðla þegar kemur að kommentakerfum. Sema reyndi að kæra mann fyrir ummæli sem hann lét um hana þar sem hann hvatti fólk til þess að drepa hana og vitnaði í ákveðið morðmál. Kæran náði ekki að fara í gegn.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Macland - https://macland.is/
Mon, 07 Mar 2022 - 1h 51min - 69 - Elísabet Ormslev
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Söngkonan Elísabet Ormslev opnaði sig um samband sitt við tónlistarmanninn Pétur Örn, betur þekktur sem Pétur Jesús. Samband þeirra byrjaði þegar hann var 38 ára og hún 15-16 ára, áður en hún útskrifaðist úr grunnskóla. Hann sagði snemma við hana að það mætti enginn komast að þessu vegna aldurs hennar því fólk myndi dæma hann og hann myndi missa vinnuna. Foreldrar hennar reyndu að senda á Pétur og hafði pabbi hennar samband við móðir Péturs sem tók ekki vel í skilaboðin og sagði Pétur vera fullorðinn einstakling sem mætti gera það sem hann vildi. Í þessu einlæga viðtali talar Elísabet um hvaða afleiðingar þetta hefur haft á hana og líf hennar. Hún segir hann hafa haldið henni í heljargreipum og stýrt henni eins og strengjabrúðu. Elísabet var farin að fá martraðir og þegar henni var farið að dreyma hann vera að meiða barnið hennar hafi hún ákvað að skila skömminni þangað sem hún á heima: hjá Pétri.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Mon, 28 Feb 2022 - 1h 28min - 68 - Erpur
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Erpur Þórólfur Eyvindarson, einnig þekktur sem Blaz Roca er einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands. Erpur ræðir meðal annars um nýja lagið sitt, metoo, pólitík, spillingu, Samherja og fjölmiðla. “Við búum við afleiðingar feðraveldis og strákar eru ekki rassgat að græða á því að það sé eitthvað feðraveldi”. Erpur er stofnmeðlimur í VG og hann var í alþjóðarbandalaginu. Hann talar um að VG hafi verið sinn flokkur, með flest á hreinu hvað varðar friðarbaráttuna, umhverfisbaráttuna, kynjabarátuna, verkalýðsbaráttuna og fl. “Síðan erum við bara í geðveiku VG partý maður, svo bara ranka ég við mér og þá er bara enginn í partý-inu […] og maður hringir í mannskapinn og þá eru allir bara heima hjá Bjarna Ben og það er bara verið að grilla öryrkja, það er verið að grilla mannakjöt á Flötunum og Bjarni Ben er bara að blasta Pitbull”
Fri, 25 Feb 2022 - 10min - 67 - Lilja Hrönn - "Ég var hans klámmynd"
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
TW: Lilja Hrönn er leiðbeinandi á Stígamótum. Eftir að hafa verið í löngu ofbeldissambandi fór hún að vinna í sér, varð leiðbeinandi á stígamótum en festist síðan í öðru ofbeldissambandi. Hún talar um skömmina sem felst í því að lenda í öðru ofbeldissamband eftir að hafa verið búin að vinna í sér. Hún kynntist fyrsta kærastanum sínum þegar hún var 17 ára og voru þau saman í tvö ár. Lilja varð fyrir miklu einelti í skóla og var sjálfsmynd hennar mjög brotin. Ofbeldissambandið einkenndist af miklu kynferðisofbeldi og var hún þarna til þess að þóknast honum. Hann refsaði henni með því að nauðga henni og lét hana gera hluti sem hún vildi ekki gera. Lilja talar um afleiðingar kláms og hvernig skömmin litar mann af “hvernig lét ég þetta gerast” og “ég hefði átt að vita betur” .
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Tue, 22 Feb 2022 - 1h 16min - 66 - Ásdís María - 15 ára í ofbeldissambandi
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Ásdís María eða betur þekkt sem The Icelandic Stallion á Twitter og Instagram. Hún var 15 ára þegar hún byrjaði í ofbeldissambandi, en þau voru jafn gömul. Ásdís byrjaði í nýjum skóla og talar um að hafa byrjað með “vinsæla” stráknum til þess að fitta inn í. Þau eru ekki saman í dag en Ásdís er ennþá í dag að fá skilaboð frá stelpum sem vilja losna undan honum eða hafa verið í ofbeldissambandi með honum. Hann var 15 ára þegar hann byrjaði að beita hana líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi. Hann vissi hvar hann átti að sparka í hana svo krakkarnir í skólanum myndu ekki taka eftir því. Hún þurfti að vinna sér inn fyrir knúsi og hann refsaði henni með því að þvinga hana til kynferðislegra athafna. Þrátt fyrir að hann hafi verið einungis 15 ára að þá byrjaði hann snemma að brjóta hana niður og telja henni trú um að hún væri einskis virði. Við ræðum aðeins hvernig skólakerfið brást henni og hvort betri fræðsla hefði jafnvel getað hjálpað henni og honum.
Thu, 17 Feb 2022 - 10min - 65 - Bryndís Ásmunds
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Bryndís er leik og söngkona. Hún kom og sagði sína sögu eftir að hafa verið í ofbeldissambandi í langan tíma. Bryndís var seint greind með bipolar 1 sem átti síðan eftir að vera notað gegn henni í forræðisdeilu milli hennar og barnsföður hennar. Bryndís kærir barnsföður sinn á sínum tíma fyrir heimilsofbeldi, kynferðisofbeldi, andlegt ofbeldi og líkamlegt, sem liggur núna hjá MDE. Bryndís talar um að hafa ekki verið sú móðir sem hún hefði viljað vera eftir sambandið og átti erfitt með að halda utan um allt sem hefði gerst. Bryndís fær aðstoð frá Stígamótum og Bjarkahlíð og kemur sér fyrir á Akureyri þar sem barnið hennar fer í skóla. Barnsfaðir hennar stefnir henni og sækir fullt forræði og tekur þá við enn eitt helvítið. Mál Bryndísar sýnir vel að við lifum innan kynjakerfis sem er svo viðhaldið félagatengslum karla í áhrifastöðum og samtvinnuðum tengslanetum að Bryndís átti aldrei séns frá byrjun. Forræðismál Bryndísar er lýgilegt og skrifar matsmaður meðal annars: “matsmaður telur ásakanir Bryndísar bera keim af fölskum minningum. Geðhvarfasýki og það að hún var bæði í eftirsjá og hefndarhug eftir sambandsslitin”.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Mon, 14 Feb 2022 - 1h 23min - 64 - Þórunn Antonía
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Þórunn Antonía var 15 ára þegar henni var boðin fyrsti plötusamningurinn og átti að troða henni í bikini og henda hana á ströndina. Hún talar um þegar hún bjó í LA og var meðal annars vinkona Amy whinehouse, hvernig ungar stelpur eru kyngerðarðar frá barnaldri og hvernig komið hefur verið fram við hana í bransanum. Við tölum hvernig kyngervingu sé oft þröngvað upp á ungar stelpur frekar en að það sé þeirra eigið val. Stelpur eru með öðrum orðum gerðar að kynverum áður en þær ná kynþroskaaldri. Þórunn fer einnig yfir það þegar Bubbi Morthens áreitti hana í Ísland got talent og þegar hún var rekin úr þeim þætti þegar hún varð ólétt. Það virðist vera auðveldara að finna staðgengil fyrir konur og karlar virðast oft vera settir í guðatölu, eins og þeir séu ómissandi. Við höfum séð þetta áður og sjáum þetta enn þann dag í dag að konur sem tilkynna áreiti, standa uppi fyrir sjálfum sér eða láta ekki yfir sig ganga eru litnar sem “erfiðar”, “viðkvæmar” "frekar" og “erfitt að vinna með þeim”.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Fri, 11 Feb 2022 - 1h 28min - 63 - Thelma Gudmundsen
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Thelma Gudmundsen þekkja nú flestir en hún er ein sú allra besta. Hún er ótrúlega opin og algjörlega óhrædd við að deila og sýna frá rauveruleikanum í gegnum Instagram. Hún talar meðal annars um bipolar 2 og þau kynferðisbrot sem hún varð fyrir. Hún fer ítarlega yfir þegar yfirmaður hennar sem er landsþekktur áreitti hana kynferðislega þegar hún vann sem blaðamaður á vefmiðli sem hann átti. Thelma talar um að hafa verið gjörsamelga búin og gat hreinlega ekki meir. Hann hótaði henni og sagðist geta séð til þess að það myndi aldrei neitt verða úr henni myndi hún láta vita af því sem gerðist.
Mon, 07 Feb 2022 - 09min - 62 - Þórólfur Guðnason
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er i grunninn barnalæknir, smitsjúkdómalæknir og tók síðan doktorspróf í faraldsfræði og er búin að vera yfirlæknir bólusetninga á Íslandi síðan 2002. “Menn halda stundum að þetta sé bara ég og þríeykið að skrifa einhver minnisblöð og síðan förum við bara að chilla eitthvað..en það er sko alls ekki þannig” Þórólfur stendur svo sannarleg ekki einn í þessu öllu saman en ef það er einhver sem á skilið árspassa í Blue Lagoon spa að þá er það Þórólfur, en vinnudagurinn hans er frá 07:00 - miðnættis. Við ræddum leiðinleg komment á netinu þar sem fólk vill oft leyfa drullunni að gossa á kostnað Þórólfs, líkt og : “skíttu í þig Þórólfur” og “Lokið þennan glæpamann inni”. Þórólfur stendur sig eins og hetja þó álagið sé mikið og hefur hann sínar leiðir til að koma í veg fyrir að hann brenni út.
Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Wed, 02 Feb 2022 - 1h 06min - 61 - Sylvía Briem - Ofkeyrsla og taugaáfall
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Sylvía Briem Friðjónsdóttir er þjálfari hjá Dale Carnegie og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Normið. Sylvía fékk taugaáfall fyrir nokkrum árum og lamaðist hægra megin í andliti, fæti og hendi. Sylvía var á þeim í tíma í fimm vinnum og að ganga í gegnum sambandsslit. Við ræðum um ofkeyrslu, aumingjavæðingu, sambandsslitin og hvernig hún einangraði sig frá vinum sínum.
Mon, 31 Jan 2022 - 10min - 60 - Haraldur Þorleifsson (Halli)
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Haraldur Þorleifsson betur þekktur sem Halli er einn sá allra besti. Vinir mínir kalla hann "Halli Twitter" en hann stofnaði fyrirtækið Ueno og á sjálfur hlut í Twitter og vinnur fyrir Twitter í dag. Halli stofnaði einnig Ramp up Reykjavík þar sem hann hefur sett yfir 100 rampa og þannig gert aðgengi fyrir fólk í hjólastól. Halli á sérstakan stað í hjarta mínu og er hann maðurinn sem bauðst til þess að greiða fyrir stefnu sem ég fékk senda frá Ingó Veðurguð (stefnan fór þó ekki lengra). Í þessu viðtali ræðum við á léttu nótunum aðeins um Halla sem manneskju, hvað hann er að gera í dag og hvernig honum tókst að fá Twitter til þess að gefa sér “verified”.. Þátturinn er í boði: The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Wed, 26 Jan 2022 - 33min - 59 - Álfrún - Hann var meðlimur í Gagnamagninu
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Mikið hefur verið fjallað um Álfrúnu á twitter og steig gerandi hennar fram, sem var þá meðlimur í Gagnamagninu og sagðist hafa beitt hana ofbeldi. Hún segir frá því hvernig ofbeldi hann beitti hana og hvernig áhrif þetta hefur haft á hennar líf. Gagnamagnið keppti í Eurovision og segir Álfrún það hafa verið mikill trigger fyrir sig. Hún upplýsti meðlimi hljómsveitarinnar um ofbeldið áður en þeir keppa í Eurovision en fékk ekki góð viðbrögð og lítinn sem engan skilning. Við ræðum aðeins um sambandið, gerendameðvirkni, viðbrögð og hvernig hægt er að snúa sér í þessum málum. Stuttu eftir að við kláruðum viðtalið sendir Daði einlæga og fallega afsökunarbeiðni á Álfrúnu og viðurkennir að hafa verið meðvirkur og ekki vitað hvernig hann ætti að snúa sér í þessu.
Mon, 24 Jan 2022 - 09min - 58 - Helga Agatha
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Trigger warning: Ástæðan fyrir þessu viðtali er til þess að varpa ljósi á raunveruleikann. Það er varla hægt að skilja það hugrekki sem Helga býr yfir og hvernig það hefur verið að búa við þessar aðstæður. Helga Agatha var í ofbeldissambandi í sex ár og gift í fimm. Hann barði hana, nauðgaði henni, drap dýrin hennar fyrir framan hana og dóttur og frelsissvipti hana þegar honum sýndist. Árið 2014 gerðist það að Helga var næstum því dáin. Hann pyntaði hana og nauðgaði í 2 daga og endaði hún með 5 brotin rifbein, gat á lungu, brot í kjálkabeini, brenndar gerivörtur og innvortis blæðingar. Spítalinn kærði en málið fór ekki lengra. Helga fer aðeins á hvernig kerfið braust henni og gerir enn og talar einnig um afskiptaleysi fólks. Það eru fleiri konur sem búa við heimilsofbeldi og segir hún að það sé leið út. Hún lifir góðu lífi í dag og segist hafa fundið enhvern ólýsanlegan kraft til þess að opna á þetta og hvetja fólk til þess að skipta sér af ef það heldur að fólk búi við heimilsofbeldi.
Þátturinn er í boði:
The Body Shop - https://www.thebodyshop.is/is
Wed, 19 Jan 2022 - 1h 31min - 57 - Guðrún Ósk
Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur
Guðrún var lengi í ofbeldissambandi. “Hann var allur heimurinn fyrir mér því á pörtum var hann líka rosalega góður við mig”. Við tölum aðeins um sjúka ást og hvernig hún hætti að horfa á allt þetta vonda og fór einungis að horfa á það góða. Þegar Guðrún losnar úr þessu sambandi kynnist hún öðrum manni í gegnum Facebook. Sá maður er og var í fangelsi og voru þau í fjarsambandi í tvö ár. Hún heimsótti hann í fangelsið reglulega og eignaðist með honum barn. Í þessari ótrúlega frásögn Guðrúnar talar hún um hvernig andlega ofbeldið hafði verri áhrif á hana og fékk hún taugaáfall í lok sambandsins.
Mon, 17 Jan 2022 - 11min - 55 - Að eiga narsisíska móðir
Hún opnar sig um ástandið heima hjá sér og hvernig það er að eiga mömmu sem er Narcissistic. Þeir sem þjást af narsisískri persónuleikaröskun eru yfirleitt ekki færir um að hafa samúð með tilfinningum annara. Hún talar um hvernig allt snérist um ímyndina heima fyrir og byrjaði þetta þegar hún var mjög ung. Áður en hún var lögráða að þá var mamma hennar farin að segja við hana að það væri betra fyrir alla ef hún myndi bara deyja, að hún væri alltof feit, að hún gæti ekki niður og eyddi mestum tíma í að brjóta hana niður. Einu hrósin sem hún fékk var þegar hún missti kíló. Hún vill vekja athygli á þessu djúpstæða ofbeldi og hvernig áhrif þetta getur haft, og talar hún um að hafa verið komin svo langt niður að henni langaði ekki til þess að lifa lengur. Foreldrar geta verið óþolandi strangir, stjórnandi, ofverndandi eða ósanngjörn. Það þarf hinsvegar að lesa á milli línanna og gera grein fyrir að sumar gjörðir fara langt yfir strikið og falla inn á svið tilfinningalegrar, munnlegrar og líkamlegrar misnotkunar. Það er ekki ekki hægt að réttlæta það sem “ást” eða líta svo á að þða komi frá ást og umhyggju, þetta er ofbeldi og misnotkun.
Tue, 11 Jan 2022 - 12min - 54 - Vítalía
Vítalía er 24 ára og var í ástarsambandi með 48 ára gömlum giftum manni í 16 mánuði. Þau kynntust í ræktinni þegar hún var hjá honum í einkaþjálfun. Vítalía segist hafa litið upp til hans áður en þau kynntust enda þjóðþekktur maður og vel liðin í samfélaginu. Fyrir rúmu ári síðan bauð hann henni í bústað og setti hana í aðstæður þar sem hún sat hún nakin í heita potti með fjórum háttsettum eldri mönnnum í heita pott. Þar burtu þeir á henni og troðið var puttum upp í rass. Hún var frelsissvipt og gerðir hlutir sem engin vill lenda í. Hún segir einnig frá öðru broti sem átti sér stað á þessu ári þar sem hann hleypir vini sínum inn á hótelherbergi og leyfir honum að snerta hana og gera hluti við hana gegn því að þessi vinur myndi ekki segja frá framhjáhaldinu. Vítalía talar um að hafa verið seld út eins og brúða til þess að kæmist ekki upp um hann. Þessir menn, sem birtast reglulega í sjónvarpinu, sitja í stjórn í stórum félögu, feður jafnaldra hennar og yfir 50 ára gamlir. Hvar er ábyrgðin? Hvar er siðferðið? Hvaða viðbjóður er þetta? Finnst ykkur þetta eðlilegt? Þið ættuð að skammast ykkar og segja af ykkur.
Tue, 04 Jan 2022 - 1h 03min - 53 - Björk Lárusdóttir
TW: Björk Lárusdóttir er ung transkona sem varð fyrir hrottalegum árasum með stuttu millibili. Skilaboðin sem deild voru á Eiginkonur Instagram eru skilaboð sem send voru á hana. Strákar voru að senda á hana og segjast ætla að nauðga henni og nota hana sem kynlífsþræl. Björk varð síðan fyrir hræðilegri árás þar sem maður braust inn til hennar og nauðgaði henni. Stuttu seinna var hún frelsissvipt í sex klukkutíma og brotið var á henni. Björk lagði fram kæru en hefur hvorki fengið neyðarhnapp né svar frá lögreglu. Hatursorðræða og hótanir á netinu eru miklu alvarlegra en fólk gerir sér grein fyrir því fólk meinar það sem það segir. Það er ekki nóg að styðja baráttu trans kvenna með því að halda bara með þeim, það þarf að berjast með þeim.
Mon, 03 Jan 2022 - 11min - 52 - Steinunn Ólína - metoo
Steinunn Ólína er fyrrum formaður feministafélagsins í MH, hún var umboðskona reykjavikurdætra og talaði opinberlega um þá tilfinningu að finnast sem „mér hafi ekki verið nauðgað nógu mikið“. Hún áttaði sig á því að það væri algengara en hún hélt að fólki fyndist „það ekki eiga rétt á því að ræða sina sögu“ einfaldlega því „hún teldist ekki nógu traumatísk“ - Hvað er nógu mikið trauma til þess að það „teljist marktækt“ - og er einu sinni hægt að skilgreina það? Steinunn er ein sú allra besta og ein sú mikilvægasta sem við höfum þegar kemur að umræðunni um feminsima.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 29 Dec 2021 - 1h 19min - 51 - Dagmar Rós
TW: Dagmar Rós kom og talaði um þegar henni var byrlað árið 2009. Það var brotið á henni kynferðislega og veit hún ekki ennþá í dag hversu margir þeir voru. Hún byrjaði fyrst að vinna í sér árið 2019 og leitaði sér aðstoðar hjá Stígamótum. Árið 2019 verður hún síðan fyrir kynferðisbroti af hálfu manns sem var mjög náinn fjölskyldunni. Brotið átti sér stað í brúðkaupinu hans þar sem hann nauðgar henni. Dagmar fékk sér lögfræðing og kærir bortið, hún talar aðeins um hversu erfitt það er fara í gegnum þetta ferli og hún sé enn að bíða eftir niðurstöðu úr málinu. Dagmar er gjörsamlega mögnuð og segir hún fleiri stelpur hafi haft samband við sig vegna sama manns.
Mon, 27 Dec 2021 - 11min - 50 - Íris Svava
Íris Svava er ein mesta drottning landsins og er þessi þáttur tileinkaður “janúar megrunar áróðrinum” sem fer líklegast að skella á. Íris er virk á í umræðunni um líkamsímynd og talar um sína vegferð að vellíðan. Áður hefði hún aldrei keypt sér þröngar buxur eða sutta boli og valdi hún sér alltaf flíkur sem faldi magann. Hún keypti sér oft flíkur í minni stærðum sem “hvatningu”. Hún segir mikið frelsi að kaupa sér flíkur sem passa akkúrat núna og stærði skipti engu máli því hún skilgreinir okkur ekki. Hún segir það misskilning að “body positivity” geti farið út í öfgar, því fyrst og fremst snúist þetta um að líða vel í eigin skinni og þá er auðveldara að leita í almennt heilbrigði og líkaminn aðlagist með bættir andlegri heilsu.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 22 Dec 2021 - 1h 11min - 49 - Sigrún Eir
Sigrún Eir var lengi í eitruðu sambandi. “Afhverju hættiru þú ekki bara með honum?” er spurning sem margir spyrja en einstaklingur í andlegu ofbeldissambandi áttar sig oft ekki á ofbeldinu. Andlega ofbeldið var notað til að brjóta Sigrúnu markvisst niður og höggva í sjálfmynd og sjálfsvirðingu hennar. Sigrún var farin að tipla á tánum í viðleitni hans til þess að forðast hugsanlega árekstra eða leiðindi. Hann skammtaði henni pening og reiddist henni þegar hún tók bensín á bensínstöðvum sem voru dýrar. Hann kenndi henni um þegar myndir í sjónvarpinu voru pixlaðar og sakaði hana um að hafa verið að horfa of mikið á sjónvarpið. Hann stjórnaði henni með reiði og fýlu og hækkaði útvarpið yfir hana þegar hún talaði. Sigrún segir umræðuna um andlegt ofbeldi svo mikilvæga því ofbeldið getur verið lúmskt og situr lengi í manni.
Mon, 20 Dec 2021 - 10min - 48 - María rún Bjarnadóttir - Verkefnastjóri gegn stafrænu ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra
María rún Bjarnadóttir er lögfræðingur og verkefnisstjóri gegn stafrænu ofbeldi hjá Ríkislögreglunni (rls). RLS fóru af stað með herferð þar sem karlmenn eru hvattir til að vera ekki “þessi gaur”. Þetta snýst ekki um að allir karlar séu kynferðisafbrotamenn. Karlar þurfa að vera virkir í því að brjóta upp þessi samfélagsmynstur og staðalmyndir vegna þess að það er ekki bara skaðlegt fyrir konur, það er líka skaðlegt fyrir karla. Við ræðum einnig um síðuna umtöluðu, þar sem verið er að óska eftir nektarmyndum af stelpum. María segir lögregluna ekki hafa lagaheimildir til þess að taka síðuna niður þrátt fyrir lög um stafrænt ofbeldi. Lögreglan hefur bara leyfi til þess að taka niður heimasíður hýstar léni sem er “.is” og bara ef það sem kemur fram á síðunni, varðar við sex ára fangelsi eða meira.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 15 Dec 2021 - 1h 52min - 47 - Súsanna
Súsanna kemur frá yndislegu heimili en fann að það var eitthvað sem vantaði í líf hennar. Hún byrjaði 12 ára í fíkniefnaneyslu eftir að hún prófaði einu sinni hass með vinum sínum. Hún var síðan greind með geðhvarfasýki sem ekki er vitað hvort kom vegna neyslu. Ég og Súsanna vorum saman í menntaskóla og talar Súsanna um að hafa búið í greni í kringum þann tíma, hún segir ekki hægt að lýsa þeim aðstæðum sem hún bjó við og að myglan í vaskinum hafi verið margra vikna gömul. Hvernig fjármagnar svona ungur krakki neyslu? Súsanna segist ekki hafa verið beint að selja sig en hafi valið kærastana sína eftir því sem hana vantaði á þeim tíma og hafi gert hluti einungis til þess að fjármagna neysluna sína. Árið 2017 greinist Súsanna með krabbamein og er hún var með hægvaxandi blóðkrabbamein sem birtist í húðinni sem hún er ennþá að glíma við. Súsanna er ótrúlegur einstaklingur og segir að maður þekki ekki eigin styrk fyrr en reynir á.
Mon, 13 Dec 2021 - 10min - 46 - Gummi Emil - "snýst um að vera beast í lífinu"
Einkaþjálfarinn og samfélagsmiðlastjarnan Gummi Emil hefur engan tíma fyrir kvenfólk, hann hefur verið upptekin. Agaðari mann er erfitt að finna og hefur hann náð góðum árangri í sinni íþrótt. Á þessu ári tók hann þátt í Arnold Classic UK og síðan Íslandsmeistaramótinu í Fitness þar sem hann tók annað sæti. Fyrir mótin var hann að æfa 12x í viku og borðaði í kringum 1500 kaloríur og segir meðal annars “ég lenti í því á fimm daga fresti að taka bara “GÚFF”, tvær Flatey pizzur, snúður og burger”. Rétt fyrir mótið var hann farinn að vilja mat sem hann myndi aldrei borða, farinn að þefa af mat, horfa á matarvideo og horfa á aðra borða. Gummi losaði sig við 9kg á sólahring og ræddum við aðeins um heilbrigði, hvernig áhrif þetta hafi á hausinn, hvers vegna maður leggi allt þetta á sig og hvað maður fái út úr því.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 08 Dec 2021 - 1h 04min - 45 - Margrét Sif “þegar ég sagði honum að pabbi hans væri kominn í fangelsi svaraði hann: “LOL á hann”
TW. Margrét kynntist barnföður sínum mjög ung og byrjaði ofbeldið mjög snemma. Hann beitti hana líkamlegu og andlegu ofbeldi sem stóð yfir í langan tíma. Við spyrjum oft brotaþola “afhverju fórstu ekki?”. Fyrstu mánuðirnir í sambandinu voru dásamlegir og taldi hann hana trú um að hún væri einstök. Hann fór síðan að beita hana andlegu ofbeldi sem fólst í niðurlægingu og skömmun og beitti hana einnig líkamlegu ofbeldi. Fjölskyldan hans setti yfirleitt skömmina á Margréti og átti hún að hafa reitt hann til reiði með þeim afleiðingum að hann lyfti henni upp og fleygði henni í gólfið, fyrir framan barnið. Ekki spyrja þolanda heimilsofbeldis “afhverju fórstu ekki?” Það fylgir því mikill ótti að fara frá ofbeldismanninum því þetta gerist inn á þínu eigin heimili. Þar sem öryggi þitt og skjól á að vera og þegar ógnin býr innan veggja heimilisins veit maður ekkert hvert maður á að fara.
Mon, 06 Dec 2021 - 10min - 44 - Gunnar Hansson
Gunnar hansson þekkja nú kannski flestir en hann er hvað þekktastur fyrir að leika Frímann Gunnarsson. Gunnar lifði einn með reynslu sinni af kynferðislegri misnotkun lengi og sagði ekki nokkrum lifandi manni frá því. Við ræðum aðeins um metoo bylgjuna og segir hann meðal annars: “Ég hef oft hugsað, þarna stíg ég fram og segi frá, þar sem gerandinn minn er Karl Vignir, sem er alveg svona “sterio týpískur lóner perri”. Hvað ef ég hefði stigið þarna fram og sagt frá þessu og þetta hefði verið landsþekktur maður sem er þekktur fyrir eitthvað gott, frægur íþróttamaður, eða stjórnmálamaður eða hvað ef hann hefði verið í fjölskyldunni minni? Því viðbrögðin sem ég fengið við það að stíga fram, í bæði skiptin, voru í einu orði sagt jákvæð.”
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 01 Dec 2021 - 1h 26min - 43 - Vigdís Howser - Getur þú kallað þig feminista ef þú styður ekki “sexwork”?
Rapparinn Vigdís Howser Harðardóttir, sem gengur undir listanafninu Fever Dream flutti frá Berlín til Íslands eftir að hafa fengið nóg af “Partý Berlín” í bili. Vigdís var einnig meðlimur í Reykjavíkur dætrum þar og túruðu þær um allan heim. Hún segir vanta allt pönk í íslenskan feminisma. Við ræðum aðeins afhverju Vigdís hætti í Reykjavíkurdætrum, white feminism, ofbeldi í æsku og fl.
Mon, 29 Nov 2021 - 10min - 42 - Gunnar Karl Ólafsson
Gunnar Karl er sérfræðingur á kjarasviði hjá stéttarfélaginu Báran. Hann hefur verið virkur í umræðunni og skrifar einnig greinar inni á Vísi. Gunnar var búsettur í Berlín þegar honum var byrlað og beitt kynferðisofbeldi. Hann hefur sýnt alveg ótrúlegan kraft í umræðunni og hvernig hann vann úr áfallinu. Við ræðum um gerendameðvirkni, afneitun og þöggun sem hefur verið afgerandi í umræðunni. Eftirmálar kynferðisofbeldis eru erfiðir, en þolendur eru þrettán sinnum líklegri til að reyna sjálfsvíg en þeir sem hafa ekki lent í kynferðisofbeldi. Þolendur ofbeldis skulda gerendum sínum ekki neitt og yfirleitt er þolendum alveg sama hvort gerendur upplifi einhverskonar "útskúfun" eða fái ekki vinnu. Þolendur ofbeldis hafa flosnað upp úr vinnu, eytt mörg hundruð þúsund krónum í sjálfsvinnu og yfirleitt misst miklu meira en gerendur hafa nokkurtíman misst.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 24 Nov 2021 - 1h 11min - 41 - Ingibjörg Eyfjörð - Kynlífsvinna, staðalímyndir og ofbeldismenning (Áskriftarþáttur)
Trigger warning. Ingibjörg er tveggja barna móðir úr Mývatssveit. Hún er þremur vinnum og ein af þeim er OnlyFans. Við ræðum aðeins staðalímyndir, geðsjúkdóma og kynlífsvinnu. Ingibjörg ræðir einnig skömmina sem fylgir því að vera nauðgað, hvernig hún kenndi sér um að hafa verið of freðin, að hún hefði nú átt að passa sig betur. Slíkur hugsunarháttur kemur líklegast frá samfélaginu, samfélagið segir þér að þú átt ekki að vera of full og ekki of sexy. Við ræðum einnig um kynlífsvinnu og hvað við flokkum undir feminisma og hvað ekki.
Mon, 22 Nov 2021 - 12min - 40 - Gabríela Bryndís - Kynbundið ofbeldi, Narsissisti og gaslýsing
Gabríela Bryndís er sálfræðingur og einn af stofnendum líf án ofbeldis. Gabríela talar um að ofbeldi sé kynbundið og það sé engin bias í því. Við förum yfir hugtökin Narsissisti, gaslýsing og hvað það feli í sér að vera með narsissíska persónuleikaröskun. Sambönd fá oft þann stimpil á sig að vera stormasöm þegar þetta eru jafnvel bara rótgrónir fordómar sem þarf að uppræta og sérstaklega þegar börn eru í spilinu. Í lokin ræðum við aðeins um hvaða úrræði séu fyrir gerendur og það sé misskilningur að við séum að hjálpa gerendum með drottningarviðtölum og þar af leiðandi að styðja þá í þessari gaslýsingu og fórnarlambsleik.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Wed, 17 Nov 2021 - 1h 17min - 39 - Jói Dagur (Áskriftarþáttur)
Jói Dagur er rappari og má eflaust kalla "legend in the game". Jói Dagur var í neyslu í 16 ár og hefur upplifað margar skuggahliðar lífsins og verið á stað sem hann óskar engum að vera á. Jói dagur segir meðal annars frá hræðilegri reynslu þegar hann og vinur hans reykja saman fentanýl plástur sem leddi til þess að Jói fór í hjartastopp. Vinur hans reynir síðan að vekja hann með því að kveikja í hönd hans. Jói barðist við fíknisjukdóminn í 16 ár og talar um skaðsemi fordóma gagnvart fíklum og afhverju afglæpavæðing neysluskammta sé mikilvæg fyrir samfélagið og fólk sem glímir við fíknisjúkdóm.
Mon, 15 Nov 2021 - 09min - 38 - Helena Hilmars - Kærði barnsföður sinn fyrir ofbeldi
Helena Hilmars kærði barnsföður sinn fyrir líkamsárás, heimilsofbeldi, eignaspjöll og umsáturseinelti. Málið kærði hún í febrúar í fyrra og fer að líða að því að málið fyrnist hjá lögreglu, en svona mál fyrnast innan tveggja ára. Síðustu ár hafa verið hreint helvíti fyrir Helenu og þarf hún ennþá að deila forsjá með barnsföður sínum. Einnig er verið að setja sprengiefni á bílinn hennar til þess að eyðileggja hann. Hvernig getur það tekið hátt í tvö ár að kalla hinn kærða inn í skýrslutöku, hvernig getur það verið ásættanlegt að senda tveggja ára gamalt barn til manns sem beitti mann ofbeldi í mörg ár? Ætti sá sem beitir barnsmóðir sína ofbeldi, fyrir framan barnið sitt, ekki að vera jafn líklegur til þess að beita barn ofbeldi? Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Wed, 10 Nov 2021 - 1h 17min - 37 - Siggi Bjarna
Sigurður Bjarnason setti Twitter á hliðina þegar hann tweetaði um "unmistakable body shakes". Siggi vill meina að engin kona hafi þóst fá fullnægingu og sjáist það á líkamstjáningu þeirra þegar þær fá það. Í þessu einlæga viðtali talar Siggi einnig um knús þjónustu sem hann langar að opna hér á landi. Siggi nýtti sér oft slíka þjónustu þegar hann bjó í bandaríkjunum og segir hann þetta vera ómissandi þjónusta fyrir alla. Siggi er einstaklega viðkunnalegur og hnyttin húmoristi sem tekur lífinu ekki of alvarlega.
Mon, 08 Nov 2021 - 11min - 36 - Snædís Yrja - Skaðsemi Brjóstapúða og kynleiðrétting
Það er erfitt að finna einlægari og skemmtilegri persónuleika en Snædísi Yrju. Hún fór í kynleiðréttingu fyrir nokkrum árum ásamt því að fá sér brjóstapúða. Hún opnar umræðuna um veikingi vegna brjóstapúða og lét hún fjarlægja sína fyrir aðeins fjórum mánuðum síðna. Snædís talar aðeins um kynleiðréttingaferlið og segist vera yfir sig ánægð með nýju píkuna. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Thu, 04 Nov 2021 - 1h 18min - 35 - Dóri DNA (Áskriftarþáttur)
Halldór Laxness eða Betur þekktur sem Dóri DNA er líklega einn fyndnasti maður sem Íslendingar hafa að geyma. Dóri er rappari, grínisti. rithöfundur og margt fleira. Margir sem upplifa sig fastan í sömu vinnunni í mörg ár og eiga erfitt með að skipta um vinnu. Dóri talar um að fylgja hjartanu og finna það hjá sér ef manni langar að gera eitthvað nýtt. Dóri var grínisti og uppistandari í 10 ár þegar hann tók sér pásu og fór að snúa sér að öðru.
Þátturinn er í boði:
https://omnom.is/
Mon, 01 Nov 2021 - 10min - 34 - Isabella Klara - Kona með typpi er vinsælt efni á Only Fans
Isabella Klara er transkona sem starfar meðal annars á Only Fans. Við ræðum aðeins um fordóma, only fans og fáfræði. Ísabella segir að það sé eftirspurn eftir klámi þar sem kona er með typpi og er hún með ágætlega marga áskrifendur á Only Fans. Við spjölluðum aðeins um lífið og hvers vegna maður hefur þessa þörf fyrir að skilgreina fólk og vita hvaða kyn eða hver kynhneigð fólks er. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Wed, 27 Oct 2021 - 48min - 33 - Arnar Máni - var hótað barnsmíðum fyrir að vera samkynhneigðurMon, 18 Oct 2021 - 57min
- 32 - 31. Kolla Ben - Barnaníðsefni og réttarkerfið
TW: Kolbrún Benediktsdóttir er varahéraðssaksóknari hefur vakið athygli fyrir að takast á við erfið og viðkvæm mál í réttarkerfinu og er hún í miklu návígi við skuggalegustu hliðar tilverunnar. Starfið hennar felur meðal annars í sér að horfa á barnaníðsefni til að ákvarða refsingu á vörslu þess. Kolbrún talar um að eftirspurn sé eftir slíku efni og aldur barna sé allt niður í ungabörn með bleyju og hafi hún þurft að horfa á mann hafa endaþarmsmök við 5 ára barn. Það getur setið lengi í manni að horfa á slíkt ofbeldi og segir hún tveir tímar af tetris vera ágætis hreinsun fyrir hugann. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Wed, 13 Oct 2021 - 2h 35min - 31 - 30. Silja Sif Kristinsdóttir - Ofbeldissamband með áhrifavald
Síðsta metoo bylgja var ein sú umfangsmesta og opinberaði Silja Sif ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu fyrverandi kærasta síns. Hún þurfti að þola bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi í nánu sambandi og kom hún og ræddi við Eigin Konur í von um að það geti hjálpað öðrum í svipuðum aðstæðum. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Fri, 08 Oct 2021 - 1h 00min - 30 - 29. Lenya Rún - Yngsti þingmaður sögunnar
Lenya Rún Taha Karim er 21 árs, þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, er yngsti þingmaður sögunnar til að ná kjöri. Það varði reyndar bara í 9 klukkutíma þar sem einhver skandall átti sér stað við talningu konsninga. Lenya er fædd og uppalin á Ísland og er núna í lögfræði. hún verður fyrir rasisma vegna þess að hún er brún á hörund. Foreldrar hennar eru frá Kúrdistan en Lenya fæddist hér eftir að þau fluttust til Íslands. Hún hefur fengið ótal misgáfuleg nafnlaus skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hún er minnt að hún sé brúnni en margir. Við ræddum aðeins um þau málefni sem hún brennur fyrir og má segja að Lenya sé algjörlega ómissandi inn á þing. Þátturinn er í boði: https://omnom.is/
Wed, 06 Oct 2021 - 58min - 29 - 28. Hulda Tölgyes - Ofbeldi í nánu sambandi
Hulda Tölgyes er sálfræðingur og sérhæfir sig í EMDR meðferð. Hulda og maðurinn hennar eru bæði öflug á Instagram og eru þau ágætis hugmynd um svokallað "power couple". Þorsteinn, maðurinn hennar Huldu heldur uppi hlaðvarpinu Karlmennskan og brenna þau bæði fyrir þessi málefni. Við Hulda fórum yfir ofbeldi í nánum samböndum og töluðum um "red flags" í samböndum. Þrýstingur til kynlífsathafna, suð, fýlustjórnun, öskur og niðurlæging eru allt hlutir sem margir tengja við og jafnvel láta yfir sig ganga. Þátturinn er í boði: https://blush.is/ https://omnom.is/
Wed, 29 Sep 2021 - 1h 23min - 28 - 27. María Rut - Dómskerfið og niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu
María Rut Kristinsdóttir situr í 3 sæti fyrir viðreisn. María vill láta gott af sér leiða og talar um ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu stjúpföður. María talar einnig um dómskerfið, pólitík og hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Þátturinn er í boði: https://blush.is/ https://omnom.is/
Thu, 23 Sep 2021 - 1h 09min - 27 - 26. Katrín Jakobs - Hlutverk stjórnvalda í baráttu við ofbeldi
Katrín Jakobsdóttir er forsetisráðherra og formaður vinstri grænna. Við töluðum um kynbundið ofbeldi & hlutverk stjórnvalda þessari baráttu ásamt því að fara yfir afglæpavæðingu neysluskammta. Katrín lagði fram frumvarp og aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi í maí og velti ég því aðeins fyrir mér hvernig það á að ná til allra á meðan við erum að refsa fólki í neyslu sem verður fyrir slíku ofbeldi. Þátturinn er í boði: https://blush.is/ https://omnom.is/
Tue, 21 Sep 2021 - 45min - 26 - 25. Þórhildur Gyða - KSÍ bauð henni þöggunarsamning.Wed, 15 Sep 2021 - 1h 15min
- 25 - 24. Helga Vala Helgadóttir - Réttarkerfið og þolendur ofbeldis
Það má segja að Helga Vala sé allur pakkinn. Hún er leikkona, þingmaður Samfylkingarinnar og lögmaður. Í störfum sínum sem lögmaður hefur hún sinnt réttargæslu fyrir þolendur kynferðis- og heimilsofbeldis og sérhæft sig í málefnum flóttafólks, innflytjenda og fjölskyldna. Það er varla hægt að finna betri konu inn á Alþingi fyrir þolendur ofbeldis. Helga kom og ræddi við Eigin Konur um réttarkerfið, metoo bylgjun, timana sem hún starfaði sem lögmaður og hvað hún er að gera í dag með Samfylkingunni.
Mon, 06 Sep 2021 - 1h 33min - 23 - 23. Tara Margrét vs Móði Bessi - Hvað eru fitufordómar?
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu kom ásamt einkaþjálfaranum Móða Bessa og ræddu þau um fitufordóma. Áhugaverðar umræður áttu sér stað þar sem Tara ræðir skaðaemi fitufordóma á meðan Móði Bessi talar um skaðsemi þess að vera of feitur. En hvað er það sem er raunverulega skaðlegt? eru það fordómarnir eða holdafar?
Mon, 30 Aug 2021 - 1h 22min - 22 - 22. Jóhanna Helga - Neyslan og lífið á götunni. “þetta þarf ekki að vera svona”
Jóhanna Helga fór í fóstur mjög ung og fékk yndislega fósturfjölskyldu sem gafst aldrei upp á henni. Hun deilir með okkur sögu sinni sem unglingur, neyslu sinni og dögunum á götunni. Jóhanna er algjör demantur og tókst henni að snúa við blaðinu eftir mikil áföll og neyslu.
Tue, 24 Aug 2021 - 1h 14min - 21 - 21. Ástrós Lilja - Einhverfa og einelti í grunnskóla
Ástrós Lilja betur þekkt á TikTok sem Dollan.16 kom í spjall við Eigin Konur. Ástrós talar mikið um einhverfuna sína á TikTok en hún fékk greiningu seint í grunnskóla. Hún talar við Eddu og Fjólu um hversu erfitt það var að fá einhverfu greinguna seint en hvernig greiningin mótaði hana sem manneskju.
Tue, 17 Aug 2021 - 1h 07min - 20 - 20. Helga Sigrún - Húðrútína og OCD
Helga Sigrún lærir efnaverkfræði í háskólanum og hefur ástríðu fyrir húðvörum. Hún barðist lengi við Acne og fræðir fólk um hvaða húðvörur eru æskilegar fyrir húðina. Hun glímir við OCD og kom og spjallaði við eigin konur um framtíðarplön, ástríðu og sólarvörn.
Mon, 09 Aug 2021 - 1h 11min - 19 - 19. Sindri Þór Sigríðarson - Fékk kæru frá Ingó VeðurguðMon, 26 Jul 2021 - 1h 29min
- 18 - 18. Gísli Marteinn - Borgarskipulag og cancel culture
Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn er ekki þekktur fyrir að láta lítið fyrir sér fara en hann er einn vinsælasti sjónvarpsmaður landsins og er einnig kaffihúsaeigandi. Gísli brennur fyrir góðu borgarskipulagi og má segja að hann sé með slík mál á heilanum og vill Reykjavíkur flugvöllinn burt. Gísli kom og ræddi við eiginkonur og sannaði það að glaðari og hressari mann væri erfitt að finna.
Mon, 19 Jul 2021 - 1h 21min - 17 - 17. Freyja Haraldsdóttir og Rannveig Ágústa GuðjónsdóttirTue, 13 Jul 2021 - 1h 20min
- 16 - 16. Bertha Þórbjörg
Akureyringurinn Bertha kom og ræddi við Eigin Konur um ofbeldissamband sem hún var í nokkur ár. Styrkurinn sem Bertha býr yfir leynir sér ekki og líkir hún fyrrum sambandi sínu við stofufangelsi. Hún ræðir um hvernig sjúkást heltók líf hennar.
Tue, 06 Jul 2021 - 1h 16min
Podcasts similaires à Eigin Konur
- Mit den Waffeln einer Frau barba radio, Barbara Schöneberger
- radioWissen Bayerischer Rundfunk
- Der Tag Deutschlandfunk
- Die Nachrichten Deutschlandfunk
- Eine Stunde History - Deutschlandfunk Nova Deutschlandfunk Nova
- Psychologie to go! Dipl. Psych. Franca Cerutti
- Kriminalhörspiel Hörspiel und Feature
- Die Ernährungs-Docs - Essen als Medizin NDR
- Zwischen Hamburg und Haiti NDR Info
- Gysi gegen Guttenberg – Der Deutschland Podcast Open Minds Media, Karl-Theodor zu Guttenberg & Gregor Gysi
- "Kein Mucks!" – der Krimi-Podcast mit Bastian Pastewka (Neue Folgen) Radio Bremen
- Sinnlos Märchen RADIO PSR
- Geschichten aus der Geschichte Richard Hemmer und Daniel Meßner
- Verbrechen von nebenan: True Crime aus der Nachbarschaft RTL+ / Philipp Fleiter
- Das Wissen | SWR SWR
- SWR1 Leute SWR
- WDR Zeitzeichen WDR
- Aha! Zehn Minuten Alltags-Wissen WELT
- Einschlafen mit Wikipedia Wikipedia & Schønlein Media
- Kurt Krömer - Feelings Wondery
- Aktenzeichen XY… Unvergessene Verbrechen ZDF - Aktenzeichen XY
- LANZ & PRECHT ZDF, Markus Lanz & Richard David Precht
- Verbrechen ZEIT ONLINE
- ZEIT WISSEN. Woher weißt Du das? ZEIT ONLINE